Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað breyst síðan ég var í sveitinni? Naut með júgur???

Við situm hérna saman familían og horfum á mjög skemmtilega mynd sem heitir Barnyard og fjallar um geggjuð dýr á búgarði. Það sem vekur athygli mína en börnunum fannst ekkert athugavert við, eru nautin sem eru alveg eins og kýrnar. Með júgur??? Skoðið bara myndina. Þetta er karlkyn í myndinni en með júgur alveg eins og allar kvenkyns kusurnar. Kannski er bara alvöru feminismi í teiknimyndinni? Eða jafnrétti..hehe.  Nei svona í alvöru..veit einhver hversvegna nautin eru með júgur þarna??

barnyard

Aumingja eitt nautið dó og var jarðað með viðhöfn. Dóttur minni fannst það frekar sorglegt og brast í grát og tárin hvöttu bróður hennar til að taka utan um hana og hugga...Hann var samt ekkert alveg vissum hvað hann átti að segja eða hvernig..svo hann klappaði henni mannalega á öxlina og sagði..

"Don´t cry. It´s only a drawing!!Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehehe only a drawing.  Góður og alveg hárrétt hjá honum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2007 kl. 20:37

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Minn maður hefur ekki síður verið að hrista af sér grátinn með að snappa sér inn í veruleikann áður en hann felldi tár.  Þetta gerum við strákarnir gjarnan. Látum eins og fífl eða dæsum yfir sorglegum atriðum í bíó og gerum grín að viðkvæmni stelpnanna. Ef við gerðum þetta ekki, værum við sjálfir í táraflóði.  Það er jú ekki ætlast til þess.  Við erum hin trausta og tilfinningakalda fyrirmynd og fyrirvinna. Rökvísin uppmáluð. 

Þetta er voða krúttlegt.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.3.2007 kl. 20:56

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já hann hefur örugglega líka verið sorgmæddur enda lítil krabbakló. En hann á 3 systur og við erum ekkert að kippa okkur upp við tár og tilfinningar á þessu heimili...svo það er allavega ekki ætlast neitt sérstaklega til þess að hann sé mannalegri en við hin og tárfelli ekki þegar honum finnist ástæða til. En hvað finnst ykkur um nautin og júgrin???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.3.2007 kl. 21:02

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Skrýtið þetta með nautin og júgrin á þeim ... tek undir það. Nói stelur þó senunni alveg með því að hugga systur sína svona sætt ... Heheheh

Knús yfir hafið! Auðuga Katrín mín!  

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.3.2007 kl. 21:24

5 Smámynd: Gerða Kristjáns

awwww sætur er hann

Gerða Kristjáns, 2.3.2007 kl. 21:44

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eru þetta bara ekki svona metrosexual naut. Mjög inn í dag þó það sé alveg að verða retró. Annars sé ég nú menn í sundi dag, sem eru virkilega með túttur. 

Annars er einhver sósíaldemokratísk jafnaðarpedagógía á bak við þetta held ég. Það er ótrúlegri snilld beitt í að afsexa barnaefni í tilgangi jafnaðarhugsjónar. Svolítið hrollvekjndi finnst mér.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.3.2007 kl. 23:33

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ja hérna, það er margt skrýtið í kýrhausnum, nautin komin með júgur

Sætur hann sonur þinn að hugga systur sína.

Svava frá Strandbergi , 3.3.2007 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 311443

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband