7.3.2007 | 22:29
Flikk flakk heljarstökk...hnakka og hamingjustökk...
Jehey....nú er sko að komast mynd á þetta hjá mér..... og ég bara stekk endalaus hamingjustökk í garðinum og hrelli mína nýju nágranna. Eldhúsið komið á sinn stað. Fann bleika fægiskóflu og kúst í stíl skreyttum bleikum og grænum blómum. Uppþvottaburstinn er gulur og ruslafatan sótthreinsuð. Það má fá sér kampavín að drekka úr henni ...ef maður vill svo mikið.
Pínuoggulitla stofan, holið, borðstofan og sjónvarpsherbergið er orðið fínt. Öll þessi herbergi í einu plássi sem er 3x 5 skref. Ég klofaði sjálf og mældi. Setti líka spegil þversum á einn vegginn til að blekkja og gefa tilfinningu fyrir meira rými. Las um þessa snilld í húsbúnaðarblaði og sé núna sjálfa mig hvert sem ég lít. Spurning hvað ég held það lengi út. Best að vera dugleg að greiða sér og bursta tennur daglega.
Rósailmskerti og túlípanar lífga upp umhverfið og gefa manni leyfi til að troðast á milli húsgagna. Við vildum að fjölskyldan væri meira saman og nánari..nánari getum við eiginlega ekki orðið! Við erum svo náin núna að við heyrum hjartsláttinn í hvert öðru og öndum í takt. Og borðum af sama disknum og förum jafnfætis á klóið.
Hvernig er það aftur með feng shuið...ef það er opið beint í gegn?
Frá útidyr að bakdyr? Gler báðum megin? Sleppur ekki eitthvað mikilvægt í gegn?
Man ekki alveg hvernig þetta er en er búin að setja stóran stól á milli og möntru með til að stoppa að eitthvað flæði í gegn sem á ekki að gera það. Æ hvað ég vildi að ég hefði stundum betra minni.
Húmmara kúmmara..súmatra kúmatra...bannað að fara það sem á að vera.
Eina sem við þurfum er bara kærleikur og hann sleppur ekkert út héðan. Svo fínar og þykkar skrautlegar gardínur um allt...kannski ekki alveg minn stíll en hljóta að gera sitt.
Eina sem mig vantar núna eru góðar hænur í garðinn sem verpa gulleggjum og gala þegar ég þarf að vakna. Mega líka alveg slá og gróðursetja litrík blóm fyrir mig og bóna bílinn á laugardögum. En maður getur ekki ætlast til að lítil hænugrey nenni að gera það sem ég nenni ekki sjálf. Nei ég sætti mig við og er alveg ánægð með gulleggin.
Verið góð við hvert annað og hænurnar.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Smá mórall akkúrat núna hjá mér þegar ég er að japla á kjúklingaleifunum í munninum (mmm.... piri piri kjúklingur! Aaaahh). En ég á ekki svona töfrahænur - hins vegar er gemsinn þannig stilltur að vekjarahljóðið eru dýr að orga ofan í hvert annað - og gott ef ekki Tarzan sjálfur og nokkrar hænur láta í sér heyra ... spurning um að redda þér því?
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 22:34
Til hamingju elsku Katrín. Krúttlegt að hafa svona "alltíeitt" rými hjá sér. Þú gefur mér afleggjara af gullhænunum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2007 kl. 22:52
Það er bara yndislegt að vakna við hanagal..eitthvað svo gamaldags og rólegt. Klósettsetan er lokuð og það kom karl í dag og þreif ofninn svo ég ætti að vera í góðum málum. Eitt enn sem ég þori að veðja hausnum á mér upp á...þið eruð ekki með tepplagt eldhúsið eins og ég. Voða hlýtt á morgnana þegar maður setur ketilinn í gang og engin þörf á inniskóm til að hlýja sér á tánum.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.3.2007 kl. 22:56
GUÐ hvað þetta er fallegt...takk!!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 7.3.2007 kl. 22:58
Ég á bara þessar íslensku haughænur, en þær eru líka flottar, borða það sem til fellur úr eldhúsinu og eggin þeirra eru sko í fyrsta klassa frit gående hönsegg. heheheheh..
Til lukku með draumahúsið þitt. Og megi þér líða alltaf vel og eiga gott líf í bláa húsinu þínu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2007 kl. 23:31
Já finnst þér það ekki Guðmundur. Þessi mynd var tekin af mér...ekki alveg síðasta sumar en ekkert fyrir svo löngu síðan sko!!! Á Hveravöllum.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.3.2007 kl. 00:11
Katrín þú ert frábær
takk fyrir að vera til
Hrönn Sigurðardóttir, 8.3.2007 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.