Leita í fréttum mbl.is

Athugun 8

bodies

Er hægt að fara úr líkamanum?

Hefur þú upplifað slíkt?

Vinsamlegast skrásetjið sögur, upplýsingar eða athuganir á viðfangsefninu í athugasemdir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég skrepp frá á hverri nóttu og heilsa upp á meðanda mína í hinu stóra samhengi.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.3.2007 kl. 23:45

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það gerum við flest...by the way.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.3.2007 kl. 23:46

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég held að við séum öll á flakki um nætur. Bara sjaldnast sem fólk man eftir því. Ég er nú alveg á því Jón Steinar að það sé kaffihús þarna einhversstaðar í fjarskanum sem við fáum okkur kaffitár og þú segir mér hvað þú ætlar að skrifa um í næsta bloggi..því það er ekki einleikið hvernig þér tekst alltaf að" skúbba" því sem ég er að hugsa um að fara að skrifa um.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 00:05

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hef ekki upplifað slíkt .. nema þá í draumi eins og allir hinir

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.3.2007 kl. 00:09

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég veit ekki hvort það telst til þess að fara úr líkamanum að dreyma drauma, kannski langa atburðarás sem manni finnst í draumnum að  muni gerast þegar maður vaknar. Svo þegar maður vaknar 
endurtekur þessi atburðarás sig alveg í smáatriðum.
En ég sá einu sinni fylgju, hvað sem það nú er.
Ég var 18 ára og sá bróður minn í gegnum rúðuna á útidyrahurðinni þar sem hann stóð og var að fara að stinga lyklinum í skrána. Ég opnaði hurðina fyrir honum en þá hreinlega gufaði hann upp fyrir framan augun á mér.
Klukkutíma seinna sá ég þessa sömu sjón, bróður minn í gegnum rúðuna á útidyrunum. Mér datt ekki í hug að opna fyrir þessu 'fyrirbrigði' í annað sinn enda var þess ekki þörf því bróðir minn opnaði dyrnar  í  þetta sinn í eiginn persónu og holdi klæddur.
Ég finn líka oft hluti sem öðrum er gersamlega fyrirmunað að finna. Eru kannski grafnir í jörð. Ég geng bara beint að þeim eins og ég sé leidd. Skrýtið.

Svava frá Strandbergi , 14.3.2007 kl. 00:40

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Takk Guðný. Skemmtilegt innlegg. Ég lenti einu sinni í fjársjóðsleit þar sem fjársjóðurinn týndist. Skipuleggjendur höfðu afgirt svæði þar sem steinn merktur undir átti að finnast en hann fannst hvergi og var leik loksins hætt þegar búið var að snúa öllum steinum á svæðinu.

Ég gekk út fyrir svæðið og labbaði svo rakleitt að einum steini og snéri honum við..og viti menn þar var hann kominn. Hann abra lýsti einhvernveginn..eins og það væri ljós í kringum hann. Og við fengum fullan poka af fimmköllum ég og dóttirin og voru alsælar!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 00:51

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Guðný. Hann pabbi minn var með svona fylgju, sem gekk um með hurðaskellum og sparkaði af sér skónum og lét öllum illum látum. Hann kom svo sjálfur kortéri seinna.

Café Cosmos er yndislegur staður að hittast á Snætrýna. Hef notið funda okkar þar í botn.

Fyrirgefðu að ég skuli vera sneggri til með skrifin. Ég er svoddan skálmari og sting oftast alla af, sem reyna að ganga mér við hlið.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.3.2007 kl. 00:58

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jón Steinar,  mamma sagði að fylgjan hans bróður míns kæmi alltaf heim korteri á undan honum sjálfum. Hún heyrði ´hana' opna hurðina og ganga um svo opnaði hún líka alltaf ísskápinn.
Svo kom bróðir minn sjálfur og gerði nákvæmlega það sama og fylgjan hans.

Svava frá Strandbergi , 14.3.2007 kl. 01:32

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

þarna sérðu Katrín þú ert svona líka. Heppin varstu að fá borgað fyrir fundinn.

Svava frá Strandbergi , 14.3.2007 kl. 01:34

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Annars er ég á því að við förum víða og höldum stundum að það hafi verið draumur þegar í raun var það raunveruleiki þetta flakk. Og kaupi alls ekki að allir draumar séu bara úrvinnsla undirvitundar úr dagvitund. Þekktur prófessor hér sem hefur rannsakað drauma í yfir 30 ár staðfestir þetta og kemur fram með margt mjög magnað um ferðalög sálarinnar í gegnum "drauma".  En nú ætla ég að fara í skó og bregða mér á café Cosmos og reyna að ná í hugmyndir fyrir næsta blogg.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 08:23

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hef heyrt einmitt svona sögur frá Þingvöllum. Einn vinur minn upplifði mjög sterklega þegar hann var drengur að alltaf þegar hann kom þangað var eins og hann hyrfi aftur i tímann og væri meðal fólks nokkrum árhundruðum áður. Og hann var þeim sýnilegur og framandi. Eins eru magnaðir kraftar undir Jökli...merkilegt hversu sumir staðir eru sterkir.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 08:57

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Merkilegt með Þingvelli. Það eru svo miklir kraftar sem búa á staðnum. Ég var eitt sinn á Þingvöllum og lá þar á bakinu grasbrekku til þess að komast í samband við náttúruna
Skyndilega fann ég sterka þörf til þess að grafa fingurna á kaf ofan í grasið  og þegar ég gerði það fann gríðarlega endurnærandi orku streyma um allan líkamann.
Ég hef aldrei hvorki fyrr né síðar fundið orku frá náttúrunni svona sterkt og þó geng ég stundum upp að háum trjám til þess að finna orkuna sem streymir frá þeim 

Svava frá Strandbergi , 14.3.2007 kl. 21:03

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Man eftir einu tré sem við stóðum oft upp við í skólanum..aftur og aftur gerðist það að fólk hrökklaðist frá því eins og það hefði fengið högg í bakið..eða einhvern straum. Jafnvel þegar það var algert logn og blíða. Ég prófaði einu sinni að standa þétt upp við það í svolítinn tíma..og svo bara allt í einu..búmm. Kom bara höggbylgja frá trénu beint í bakið á mér. Alveg furðulegt og ég hef ekki hugmynd um hvað þetta á að þýða.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband