Leita í fréttum mbl.is

Ítalía vinkona mín..alveg ný kona.

Italy

Mig langar í nýja skó. Þá myndi ég fá mér göngutúr til Ítalíu vinkonu minnar og rifja upp hvað hún er unaðsleg og tælandi. Heima hjá henni er allt svo fagurlega hannað og hún talar hátt og með ástríðu um mat og dýrindis vín. Hún heldur utan um fjölskyldu sína eins og mafíósamamma og lætur sér koma allt við. Hún er litrík og sterk, angandi af olívum og spagettíi. Hún á sér elskuga sem heita fallegum og girnilegum nöfnum. Leonardo Da Vinci, MicaelAngelo og Rafaello. Listin er blóð hennar og andardrátturinn lífið sjálft.

Já mig langar í nýja skó.

Í dag er allt nýtt. Ný hugsun. Ný orð. Nýr andardráttur. Nýtt sólskin. Nýtt vatn. Ný sköpun. Ný hugmynd. Ný skoðun. Ný sýn.

Nú má byrja allt upp á nýtt! Frábært. Svo halda sumir að þeir þurfi að vera og gera allt sem þeir gerðu í gær..hehe.vöxtur 

Í dag er nýr dagur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mig vantar alltaf skó!  Eigum við að drífa okkur til Ítalíu Katrín mín og fá að gista hjá henni.  Láta umvefja okkur á mömmulegan hátt, fæða okkur og láta rugga okkur í svefn híhí.

Það besta við þetta allt er að það er alltaf alveg glænýr dagur, fullur af tækifærum og spennandi hlutum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 14:55

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það bjargar geðheilsunni og nærir allt í mér að fara til ítalíu. Þyrfti eiginlega að komast þangað a.m.k tvisvar á ári. Ég bara elska allt við Ítalíu mína.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 311649

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband