Leita í fréttum mbl.is

Við

we

Í dag er Comic relief dagurinn hjá okkur.

Dagurinn sem heil þjóð tekur höndum saman og gefur til þeirra sem minna mega sín. Til afríkubúanna, þeirra sem eru með Aids, barna sem búa á götum úti alein og yfirgefin um allan heim, til barnahjálparstarfa hér og þar, til vatnsbúskapar og ræktunar, uppbyggingar og aðstoðar þar sem hennar er þörf. Allir sem vettlingi geta valdið gera sitt. Fyrirtæki eru með uppákomur meðal starfsfólksins, sjónvarpið með meiriháttar dagskrár sem og  útvarpsstöðvarnar, súpermarkaðir og skólar. Krakkarnir mínir fóru með rauðu trúðanefin í skólann sinn i morgun og nokkur pund í vasanum. Rauðu trúðanefin eru einkennismerki dagsins og hjálpin er veitt með gleði og húmor þó tilgangurinn og verkefnin séu dauðans alvara. Krakkarnir í skólanum eru búin að undirbúa alla vikuna skemmtilegar uppákomur til að safna peningum...þegar ég fór í bæinn í morgun var starfsfólk heildsölu úti á götu að syngja og skemmta gestum og gangandi, Blómabúðin með rósir til sölu þar sem allur ágóðinn fer beint til Comic relief. Í súpermarkaðinum er allt starfsfólkið með rauðu nefin og jafnvæl klætt í furðulega búninga...einn eldri maður sat og afgreiddi á kassa með fjólubláa glitrandi hárkollu og í pilsi. Hló og sprellaði og hvatti fólk til að gefa í söfnunarbaukana sem eru um alla búð. Hjörtun slá í takt í dag.

Svo byrjar dagskráin í sjónvarpinu klukkan átta í kvöld og stendur fram yfir miðnætti..skemmtiatriði og myndir frá hjálparstarfinu í bland. Frá öllum sem lagt hafa sitt af mörkum..og maður bæði grætur og hlær í bland. Hlær yfir öllu því skemmtilega sem fólki dettur í hug að gera til að skapa peninga sem fara svo til þeirra sem maður grætur með. Tilfinningarússibani.

Í þessu árlega átaki sem hefur nú verið á hverju ári í 21 ár safnast tugir milljóna punda. Og verkefnin sem þau fara í eru svo verðug og góð. Stundum langar mig að standa upp og fara þarna út og leggja mitt af mörkum. Halda einhverju barnanna í fanginu og hugga það. Tek svo bara mín börn í fangið og knúsa og heiti því að gera allt mitt besta fyrir þau. Sumt þarf að byrja heima og vonandi vex það svo út í heiminn. Enn kannski kemur að því að kona leggur land undir fót og fer á fjarlæga staði og sér með eigin augum og upplifir þessa veröld. Og getur lagt sitt af mörkum.

Það er á svona stundum sem maður finnur svo sterkt að þetta erum við. Ekki ég. Að það er í raun ekkert bil og engin fjarlægð á milli okkar mannfólksins nema sú sem er heimatilbúin og felur sig bak við veggi óttans.

                               we

                                 HeartVerum VIÐ í dag!Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Sá útsendingu svona´þáttar einu sinni, var kannski sýndur á SkjáEinum eða annars staðar og fannst þetta algjört æði!!!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.3.2007 kl. 15:34

2 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Þetta er Æðislegt Katrín það verð ég að segja, myndast svo mikil samkennd þar sem við tengjumst hvert öðru og vitum að við erum öll eitt. Því þegar við hjálpum öðrum erum við í raun og vera að hjálpa okkur sjálfum. Þetta mætti þykkjulaust af minni hálfu taka upp hérna á Íslandi en best væri ef enginn þyrfti á hjálp að halda því við værum búin að búa þannig um hnútana.

Vilborg Eggertsdóttir, 16.3.2007 kl. 15:38

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Samkennd er að mínu mati ein sterkasta og fallegasta tilfinning sem bærist í mannshjartanu.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.3.2007 kl. 15:42

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við erum líka að skapa hana hérna hjá okkur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 15:55

5 Smámynd: Hugarfluga

Heyr, heyr! Blessun til ykkar allra.

Hugarfluga, 16.3.2007 kl. 19:48

6 Smámynd: www.zordis.com

  Fegurð heimsins er með ólíkindum! 

www.zordis.com, 16.3.2007 kl. 20:27

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ömmur dansa magadans

Tveir tíu ára vinir binda sig saman á fótum og labba þannig um allt í allan dag

Forstjóri í fyrirtæki leyfir starfsfólki að henda blautum svömpum í hausinn á sér

stelpur þvó bíla fyrir utan súpermarkaði og fleir og fleira og núna hafa safnast yfir 26.000.000 punda til að kaupa moskító net og lyf fyrir fólkið í Tanzaníu, gefa börnum í Bretlandi sem sjá alfarið um foreldra sína og fá aldrei frí eða tilbreytingu tækifæri til að eiga áhyggjulausan dag með jafnöldrum, koma í veg fyrir ofbeldi gegn öldruðum, Hafa aðgengi af lyfjum og sjúkrahjálp fyrir börnin sem veikjast af Malaríu og þar sem barn deyr á 30 sekúndna fresti, byggja skjól fyrir munaðarlaus börn og veita vatni til þeirra sem hafa ekkert drykkjarvatn eða hreinlætissaðstöðu.

Ég dáist að þessu framtaki og þessari samstöðu um að gera alltaf betur en síðasta ár. Verður gaman að sjá hver lokatalan verður núna.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.3.2007 kl. 22:02

8 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Hef leigt mér Comic relief frá LA þar sem Billy Crystal, Robin Williams og Whoopy Goldberg voru kynnar. SNILLD! Ég vil samt ekkert sérstaklega sjá ömmur dansa magadans, sorry

Ingi Geir Hreinsson, 17.3.2007 kl. 09:44

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Væri ekki vel við hæfi að íslendingar sem mælast stöðugt sem eitt af bestu veldferðarkerfum og ein ríkasta þjóð heims gerði eitthvað svona árlega. Peningarnir fara bæði til að styrkja þá sem minnst mega sín í veröldinni sem og ákveðinna átaksverkefna hérna heima. Og allir...myndu sameinast um að gera eitthvað frábært og skemmtilegt í tilefni dagsins og gleyma aðeins sjálfum sér og hugsa um alla hina sem hafa það þúsund sinnum verra og gera allt í okkar valdi til að koma þeim til hjálpar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband