28.3.2007 | 08:08
Ég er svo ógeðslega gáfuð, djúp og menntuð að það skilur mig enginn!
Ég er búin að vera eitthvað svo grútesk undanfarið. Stíllinn á myndum mínum lýsir ferskum kúbisma og tekur um leið mið af platónskum hugsunum patrónismans.
Að vera maður, að vera kona, felur í sér feminiska hlýhugsun sem lyftir valdi innsæis kjarnans. Humanismi í sinni socialískustu mynd.
Lögmál andans lýtur tæknilegum fílósópískum hugarheimi athafnamannsins. Kapítalismans sem veit að peningurinn er drifkratur sköpunarsinnans. Þarna mætast heimar áður ótengdir en hvirflast nú um hver í öðrum vegna eignleika hins gjafmilda súrrealisma.
Ó hve gáfur okkar hafa fleytt mannkyni langt. Yfir stokka og steina huldufólks og mannálfa, trúar á tröll í líki fjárfestingarfrumkvöðla. Menntun er máttur og menntasnobbið virkjar hvaða möndluhaus um fjall og dal og bláan sand menningarheimanna. . Megi ég ætíð bera menntunnar minnar merki og muna að mæla mál svo möndluhausar eigi nemi.
Megi ég vera trúður á torgi hins himneska auðs í kindum talið og aldregi gleyma uppruna mínum. Hirðfíflið sem stöðugt skemmtir skrattanum sem segist vera kóngurinn. Súrrealísminn ræður ekki við einteyming metaphorsins.
Gvöð hvað það er ógeðslega kúl að vera svona gáfuð á miðvikudegi.
Best að fá sér góða göngu og hreinsa aðeins gáfurnar út í skiptum fyrir ferskt og gott loft.
Ekki veitir af.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Viturleg orð að morgni Óðinsdags í frosti og funa! Funa hjartans, frosti hugsunarinnar, metnaðarleysi mánudagsins ... mengunarhætta næturinnar! Svalir fortíðar, þrá framtíðar setja ljós sitt á himinhvolf bárujárnsplötunnar!
Hmmm, var að prófa hvernig það væri að vera svona gáfuð, það var ansi kúl! Hmmmm, sorrí bullið í mér!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.3.2007 kl. 08:20
Vildi að ég væri svona gáfuð
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2007 kl. 08:24
Hm... er þetta ekki full mikið af gáfum svona snemma morguns?
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.3.2007 kl. 08:37
Þetta kallar maður nú hánefjaða conseptræpu.
Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 08:52
Hér er smá vitleysa til að ná þessu úr þér.
Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 09:31
Þú er gáfuð kona,
Kristín Katla Árnadóttir, 28.3.2007 kl. 10:39
Hvar fær maður eiginlega svona andgift?
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 28.3.2007 kl. 10:54
Að lesa bloggið þitt er eins og að fara í sturtu, ganga síðan út í fríska morgundöggina og anda að sér vorloftinu eftir hretur vetrarins... megi andagiftin Spirittósa svífa sem lengst yfir vötnum þínum...
Vá hvað það er gaman að vera svona háfleig...
bara Maja..., 28.3.2007 kl. 11:35
Jaaa hééérna og úffff
Vona að göngutúrinn hafi gengið vel...
Gaman að linknum hér fyrir ofan, þetta eru einmitt strákarnir sem ég var að æfa með þegar ég datt af hlaupabandinu og ... jamm, bara verið í henglum síðan
Guðrún Þorleifs, 28.3.2007 kl. 12:00
Já það er ekki öllum gefið að geta bullað á svona sannfærandi hátt í morgunsárið!
Þetta er ádeila á alla sem tala þannig að venjulegt fólk skilur hvorki upp né niður í hvað er verið að reyna að segja. Og heldur þar af leiðandi að að sé eitthvað að því sjálfu. Iss og piss.
Og það er sko margt sem er þannig sett fram og notuð orð og orðatiltæki sem segja í raun ekki baun.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.3.2007 kl. 12:04
Yeah...fanfabulous in theory though in close accordance to implosive rethoric quasy sentimentalistic metro impressionistic paradoxes, in fact luminous in sence of post fandango reverance. Thoug, one might say evangelistic in scope and texture divided from the througout telescopic fallasy in pre timesone utopia of the ruling idiocracy related in so many ways to the fundamental semi truth of low cost, low fat democratic thougt process in any given undercurrent of impressionistic rawness truly escapable within the reptile truth of bla bla bla bla bla
Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 12:18
vúpps! get ég þá hætt við að taka gáfupillurnar mínar?
Hrönn Sigurðardóttir, 28.3.2007 kl. 12:56
frábært, ! gáfulegt, skemmtilegt og fullt af orðum sem má skilja á marga vegu, þar sem maður er. gott komment hjá henni maríu þetta með sturtuna
ljós frá mér á miðvikudegi
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.3.2007 kl. 14:14
Þú kannt að kalla ýmislegt fram hjá fólki, Katrín kær. Ég segi amen, kúmen, krossmen, hálsmen, hímen.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.3.2007 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.