5.4.2007 | 23:01
Moggablogg í rugli og lesturinn á mínum snilldarpistlum hríðfellur. Greinilega bara bilun.
Bloggið er í rugli. Bæði birtast "nýtt" hjá öllum og líka þeim sem eru ekkert að blogga og engin ný svör komin í athugasemdir. Hjá sumum eru bara allar nýjar færslur sl 2 mánuði horfnar og ég hef haft verulegar áhyggjur af Zordísi og öllum hennar dásemdarfærslum og hvar þær geti eiginlega verið??? Svo er ég búin að sitja alveg sveitt við að lesa allt sem birtist sem "Nýtt" og svo er bara gamalt??? Jiiii hvað ég er spæld yfir þessum tapaða tíma. Og það á skírdegi sem maður hefði kannski átt að lesa eitthvað í trúarbókinni.
Svo er náttla alveg skandall..og það er að lesturinn á mínu bloggi hríðhrapar og ég er sannfærð um að það er vegna þess að það er eitthvað að Moggablogginu
Teljararnir eru annað hvort stilltir í vitlausa átt eða sá sem stjórnar Moggablogginu er á móti mér og fær bónus fyrir að hefta hraðferð mína hér. Ég bara finn það á mér og ég er ekki næm og nösk fyrir ekki neittt get ég sagt ykkur. Hann er skolhærður og lágvaxinn þessi vondi gutti og áran hans er drapplituð..
Maðurinn minn sagði að það hefði bara eitthvað með hvernig ég skrifa og um hvað..en ég var nú fljót að snúa fast upp á hendurnar á honum og láta hann vera sammála mér..að Moggabloggið sé bara í algeru rugli þesssa dagana og að maður segi ekki svona við konu ef hann vill halda í hana og vera bara ekki látinn sigla sinn sjó . Og það ekki einu sinni á sjómannadaginn heldur sjálfan skírdaginn.
Þessi hugmynd og ímynd fékk hann alveg til að segja allt sem ég vildi að hann segði. Hver vill líka sigla aleinn á hálfum báti í stórsjó um páska og eiga kannski bara stundir með mæðulegum hafmeyjum??? Ekki minn kall..svo mikið er víst.
Vona að dagurinn langi á morgun verði bara stuð hjá ykkur. En munið að taka ekki í spil því það skemmtir víst skrattanum..og það vill enginn almennilegur maður hafa á samviskunni nema Sæmundur.
Hvaða Sæmundur? Það eigið þið öll að vita ef þið lærðuð eitthvað í barnaskólanum.
Jæja best að halda áfram að skoða myndir af barnabörnum. Þau eru ekkert venjulega falleg og hlýja mér óendanlega mikið í hjartanu.
Hlakka líka til að borða íslensku páskaeggin og lesa málshættina. Ég fæ alltaf sama málsháttinn ár eftir ár alveg síðan ég var unglingur.
Ekki er sopið álið þó í klausuna sé komið í Hafnarfirði.
Örugglega bara af því að ég er gaflari.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 311442
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2007 kl. 23:05
Sko..sko...er ég ekki að lesa hér til hliðar eitthvað um snilldarpistil og eina sem birtist svo í athugasemd er bara hjarta? Ha? Hvað sagði ég ekki...það er eitthvað gruggugt í gangi og ég mun eigi hvílast fyrr en ég hef komist að þessu samsæri. Hefði líklega ekki átt að ljúga því hér í einum pistli mínum að ég og Bush værum bloggvinir. Shit!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 5.4.2007 kl. 23:15
Sko núna er ég búin að reyna að kommenta hjá þér í þrjár vikur / ok kannski bara fimm mínutur, en þetta moggablogg er bara að reyna á þolinmæðina okkar... ef að þetta komment tekst þá vildi ég bara segja við hina færsluna: að ég fer báðar leiðir... og svo sagði ég eitthvað meira gáfulegt en það vistaðist ekki.
bara Maja..., 5.4.2007 kl. 23:16
jæja loksins get ég kommentð hjá þér. Annars er þetta líka að ské hjá mér, ég held það sé vegna gagnrynar minnar á Agnesi moggakellingu.
Tómas Þóroddsson, 5.4.2007 kl. 23:30
Bloggið hefur verið í algjöru rugli undanfarið, fólk missir færslur úr birtingu (finnur þær reyndar í stjórnborðinu) ... Þeir sem hafa kvartað við "kerfið! fá lausn sinna mála. Hef séð það hér í bloggheimum.
Kær páskakveðja til þín og allra þinna sætu manna, barna og barnabarna!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.4.2007 kl. 23:49
Ég er líka búin að að reyna að gefa þér komment það er allt rugli hjá mogganum held ég.
Kristín Katla Árnadóttir, 6.4.2007 kl. 00:17
Hugsið ykkur öll menningarverðmætin sem eru að fara í súginn ef heilir tveir mánuðir af moggabloggi eru bara týndir!! Í alvöru, ef þetta væru einhver skjöl á Þjóðskjalasafninu sem væru týnd þá væri þetta sko lögreglumál og þingmenn og ráðherrar og allir væru hoppandi brjálaðir en svo segir bara enginn neitt þegar tveir mánuðir af moggabloggi týnast.
Er ég kannski að gera of mikið úr þessu?
Björg K. Sigurðardóttir, 6.4.2007 kl. 00:24
Frábær færsla hjá þér Katrín mín, alveg satt og málshátturinn á eitthvað svo vel við núna.
Fyrst Moggabloggið er í svona miklu rugli verðum við bara að senda það í meðferð hið snarasta.
Gleðilega páska.
Svava frá Strandbergi , 6.4.2007 kl. 00:30
kæra katrín, þetta er allt í lagi, taktu því bara rólega. ég kem sjaldnar inn, því ég lifí lífinu annan daginn og á blogginu hinn, verð að safna reynslu til að skrifa og kommentera. þannig er þetta kannski með fleiri.
skrifin þín eru yndisleg eins og vindur í eyra.
ljós til þín og þinna . kem inn aftur eftir páskadag..
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.4.2007 kl. 08:04
Mér sýnist, vona innilega að þetta sé komið í lag! Mind over matter! Gömlu færslurnar Eigðu yndislega Páska með þínum ofurmanni og börnum. Mamma sendi mér heil ósköp af páskaeggjum ... Nú eigum við mörg á mann! gLeÐi Um PáSkA!
www.zordis.com, 6.4.2007 kl. 08:18
Gleðilega páska, Katrín!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.4.2007 kl. 01:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.