30.4.2007 | 08:19
Ekki heppni...heldur Sköpun!!!
Nú liggur mér á hjarta.
Var að lesa bloggið hennar Zordisar sem ætti að vera skyldulesning hvern morgun fyrir þreytta og þjakaða íslendinga því það er svo upplyftandi og gefandi að það hreinlega setur man á ský. Einhver sagði þar að Zordis væri svo heppin.
Að eiga sér dýrindislíf og dýrðardaga sem og alla hina dagana hefur ekkert með heppni að gera. Það hefur með hugarfar og hugsun og tilfinningu að gera. Það hefur með það að gera að vera opin og sannur og mæta lífinu eins og það kemur fyrir á hverri stundu með þann einlæga vilja í hjartanu að sjá það fallega og það góða í aðstæðum. Sama hvað. Að vera með opinn hugann og sjá og skynja alla þessa endalausu fegurð sem felst í þessu ævintýra lega lífi. Og það skapar hver mannvera innra með sér..líf hennar verður ekki svo fyrir einhverja óljósa heppni.
Þarna er að verki innri vitund og sköpun. Yfir þessu búum við öll...alltaf! Það sem við hugsum og finnum innra með okkur leitar að samsvörun í veröldinni og laðar það eða dregur til okkar í samskonar formi.
Orkuformi.
Þess vegna skiptir það svo miklu máli að hafa þá ætlun að sjá og skynja í samræmi við drauminn okkar því það eru töfrarnir, neistarnir sem byrja að búa hann til og gera hann að daglegum raunveruleika okkar. Að hjartað og hugurinn séu í takt.
Hugsandi og sláandi fyrir kærleika og kátínu.
Með því að byrja að þræða þessar hugmyndir okkar upp á band og safna þeim og gæta þeirra vel daglega. Reyna að ná jafnvæginu smátt og smátt. Að einsetja sér að hugsa meira og betur hvern dag í þá átt að allt er gott og að útkoman verði einungis einstök í lífi okkar, verður orkubreyting í huganum og hjartanu og útsýnið mun bjartara og betra. Og þá fara að verða til fleiri perlur ..hugmyndaperlur og bjartar og litfagrar hugsanir sem safnast á þráðinn okkar og fara að móta lífið og stefnuna.
Lífið okkar og við förum að draga að okkur fallegri liti og fleira fólk sem vill bara gott. Sem getur horft á það góða og leyft ljósinu sínu að lýsa sjálfum sér og þér. Gefðu sjálfri/sjálfum þér þá gjöf að setja ljós í hugann og hjartað og byrja á þessu augnabliki að muna hver þú raunverulega ert. Skapari og mótandi alls þess sem er í lífi þínu. Hlustaðu þó ekki sé nema í 5 mínútur daglega í þögn á tónlistina sem leikur lífslagið þitt. Það er þarna . Innan í þér. Þú þarft ekkert að gera nema hlusta hljóð/ur og komast í takt. Heyra þinn tón og læra að hreyfa þig með. Fylgja þínu eigin lagi.
Hætta að hugsa um hvað öðrum finnst og vera bara það sem þú finnur innra með þér. Niður með grímuna sem við felum okkur á bak við. Eina sem hún gerir er að halda okkur frá hvert öðru. Því við erum öll eins og þráum það sama. Hvort annað og samræmi og jafnvægi. Frelsi. Sannleika.
Og það er allt þarna. Og það frábæra er að það hefur ekkert með heppni að gera, lukku eða krukku fulla af silfurpeningum. Þetta hefur bara með þig að gera. Hver þú ert þarna inni og að þú byrjir að muna eftir kraftinum þínum og hvað þig langar mest að gera og af hverju þú ert hér. Og dansir svo lífsdansinn við lagið þitt. í þínum takti. Alveg þar til þú ákveður að næsta umbreyting sé tímabær.
Eigðu yndislegan dag troðfullan af sköpun og ljósi.
Þú hefur þetta allt í hendi þér.
Þessi veröld er þín.
Skapaðu!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Ég hef þig og bloggið þitt Katrín mín. Það lyftir mér takk fyrir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2007 kl. 08:58
Ég þakka fyrir þetta Katrín mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 30.4.2007 kl. 10:03
Hrönn Sigurðardóttir, 30.4.2007 kl. 10:38
Hver er sinnar gæfu smiður .... heppni er ekki það sama og áunnin heppni en engu að síður báðar yndislegar! Faðmur handa þér vinkona ....
www.zordis.com, 30.4.2007 kl. 12:58
Takk takk. Það sem ég er að segja er að "heppnin" eins og hún kemur okkur fyrir sjónir á sér alltaf rætur og upptök einhversstaðar. Hún verður til fyrir tilstilli einhvers. Er ekki eitthvað sem dettur allt í einu yfir okkur þegar við eigum síst von á..þó það líti stundum þannig út. á einhverjum stað sköpðuðum við hana..með góðum orðum eða gerðum. Það góða ratar alltaf aftur til heimahaganna..sem og hið verra. Þess vegna er svo mikilvægt að taka ábyrgð á því sem maður sendir frá sér leynt og ljóst.
Eigið góðan dag og brosið sætt öll sömul. "Bros getur nefninlega dimmu í dagsljós breytt" eins og Pálmi Gunnars myndi syngja það fyrir okkur
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 13:20
Satt satt og svoooo saett ......
www.zordis.com, 30.4.2007 kl. 14:51
Fínn pistill.
Steingerður Steinarsdóttir, 30.4.2007 kl. 16:11
Þörf áminning, takk.
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 18:00
Amen, Katrín Snæhólm. Hugarflugufaðmlag á leiðinni til þín.
Hugarfluga, 30.4.2007 kl. 19:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.