2.5.2007 | 19:26
Sögu og ljóðakeppni...vertu með!!!
Hér koma 5 myndir. Þú mátt ráða hvort þú semur sögu um þær allar saman,
hvort þú velur eina þeirra til að semja sögu út frá
eða hvort þú vilt deila hugsýnum, setningum eða ljóði fyrir hverja mynd.
Þetta þarf samt allt að vera þitt eigið..frumsamið sem sagt.
Já þetta eru frekar skrítnar myndir en ættu að ýta hressilega undir hugmyndaflugið. Og það eru að sjálfsögðu verðlaun eins og síðast. Bloggarar kjósa svo bestu söguna, ljóðið eða innsýnina. Mundu bara að gefa upp númer hvað myndin/myndirnar er/eru sem þú velur til að skrifa um.
Sögukeppnin er opin fram á föstudagskvöld og svo verður kosið um helgina..ok?
Góða skemmtun.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 311442
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Mynd 1
Maðurinn með hattinn
er hryggur
hann sér framá
að verða of seinn í kvöldmat
Mynd 5
Maðurinn með hattinn
er hryggur
hann sér framá
að líta ekki bjartan dag
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 2.5.2007 kl. 20:15
Vá hvað þú ert dugleg Katrín mín. Þessi númer 4 er ekkert annað en óbeisluð fegurð
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2007 kl. 20:26
Myndirnar koma í réttri röð og ég stíg hér á stokk með heita putta og heitar tær!
Sagan mín er um ást og mann!
Dreyminn og gleyminn horfði ég á uppdúkað borðið. Raunveruleikinn var svo fjarri mér, reyndist eins og gömul svarthvít bíómynd sem missir aldrei gildi sitt. Ég gat ekki annað en tímasett fund okkar á þessum degi, ég varð bara að sjá þig á ný, þig sem stalst hjarta mínu og yfirgafst mig. Tár mín eru sem lækur í landi sem enginn sér og jörð sem engin snertir. Hjartlaus og hryggur ég biðla til þín eftir öll þessi ár. Lífið er ekki til þar sem tré lífsins hefur klofið sál mína. Ég er ekkert í engu án þín.
Í heimi þar sem enginn býr, þar sem hljóðið sefur og allt líf er slökkt hef ég verið og dormað. Hef legið við hliðina á öðrum hjartlausum persónum sem geta ekki meir. Þrátt fyrir fegurð heimsins tókst þú sýn mína og gerðir mig að engu í sjálfum mér. Ég elska þig samt og teygi anga mína til að snerta raunveruleikann, finna til á ný, gráta tárum eins og ég hafi aldrei gert annað.
Eftir jörð er annar heimur eins og annar dagur, annar engu betri, enginn ilmur og þó! Í heimi þar sem ástin er sýnileg sem tindrandi ljós verð ég, aleinn án þín. Ég er einn með sjálfum mér og verð að horfa framan í mig og taka mér eins og ég er. Ég er mín eigin ásýnd, þræll ástar sem er ekki endurgoldin.
Og, þó ....... til að elska þarf ég að byrja á sjálfum mér. Hvernig er hægt að elska án þess að vita hvað ást sjálfsins er, elska sjálfan mig. Ég lofa því að byrja að elska smátt og smátt ..... Ég mun láta mér líða eins silkimjúkum glöðum hundi sem er elskaður af öllum. Vera eins og ofur rogginn rakki sem konur á mínum aldri elska og tilbiðja. Þótt svipur minn sé súr þá verð ég elskaður af konum með ilm sem ganga í háhæluðum skóm, í pilsi með jakka í stíl.
Í huganum set ég hönd mína í greipar, keppist í takt við tímann að finna elskuna sem yfirgaf mig, fyrir karlinn í tunglinu. Karlinn sá hefur enga spegilmynd og er kaldur eins og ég var. Ég hef uppgötvað ástina og get horft í allar áttir, tiplað á taflborði lífsins og boðið þér upp í eilífðardans. Ég finn ilm af nátthúmi og heyri hvíslið sem mér berst í víndinum. Ég sé þig í fjarska þar sem þú situr og segir karlinum þínum sögur.
Í fjarlægðinni snerti ég hönd þína og bið þig afsökunar á lífi sem ég stal.
Með fangið fullt af Ást til þín,
Við stígum saman hamingjusöm.
Til framtíðar horfum elskan min,
Um litrík ástarinnar höf.
Ástareldur innra með,
svíður hjartarætur.
hrifninguna óspart kveð,
í draumaheimi um nætur.
Kanski finn ég hjarta mitt á ný og kem ef þú bara vilt það
www.zordis.com, 2.5.2007 kl. 20:35
Ég get ekki skrifað annað en maðurinn sem hafði augu í hnakkanum sá ekki fram fyrir sig og kunni ekki fótum sínum forráð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.5.2007 kl. 23:20
Djákninn á Myrká
Inni í holu brjósti
mínu
hef ég dúkað borð
fyrir þig
Garún, Garún
-fyrir þig
Rauvín í glösum
þar sem rosabaugur skín
sérðu ekki hvítan blett
í hnakka mínum,
Garún, Garún,
þar sem rosabaugur skín.
Svava frá Strandbergi , 3.5.2007 kl. 00:54
égt ekki samið sögu allveg ekki núna enn, flottar myndir.
Kristín Katla Árnadóttir, 3.5.2007 kl. 10:17
Það er EKKI að..eða af?..ykkur að spyrja snillingar. Bíð spennt eftir fleiri sögum og ljóðum. Einhverra hluta vegna virðast flestar sögur koma inn um kvöld eða nótt...þá eru líka listagyðjurnar glaðvakandi. og andinn víðfrægi yfir fólki.
Þar til næst...smjúts!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 15:19
Mynd nr. 3
Kossar
Ekki voru það
sólarkossar
sem bræddu
hjarta mitt
þetta ískalda vor
heldur þínir
mun heitari
Gilbaugur (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 20:45
Katrín, það á að vera rauðvín í glösum en ekki rauvín í ljóðinu mínu. Getur þú lagað þetta fyrir mig?
Svava frá Strandbergi , 3.5.2007 kl. 23:51
Ef fresturinn er útrunninn þá vil ég gefa Zordísi minn atkvæði. Hún hefur lagt mikið í söguna sína og ljóðið. Þið eruð annars allar flottar. Skemmtileg hugmynd og skemmtilegt að vera með. Knús til ykkar allra.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.5.2007 kl. 11:32
Gilbaugur fær mitt atkvæði
Hrönn Sigurðardóttir, 5.5.2007 kl. 14:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.