3.9.2007 | 22:08
Bara svona dagur
Kláraði að lesa bókina um nornina frá Portobello eftir Goelho og bíð núna spennt eftir að Kundera komi í pósti frá íslandi svo ég geti byrjað að lesa með leshringnum mínum hjá Mörtu. Er með óskiljanlegt æðiber í rassinum þessa dagana og uppfull af hugmyndum að flytja eitthvert langt í burtu. Þar sem lyktin er öðruvísi og bragðið af matnum framandi. Svo augu mín sjái eitthvað nýtt og heilinn geti tekið inn annarskonar skilning, eyrun heyrt skringileg hljóð og orð. Og ég er óþreyjufull og get ekki beðið eftir að fara af stað. Er samt ekkert að fara neitt. Hef ekki hugmynd um hvar þessi staður er sem togar svona í mig núna. Ekki græna glóru. Kannski þarf ég bara að lita á mér hárið með nýjum lit eða fara að ganga í fjólubláu.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Þú ert ef til vill að fara í andlegt ferðalag mín kæra. Veist af því í sálinni en ekki í líkamanum. Eitthvað spennandi sem bíður þín örugglega.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2007 kl. 09:40
Já þú segir nokkuð...í morgun hringdi til mín öldruð kona sem ég hitti á laugardaginn. Hun kom að skoða myndirnar mínar og krotin og langaði svo í tré krotin en átti ekki fyrir þeim. Hún var hrumleg og í hjólastól og frekar hrörlega til fara með skrítinn hatt. Mér fannst hún eitthvað svo mikið kræutt svo ég gaf henni tvö kort og hún varð svo glöð og kyssti mig rembingskoss á kinn. Svo hringdi´hún í morgun þar sem ég hafði líka gefið henni einn af bæklingunum mínum og sagði ekki margt. Vildi bara fá heimilisfangið mitt því hún þyrfti að senda mér bréf og vildi alls ekki senda e mail enda væru tölvur ekkert sniðugar. Handskrifað yrði það. Og ég fékk einhvern svona forvitnisfiðring...þetta kom mér svo á óvart að hún skyldi hringja. Kannski vantar mig bara alvöru haustlægð með roki og rigningarhviðum svona til að hreinsa loftið.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 10:04
TréKROTIN..eiga að vera trékortin..eða hvað??
Kannski er þetta bara krot
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 10:05
Ekki krot heldur mjög FALLEG kort!
Vilborg, 4.9.2007 kl. 11:58
SKemmtileg krot hjá þér !!!
Ásdís Sigurðardóttir, 4.9.2007 kl. 13:07
Nú er ég búin að rissa upp landakort og krota þar við hvert ég vil fara næst. En það verður að vera leyndarmál enn sem komið er. Á eftir að kanna viðbrögð familíunnar..hehe
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 13:43
Kortin þín eru svo vönduð og flott! og krotið sannarlega ekki síðra
Marta B Helgadóttir, 4.9.2007 kl. 14:18
...hefurðu skoðað uppl um Bled í fyrrum Júgóslavíu, mig langar að koma þar einhverntímann, aðstæður eru eitthvað í líkingu við Garda vatnið á Ítlíu held ég, hef séð myndir frá Bled og þvílík náttúrufegurð, ódýrt ferðamannaland... veit ekki með matinn þarna ...er kannski aukaatriði
Marta B Helgadóttir, 4.9.2007 kl. 14:22
Umm, fjólublár litur er svo flottur! Hlakka til að vita hvað er að toga í þig, það hlýtur að koma í ljós! Knús frá Skaganum!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 4.9.2007 kl. 18:31
Hvað ef maður tæki þetta æðiber í burtu með aðgerð, ætli maður yrði sáttari? Er það, er þetta ekki nauðsynlegt "líffæri" sem maður verður að fóðra í hófi.
Viðar Zophoníasson, 4.9.2007 kl. 19:08
Kristín Katla Árnadóttir, 4.9.2007 kl. 19:22
Já ég hef soldið gaman af Dalí..þegar raunveruleikinn er tvistaður og umsnúinn. Jú ætli æðiberið hafi ekki einhvern tilgang..að koma manni á milli staða og reynslna. Láta mann fara út fyrir velllíðunarmörkin og reyna eitthvað nýtt.
Aftur.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 20:59
Fjólublátt hár væri kannski ekki svo slæm hugmynd :/ en kannast við óþreyjuna, þá verður maður bara að takast á við eitthvað nýtt, fara að æfa karate eða bara eitthvað, taka kúrs í háskólanum hefur líka alltaf virkað vel fyrir mig
Elín Arnar, 4.9.2007 kl. 21:17
Fjólublár hattur er ÆÐI
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 4.9.2007 kl. 21:48
Jamm...kannski ég taki einn kúrs sem mig hefur dreymt um eða læri að gera tónlist. En hún er óþreyjufull þessi óþreyja sem hamast í mér núna. Síðast þegar ég fékk hana í þessu magni fluttum við til englands.....svo maður veit aldrei hvað næst.
Hulda..mig vantar hatt fyrir veturinn. For bad hair days you know!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 21:55
Já gott hárband hefur li´ka dugað mér þegar hárdagarnir eru slæmir
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 4.9.2007 kl. 21:57
Eða héradegirnir ... bad hairday var þýtt sem slæmur héradagur þegar þátturinn Good Morning America var sendur út frá Bláa lóninu.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 4.9.2007 kl. 22:46
Ha ha já sérðu fyrir þér að reyna að ráða við óðan héra á hausnum á sér með einum litlum hatti??? Hvaða snillingur var þetta???
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.9.2007 kl. 22:57
Ég væri til í að baða mig í fjólubláu ljósi og fylla andann af orkunni. Ég fæ stundum svona til finningu og í sumar hefur gylltur ormur vafið um mig silkiþráð. Í dag er margt nýtt að gerast og ég er með þúsund fiðrildi í mallakútnum "mjóa" .... Tilhlökkun og endalaus ást sem ég þarf að úða í mig.
Fjólublátt er svo virðulegur og fallegur litur. Knússssss
www.zordis.com, 4.9.2007 kl. 23:02
Veit ekki hver þýddi, Katrin, en þetta var fyndið. Hafði engan tíma til að skrifa þér sætt bréf með bókinni, bara skellti henni í póst í hvelli!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.9.2007 kl. 12:24
Smá innlitskveðjur frá einni önnum kafinni. Bæði komin í fullan skóla og rúmlega fulla vinnu. Geggjað gaman
Guðrún Þorleifs, 5.9.2007 kl. 14:22
bara lita hárið og fá sér nýjan púða, þá róast maður !!!
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 15:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.