17.2.2008 | 23:18
Er ekki merkilegt hvað börnin upplifa??
Í kvöld þegar ég var að syngja fyrir dóttur mína sem verður ellefu ára á morgun 13 mínútur yfir níu annað kvöld..gömlu íslensku lögin okkar, þá sagði hún mér svo margt sniðugt. Og ég fór að velta fyrir mér hvernig börn upplifa hlutina. Í mínum huga eiga erindin sínar myndir og ímyndir en í hennar huga birtast allt aðrar myndir í gegnum sönginn og erindin en hjá mér. Við vorum að rifja upp alls konar lög og texta og bera saman við það sem hún var að syngja með krökkunum í skólanum sínum í englandi og svo hér á íslandi.
"Mamma" sagði hún ...Í englandi fannst krökkunum stundum asnalegt að syngja með en þegar við syngjum saman hér þá er svo gaman að allir krakkarnir í sjötta bekk, og fimmta bekk, líka fjórða, þriðja, öðrum og fyrsta bekk syngja allir saman og það er bara svo fallegt að heyra það.
Við vorum að syngja .."Sofðu unga ástin mín" sem hún hefur haldið uppá í mörg ár og vill svo oft heyra áður en hún fer að sofa.
Svo sagði hún..."þegar þú syngur þetta sé ég fyrir mér...að það er lítil stelpa í herbergi liggjandi í gömlu trérúmi og allir veggirnir eru úr viði og hún liggur með lítinn kodda undir höfðinu og mjúkt teppi yfir sér og þú, mamman situr í stól og syngur og út úr munninum hennar kemur gull sem flæðir út um gluggann. Fyrir utan gluggann situr afi Baldur á svartri fötu með rauða skóflu og amma Sirrý á rauðri fötu með gula skóflu og þau eru að byggja sandkastala fyrir mig. Og það er bara svo gott og skemmtilegt..og ég má leika eins og ég vil í kastalanum. Og ég elska alla og allir elska mig. Held hún hafi líka verið uppnumin af því að halda alvöru fjölskylduafmæli í fyrsta skipti í 7 ár....Fjölskyldan skiptir nefninlega miklu máli.
Svo þegar við héldum áfram að syngja.."afi minn og amma mín út á Bakka búa.. og Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan gluggann..þá sagði hún.."Já það er líka úr þessum lögum sem ég man þetta...ég er búin að blanda saman öllum fallegum svefnlögunum okkar og þá sé ég alltaf þessa mynd.
Ég elska samverustundir með börnunum mínum...þau eru svo vitur og falleg og eru alltaf að kenna mér eitthvað mikilvægt. Algjörir englar krakkarnir okkar allra...við skulum alltaf muna eftir að hlusta vel á þau. Þau eru á stundum svo miklu vitrari og tengdari lífinu en við.
Í gegnum þeirra hreinu sálir kemur Guðdómurinn til jarðar og minnir okkur stóra fólkið á hvað er hvað og hvað skiptir mestu máli.
Hversu oft gefum við okkur tíma til að skyggnast inn i þeirra hugarheim þegar við erum að gefa þeim eitthvað? Og skynja hvernig þau taka á móti?
Gefa okkur tíma til að skilja hvað þau eru i raun að upplifa og gefa þeim pláss til að deila því?
Maður er svo oft fastur í sínu eigin að maður gleymir að hlusta vel og fallega. Á hvað aðrir hafa að segja og til málanna að leggja.
Maðurinn er ekki eyland.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 311443
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Falleg frásögn af fallegri stúlku. Innilega til hamingju með morgundaginn. Það var svo gaman að hitta þig og ég er strax farin að hlakka til bloggvinahittings þar sem við getum spjallað meira. Kær kveðja frá Selfossi.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 23:30
Ásdís mín ...sömueiðis!!! Pabbi þinn er fallegur gamall maður og þú bara geislandi kona!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.2.2008 kl. 23:36
Yndisleg frásögn!
Ragnhildur Jónsdóttir, 17.2.2008 kl. 23:52
Mikið er þetta skemmtileg frásögn. Ekki alls fyrir löngu vorum við, ég og dóttir mín einmitt að tala um þessar myndir sem tengjast sögum og ljóðum. Hún sagði mér að þegar ég söng fyrir hana Bíum, bíum bamba ró áður en hún fór að sofa hefði henni alltaf þótt einhver vera á glugganum en þorði ekki að nefna það við mig því hún vissi hvað mér þótti lagið fallegt. Enda segir í textanum: og úti bíður andlit á glugga. Ég var sem sagt að hræða barnið á hverju kvöldi en hafði ekki hugmynd um það.
Ía Jóhannsdóttir, 18.2.2008 kl. 00:00
Fallegt, uuummmmm:-)
Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.2.2008 kl. 00:23
Já ég man eftir að syngja fyrir hana Bíum bíum bambaló.... fyrir utan bíður andlit á glugga..... og hún gat ekki sofnað vegna hugmynda um að það væri einhver að horfa inn um gluggann á hana alla nóttina. Best finnst okkur þó að fara með bænina..
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
Sitji Guðs englar saman í hring
með eilífri blessun sinni
Amen og Góða nótt og sofðu rótt!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.2.2008 kl. 00:29
Til hamingju með dótturina og takk fyrir yndislegan pistil
Ágúst H Bjarnason, 18.2.2008 kl. 06:39
Til hamingju með dúlluna þína í gær! Við vorum með fjölskylduveislu og sungum afmælissönginn nokkrum sinnum og blésum á 13 kerti í tvígang ....
Theodóra verður galdrakona eins og mamma sín
www.zordis.com, 18.2.2008 kl. 09:33
Þetta lýsir svo fallegu sambandi milli móður og dóttur. Takk fyrir að gefa mér þetta yndislega kona.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.2.2008 kl. 09:58
Til hamingju með dúlluna þína fallegur pistil.
Kristín Katla Árnadóttir, 18.2.2008 kl. 14:59
Til hamingju með dömuna og takk fyrir afmælisveisluna í gær
Ef þið bara vissuð hvað það er gott að hafa ykkur hinummegin við lækinn elsku Katrín svo gott að vera búin að fá ykkur heim
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 18.2.2008 kl. 17:44
Börnin eru svo laus við alla spillingu og mengun sem umlykur okkur fullorðna fólkið í hinu daglega lífi.
Þess vegna virka þau oft eins og af öðrum heimi, sem er alveg stórkostlegt fyrir okkur hin að fylgjast með og gea gleymt okkur aðeins í.
Maja Solla (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 17:53
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.2.2008 kl. 18:52
þetta er fallegt, og fallegt og rétt!
Blessi þig fallega kona
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 23:44
Nú er kominn valkostur fyrir þá sem vilja vera lausir við auglýsingar á bloggsíðum sínum. Sjá hér
Marta B Helgadóttir, 19.2.2008 kl. 17:21
til þín og þinna!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.2.2008 kl. 21:29
það er greinilega skáldkona í dótturinni eins og móðurinni
Jóna Á. Gísladóttir, 21.2.2008 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.