19.4.2008 | 16:52
Maddama kerling fröken frú á Listsýningum, útburði Moggans og Gyðju og galdrasýningu...allt á sama deginum.
Var að detta inn úr dyrunum eftir að hafa eytt deginum á útskriftarsýningu Listaháskóla íslands. Ég er alveg heilluð. Það var svo margt að skoða, sjá og upplifa en líklega ágætt að fara aftur þegar það er færra fólk en auðvitað var troðið út úr dyrum og mikil stemming í loftinu. Skapandi, töfrandi andrúmsloft og skrautlegt fólk í stíl við verkin sem þarna voru sýnd.
Ég er auðvitað alltaf í vinnunni og fann þarna tvo unga listamenn sem ætla að koma í þáttinn hjá mér á mánudag í næstu viku. Þau eru bæði mjög skemmtilega þenkjandi og með flottar hugmyndir og skoðanir sem ég held að hlustendur hefðu bæði gagn og gaman af að heyra um. Vitiði það að eftir því sem ég sé meira af unga fólkinu okkar því vonbetri verð ég um framtíðina. Þessi kynslóð er meðvituð, hugmyndarík og skapandi og þorir að fara sínar eigin leiðir og það var einstaklega upplyftandi að eiga samræður við þetta unga fólk í dag.
Já og meðan ég man.
Ég er auðvitað búin að skipta um skoðun um nafn á útvarpsþættinum mínum og hef nú ákveðið að hann skuli heita Maddama kerling fröken frú eftir útvarpsþættinum sem ég var með á Aðalstöðinni. fyrir meira en heilum áratug .
Mér fannst bara rétt að endurvekja hann og endurlífga Maddömuna og bjóða henni að þramma áfram í útvarpsheimum eins og henni einni er lagið og ljóðið.
Ég er kona og mér leyfist að skipta um skoðun þegar mér hentar. Svo er ég líka komin á fimmtugasaldurinn og þá gerir maður frekar það sem konu sýnist og lætur sér í léttu rúmi liggja þó einhverjum finnist eitthvað um eitthvað sem maður segir og gerir..ekki satt??
Núna þegar ég er búin að blogga ætla ég að koma sunnudagsmogganum sem bíður í stöflum hér úti á stétt i vesturbæjarlúgurnar. og svo ætla ég að gera mig fína og fara og sjá Gyðjugjörninginn í Norræna húsinu klukkan átta í kvöld. Unnur Lárusdóttir tónlistarkona og gyðja með meiru og Reynir Katrínarson gyðjuheilari, galdramaður, seiðkarl og listamaður munu þar kalla fram krafta hinna íslensku gyðja og þeim til aðstoðar verður karlakórinn Fjallabræður sem er alveg hreint einstakur. Þið getið hlustað á þau á morgun klukkan 15.00 á útvarpi Sögu en þá verður þátturinn sem var sl mánudag endurtekinn en þau voru einmitt gestir hjá mér þá. Þá getið þið líka hlustað á þorvald Þorsteinsson listamann og rithöfund en hann var einnig gestur í sama þætti.
Er fjólublár ekki bara litur kvöldsins og sumarbleikur varalitur flottur á konu eftir ótrúlega góðan og upplifunar-ríkan dag???
Ég held það.
Góða helgi öll sömul
Þessi fjólubláa hér til hliðar heitir Ísana og varð til á brúðugerðarnámskeiði sem ég tók í skólanum úti fyrir nokkrum árum. Ísana er sérstök vera sem býr í fjöllunum með fuglunum og kemur aðeins til byggða þegar mennirnir þurfa á visku hennar að halda.
Ég hef sagt henni frá ógöngunum sem við höfum ratað í á okkar litlu eyju og hver veit nema hún sjái sér fært að kíkja til okkar og veita leiðsögn úr ringulreið inn í jafnvægi. Ísana ber með sér töfrajurtir í litlum silkipoka og úr þeim sýður hún seið sem magnar upp ævintýri og töfra.
Hún biður um velferð fyrir þig og þína.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Mér finnst flott hjá þér að nota maddömmuna, fannst það alltaf flott.
Til hamingju með allt sem er að koma til þín elsku Katrín, en hvenær eigum við að hittast?
Stöðkveðjur
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2008 kl. 17:01
Ég fór líka og ætla að sjálfsögðu aftur það var svo ofboðslega mikið af fólki þarna. En ég er forvitin, hvaða listamenn þú lokkaðir í þáttinn?
Ragga (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 17:05
Listamaðurinn og listakonan heita Hafsteinn Júlíusson sem ræktar skartgripi og Kristín Eva Ólafsdóttir en hennar verk heillaði mig einstaklega og heitir Ringulreið. Þau verða ekki í Maddömunni núna á mánudaginn heldur þann næsta þar sem þau eru önnum kafin þessa dagana.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.4.2008 kl. 17:21
Já ég skil, ég verð að reyna að muna að hlusta!
Ragga (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 17:53
Gott að endurvekja maddömuna, var einmitt að segja það í gær hversu frábært nafn hefði verið á þættinum þínu í "denn"
Takk fyrir Ísönu
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 19.4.2008 kl. 17:56
Þetta er flott nafn, og þú ert frábær Katrín mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2008 kl. 18:15
Maddömunafnið er flott á þáttinn.
Mikið ertu athafnasöm, jákvæður kraftur í gangi hjá konunni.
Marta B Helgadóttir, 19.4.2008 kl. 18:42
Mér líst vel á nafnabreytinguna, flott hún Ísana þín. Verður þú hjá Guðnýju Svövu á morgun?? ég ætla að koma í bæinn. Gangi þér vel með allt sem er að ske hjá þér. Kær kveðja til þín
Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 21:48
Ágæta Maddama kerling fröken frú. Mikið væri gott ef hægt væri að hlusta á þættina á Sögu á vefnum eftirá. Maður er ekki alltaf tilbúinn við tækið þegar þátturinn er sendur út. Á sögu eru margir góðir þættir sem gaman er að hlusta á. t.d. þátturinn með Sigurði G., og svo auvitað þinn fíni þáttur.
Ágúst H Bjarnason, 19.4.2008 kl. 22:25
Ég ætla að reyna að "fiska upp" þáttinn í endurspilun. Var í útlöndum og missti af honum. En man eftir þínum fínu þáttum á Útvarpi Rót.
Jens Guð, 20.4.2008 kl. 01:28
Jákvaed orka og allt ad smella saman. Til lukku med nafnid, zad er flott, mera zú!
Bestu kvedur inn í fallegan sunnudag!
www.zordis.com, 20.4.2008 kl. 09:24
Þú ert nú meiri orkuboltinn, Katrín Snæhólm! Áfram áfram, Maddamman mín!!!
Hugarfluga, 20.4.2008 kl. 11:03
Ísana virkar seiðmögnuð og heillandi.
Einu sinni var mér gefin svona ,,dúkka" frá Íslandi en það andaði svo vondu frá henni að ég þoldi hana ekki nálægt mér. Ung vinkona mín sem bjó þá hér í Prag var eitt sinn heima og var að dáðst að þessu undraverki svo ég gaf henni gripinn.
Eftir svona mánuð kom ég í heimsókn til hennar og þá sagði hún mér að hún hefði ekki getað haft þetta í húsinu og endaði með því að gefa hana skúrunni. Ég hef oft pælt í því af hverju hvorug okkar fleigði ekki ,,dúkkunni" í ruslið. Einhver undrakraftur lá þarna örugglega á bak við.
Ía Jóhannsdóttir, 20.4.2008 kl. 13:14
Þarf að fara og skoða þessa sýningu.
Steingerður Steinarsdóttir, 20.4.2008 kl. 18:30
Gaman að hitta á þig í dag á sýningunni hennar Guðnýjar Svövu. Mér líst vel á nafnið á þættinum og þátturinn lofar mjög góðu. Ég á eftir að enda á því að fá mér útvarp eða eitthvað, svo ég geti betur hlustað ... Frábær þessi dúkka og greinilega ofurgöldrótt og dularfull
Ragnhildur Jónsdóttir, 20.4.2008 kl. 19:45
Sömuleiðis Ragnhildur mín..
iss þú hlustar bara á netinu meðan þú bloggar. Mjög handhægt. Mission cempleted
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2008 kl. 19:04
Akkuru er ekki hægt að hlusta á "gamla" þætti???
Þessi sýning er án efa glæsileg og frumleg; ætla endilega að sjá hana.
Takk fyrir skemmtilegar færslu, enn og aftur.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.4.2008 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.