Færsluflokkur: Bloggar
Og hlakka ti að sjá hvar þessi hjólatúr endar. Alveg klár í slaginn með hatt og hálsslæðu og í bláum munstróttum kjól. Framhjá trjánum mínum burt burt.....hvar endar þessi stígur eiginlega?
Já í litla bænum þar sem allir vita allt um alla. Sitja við árbakkann og horfa á gulu húsin og velta fyrir sér lífi íbúanna. Rabba svo saman um sögurnar sem verða til í kolli þeirra. Svo sem ekkert annað við að vera í svona hljóðu þorpi. Getgátur geta verið spennandi gátur þó þær eigi ekki við rök að styðjast. Hver þarf á rökum að halda í veröld sem tifar án nokkurra sýnilegra raka?? Skáldskapurinn ræður ríkjum og öllum er sama um það. Bara ef þær kitla eitthvað sem er að sofna.
Svartur köttur situr um bráð sína í hjátrúarfullum stellingum. Ekki láta hann sleppa og hlaupa í veg fyrir þig. Það boðar eigi gott í þessu litla þorpi. Sögur og sagnir verða að fá að lifa meðal manna sem hafa lítið við að vera. Kötturinn sá svarti hefur sín níu líf og nærist vel..en sögurnar hafa níuhundruð líf og umbreyta raunveruleika allra í hinu þögla þorpi. Það nærir íbúana líka vel.
Píanótónlistin lyftir andanum og minnir alla á að hlusta vel og njóta þess sem er.
Hvílast, anda og leyfa hinu að vera. Þurfa samt aðeins að kíkja á glugga til að vera vissir um að allir séu að lifa sínum níu lífum í takt. Við hinar níuhundruð sögur svo allt sé rétt.
Segðu mér sögu úr þínu Þorpi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.9.2007 | 21:18
Í einu laufblaði liggja margar leiðir....
Í hinu smæsta er hið stærsta.
Hvað er það pínulitla sem kallar...sem þú hvorki sérð né heyrir
en hefur kannski stærstu skilaboðin fram að færa???
Ekki horfa framhjá því.
Þessi litla rödd hið innra sem er að drukkna í ærandi hávaða nútímans.
Hlustaðu!!!!
Hvísl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
12.9.2007 | 18:32
Lífið er ekki bara fiskur og franskar
Í mér býr leyndarmál sem ég er alveg að farast úr spenningi yfir. Bloggið sem ég bloggaði í gær um hvítu dúfuna var greinilega svona óafvitandi forspá því í dag tala ég nýtt tungumál og líka fólkið í kringum mig.
Hvað gerist næstu daga sker svo úr um það hvort ég geti sagt ykkur frá þessu spennandi dæmi. Verð að líma fyrir munninn á mér og fara í lopavettlinga svo ég missi þetta ekki út úr mér. Eina sem ég get sagt núna er...Life is not only Fich and Chips.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
12.9.2007 | 00:28
Og hvít flýgur hún...
...út í rauðan nátthiminn sem bíður!
Dúfan sem kunni ekki mannamál.
Helsærð á stéli
en á vængjum sem sögðu allt sem segja þurfti.
Á morgun verður til nýtt tungumál.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.9.2007 | 21:39
Frægðarferðir skóparanna á ströndu og dýrmætur froskadraumur!
Mikið var gaman hjá okkur vinunum um helgina. Fórum að týna steina á fallegri ströndu þar sem ritari þessarar færslu hefur fundið sér framtíðardraum til að dreyma. Sá draumur er um lítið cottage sem stendur á kletti með útsýni yfir haf, himinn og sjö skjannahvítar systur.
Sjáið hvernig rétt glyttir í þau húsin þarna í fjarskanum, hinu meginn við flóann. "Þar gæti verið gaman fyrir okkur að búa" sagði ég við skópörin en þau létu sem þau heyrðu ekki í mér og grænu stígvélin duttu á hlið af einskærri undrun yfir svona hugsun húsmóður. "Megum við ekki bara fara og leika okkur hér á ströndinni á meðan þú lætur þig dreyma" spurðu svörtu skólaskórnir sem eru orðnir ansi snjáðir eftir langa skólagöngu. "Jú endilega" sagði ég og hallaði mér bara og naut veðurblíðunnar og dreymdi um storma og öldur frussandi fyrir neðan litla húsið mitt á klettinum.
Skópörin þrömmuð eftir steinaströndinni framhjá einni af skjannahvítu klettasystrunum. Þær standa þarna tígulegar sjö saman og þykja einstaklega fagrar og tígulegar.
Stöldruðu við til að njóta útsýnisins yfir hafið bláa hafið og létu hugann bera sig hálfa leið yfir hnöttinn til fjarlægra ævintýralanda sem eru þarna hinu megin við bleytuna.
Söfnuðu fallegum steinum og tróðu á sig eins miklu grjóti og þau gátu borið. Grænu stígvélin voru einum of gráðug og voru hreinlega afvelta og komust hvorki lönd né strönd!! "Það er alltaf gott að kunna sér hóf" sögðu inniskórnir. !Líka þar sem eitthvað er ókeypis eins og steinarnir hér. Reyndar væri rétt að segja að við öll sem göngum á þessari jörðu eigum þessa steina saman". Inniskórnir voru mikið fyrir að segja eitthvað vitrænt en voru svo sjálfir troðfullir af ókeypis steinunum.
Mary Poppins fór að vaða í drullu í flæðarmálinu. Það er mjög ólíkt henni en stundum verða jafnvel fínar frúr að skvetta smá úr hælunum og láta eins og lífið sé eitthvað meira en alvörugefni og afturhaldssemi. Hún meira að segja renndi niður rennilásnum á öðrum skónum svo það sá í blátt fóðrið. Og eins og það væri ekki nægur léttleiki á einum degi losaði hún um brúnu silkireimarnar og brosti stríðnislega. Og þó hún væri að ganga í leðju mátti vel sjá að göngulagið var mun djarfara en hennar er von eða vísa. Það er eitthvað frelsandi við sjávarsíðuna!!
Grænu stígvélin óðu ógrenjandi með rauðu skóna út í miðjan poll og voru mjög hughraust miðað við hvað þau eru miklar skræfur svona dagsdaglega. Voru líka svolítið upp með sér að fá að hafa rauðu lífsreyndu spariskóna í sér. Fundu til sín og að líf og hælbönd hinna rauðu voru í raun í þeirra skóbotni.
Svörtu snjáðu skólaskónum fannst bara fínt að hafa útsýni yfir allt og viðurkenndu ekki fyrir sitt litla líf að þau væru smeyk við að fara inn í þetta furðulega fjöruborð þar sem leyndust ýmsar hættur.
Gott að hafa Group HUG áður en haldið var heim á leið eftir skemmtilegan dag á ströndinni.
Á heimleiðinni hittu þau Kóerubúa sem hlógu og skríktu af gleði yfir að hitta svona fagran hóp af skóm.
Þau settust í grasið og spjölluðu heilmikið. Kóreubúarnir s0gðust vera hér til að læra ensku og sögðu skópörunum skrítnar sögur frá fjarlægum heimkynnum sínum. Að ef kona sem vildi eignast barn en gæti það ekki, rækist á aðra konu sem hefði dreymt froska væri það gæfumerki. Sérstaklega ef draumakonan væri tilbúin að selja hinni barnlausu konu froskadrauminn. Það þýddi að sú barnlaus myndi þá fljótlega verða með barni þar sem froskadraumar þykja mikil frjósemistákn.
Þetta fannst nú skópörunum merkilegt. "Og hvað þarf að borga fyrir svona froskadrauma"? spurðu skópörin. "Spurjið húsmóður ykkar og eiganda sem dreymir um hús á hvítum kletti" sögðu glöðu kóreubúarnir. "Okkur hefur verið sagt að hún hafi einmitt selt einn slíkan fyrir nokkrum árum".
Þau kvöddu svo Kóerubúana því þurftu að fara og læra meiri ensku áður en þau færu heim til sín.
í lok dags var gott að horfa yfir vatnið og njóta listrænna forma ljóss og skugga.
Gangið vel á skónum ykkar.
Skór eru nebbla líka ...ehh fólk???
Bloggar | Breytt 11.9.2007 kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
9.9.2007 | 21:10
Of syfjuð til að blogga....

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
8.9.2007 | 23:14
Á mínum tíma er 9.9.9.......að sumra mati mjög merkileg tímamót!
Svo ég bíð spennt eftir hvað muni gerast!!!! Og ég er farin í ullarsokkana og komin með heitt kakó á brúsa rétt til að vera viðbúin. Ég er sko einum klukkutíma á undan ykkur í tíma. Hef alltaf verið framtíðarmanneskja
So I am ready.
Bring it on!!
Þetta á að vera eitthvað merkilegt.
Hringið í mig í fyrramálið og látið mig vita af hverju ég missti!!!
Hér eru nokkrir stepping stones fyrir ykkur til að tippla á í gegnum 9.9.9.
Farin að sofa á mitt græna!
Get bara ekki haldið mér vakandi lengur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
8.9.2007 | 10:36
Sjö hvítar systur bjóða mér heim og ég er þeim ævinlega þakklát.
Ég þarf að fara til strandar og hitta þar Seven sisters...sem eru 7 unaðslegir hvítir klettar sem skaga út í hafið. Þar á ströndinni eru töfrasteinar sem endurspegla liti og munstur í þakklætiskortunum mínum. Listagalleríið í bænum mínum vill fá þau í sölu svo nú verð ég að fara og týna fleiri svona óskasteina sem eiga fylgja þessum kortum.
Fyrst gerði ég kortið og svo fann ég steina á þessari hvítu ströndu og bar þá heim í húfu með bleiku silkifóðri. Þegar ég svo sá kortið og steinana saman sá ég að hver steinn átti sér speglun í kortinu og vissi að þau vildu gera eitthvað saman. Í kortið skrifar maður þakklæti sitt fyrir það góða sem í lífi manns er og hefur svo steininn í vasanum til að strjúka og staðfesta með sjálfum sér allt sem gerist daglega og maður getur verið þakklátur fyrir. Svona eins og the gratidude rock í the Secret. Að vera alltaf að segja Takk og takk og aftur takk!
Þau fara saman í sölu eftir helgina og með verður lítil hugleiðing sem ég ætla að skrifa í kvöld.
Ég er og verð ævinlega þakklát fyrir að hafa ímyndunarafl og að fá hugmyndir.
Hvað væri kona án þess???
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
7.9.2007 | 22:26
Konur taka sitt næsta skref.....
Og hálf veröldin bíður.
Var á svo frábærri myndlistarsýningu þar sem ungur listamaður sýndi myndirnar sínar og þær voru svo innspieraðar af íslenskri náttúru. Hann er enskur en var á íslandi um tíma. Það var interesting að heyra hvað hafði svona mikil áhrif á hann frá heimalandinu.
Vantar ekki eitthvað mikilvægt inn í þessa veröld??
Var að horfa á fréttirnar sem maður á náttla ekki að gera ef maður vill halda geðheilsu.....en það er allt að verða vitlaust. Börn að drepa börn...heimskingjar að stjórna og taka ákvarðanir, venjulegt fólk er leiksoppar furðulegra örlagavalda og ekkert ...ég meina ekkert meikar sense!!!!Hversu lengi þurfum við að horfa uppá þetta rugl???
Æ minn haus er ekki að ná utan um þessa vitleysu.
Á ekkert að fara að bjóða uppá ferðir til annarra pláneta.
Ég nenni þessu ekki meir.
Alger bilun!
Ó fagra veröld hvað varð um þig???
Verðum við ekki bara að taka til baka kraftinn okkar og skýra hugsun???
Og hætta að hlusta á framámenn sem hafa ekki vitund né visku til að stýra neinu nema eigin hagsmunum? Sjá ekki út úr sínum eigin heimi???
Eru ekki fréttir niðurdrepandi? Hvað varð um allar fréttirnar af fólkinu sem er að gera gott og vel í þessum heimi?
Ég er alltaf að hitta fólk sem er frábært og er að gera merkilega hluti. Skammist ykkar fjölmiðlar að halda þessari heimsmynd að fólki sem gerir ekkert nema draga niður og búa til ótta. Það hjálpar ekki...Auðvitað þurfum við að vita hvað er að gerast..en við verðum líka að vita ALLT sem er að gerast. Líka um ALLT það góða og það sem gefur von og uppörvun. Fréttamenn sem trúa því að einungis hörmungar séu fréttaefni eru ekki starfi sínu vaxnir. Þeir eru vatn á myllu hins ómögulega og útiloka alla hina góðu möguleika. Ef fólk hefur enga von hefur það ekki kraft né dug. Og veröld sem skortir það er búin að vera.
Verum góð og hjálpumst að....leysum vandamálin og okkur sjálf úr viðjum óttans.
Verum heil!
Ég verð bara stundum svo þreytt á þessu öllu.
Hvar ertu viska
sem færir á diska
mannkyns
eitthvað ætt?
Sko þegar maður varpar út spurningum koma svörin alltaf á einhvern hátt.
Skoðið bara bloggið hjá Prakkara og hlustið á Eckhart Tolle tala um allt þetta þar.
Alveg meiriháttar.
Bloggar | Breytt 8.9.2007 kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.9.2007 | 09:59
I am so hot....
Og ég er ekki að ljúga neinu.
I am hot.
Eftir skógargönguna áðan er mér svo heitt að ég er hreinlega sveitt. Það er svo frábært veðrið tuttuguogfimmmstiga hiti og sól. Ljúf blíða bara og framundan skemmtilegur dagur. "Indian summer"
Ætlum að bruna til Lingfield og kíkja á lítinn stað sem ber heitið A LITTLE SANCTUARY og skoða hvað þar fer fram og jafnvel fá að setja nýju bæklingana okkar þar. Get kannski kennt þeim eitthvað um Hinar Kynþokkafullu Móðurgyðjur sem eru að taka yfir á jörðinni núna..ég er svo ein af þeim! HOT!!!
Svo er ég að fara á opnun á myndlistarsýningu klukkan 6 hjá syni vinkonu minnar honum Dominic. Verð að muna að fara í listaspírubúninginn og setja á mig snobbleraugun en samt að vera í einhverju flegnu. Listamenn hreinlega standast ekki gáfur og kynþokka í sömu manneskjunni. Banvæn blanda.
Familían fer á meðan á slúttið hjá krikketinu þar sem foreldrar keppa við strákana..Það er alltaf mjög skemmtilegt að sjá pabbana sem hafa staðið á hliðarlínunni og argað og gargað til sona sinna hernig þeir eiga að spila, hlaupa, grípa og slá..reyna að fara eftir eign fyrirmælum þegar á völlinn er komið. Þá sést það mjög skýrt að þeir sem æpa mest geta ekkert endilega best.
Það hlóp ein risakönguló undan bókaskápnum í gærkveldi. Ég er vissum að þær skilja hvað við segjum. Um leið og einhver segir.."Eughhh..kónguló á gólfinu" þá taka þær á sprett og upphefst þá harðsvíraður eltingarleikur með glasið og indverska matarbæklinginn til að ná ófreskjunum. Alveg sama hvort við tölum íslensku eða ensku.."Oeugghhh.....there is a spider on the floor" og þær taka á sprett.
So nune mine venner skal jeg spige dansk and se and Hör if dem kungelurer skiljer hvad vid snakker. Og þar sem ég er sannfærð um að þær tala ekki dönsku fatta þær ekkert þegar við segjum.."heyjjj....kungeler po golvet" og standa bara grafkyrrar meðan við setjum yfir þær glasið og undir það indverska matarbæklinginn og skutlum þeim yfir í garð nágrannans.
Ég hef líka grun um að þær viti að ég sé að byrja í leshringnum hjá Mörtu Smörtu og co og að ég muni halda mig meira í kringum bókaskápinn á næstunni meðan ég les Lífið er annarstaðar eftir Milan Kundera í stað þess að hanga yfir sjónvarpinu. Og þær hafa heyrt mig æpa af gleði þegar bókin kom með póstinum frá Gurrí bloggvinkou og ákveðið að færa sig um set og gera árásir sínar á mig þaðan. Þessvegna er núna bara nauðsynlegt að tala dönsku svo þær skilji ekkert .
Og ég fer létt með það enda með stúdentspróf í dönsku síðan 19hundruðsjötíu og eitthvað.
Já það er sem ég segi...Jeg er hot.
Vensamlegest skriver dine hugsener pa dansk here for neden
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari