Færsluflokkur: Bloggar
6.9.2007 | 10:27
Það eru eins og kampavínsbubblur í hjartanu á mér
Segi það satt það bubblar í hjartanu á mér. Veit ekki hvort það stafar af einskærri hamingju og gleði eða hvort ég ætti að fá lækni til að hlusta hvort það sé nokkuð komið gat á mitt góða hjarta. Ég meina það eru nú takmörk fyrir hvað eitt hjarta getur þolað. Ekki það að tilfinningarnar mínar séu að setja óhóflegt álag á hjartað en það gera heimsfréttirnar. Enda er ég hætt að horfa og hlusta. Sit frekar og hugleiði ljós í alla króka og kima og einbeiti mér að því sem ég vil sjá meira af.....eins og það sé ekki nægileg athyglin á ömurlegheitunum og mannvonskunni?? Já það er bara betra fyrir mitt götótta hjarta að rýna í ljósið um stund.
Ég er farin út að gróðursetja Lífsins tré með þér.
Lífsins tré á háum hól, í fjarska sé ég bjarta morgunsól.
Og ég hugsa með mér "Þetta er yndisleg jörð"
Aftur finn ég fyrir kampavínsbubblum í hjartanu.
Best ég panti mér tíma hjá Dr Patel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
5.9.2007 | 22:12
Back to normal....Sound of Music!
Tónlist hússins leikin fyrir heimaganga.
Einu sinni stúderaði ég áhrif tónlistar á fólk,flugur og plöntur.
Klassísk tónlist hafði þau áhrif á appelsínur þar sem þær voru ræktaðar með undirspilin að það var 25% meira c vítamín í þeim sem fengu klassíska tónlist að hlusta á. Kýr mjólkuðu líka betur með klassískri tónlist.
Blóm brugðust mjög misjafnlega við mismunandi tónlist. Flest þeirra drápust við síendurteknum rokktónum en besta tónlistin fyrir þau til vaxtar var barrokk tónlist og indverskur shítar. Það átti við um öll blóm nema Afrísku Liljuna. Hún dafnaði undir allri tónlist. Algjör töffari sú jurt!!
Tónskáld sem samdi undurfagra tóna undir þakskeggi tók eftir að lítil könguló kom alltaf niður í þræði og hlustaði best á millikaflann í tónverkinu sem hann var að semja. Lét sig svo hverfa eftir þá hlustun.
Hvaða tónlist finnst þér best að hlusta á???
Og af hverju?
Hvað gerir hún fyrir þig?
Bloggar | Breytt 6.9.2007 kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.9.2007 | 18:45
Eftir hverju eruð þið að bíða...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2007 | 22:08
Bara svona dagur
Kláraði að lesa bókina um nornina frá Portobello eftir Goelho og bíð núna spennt eftir að Kundera komi í pósti frá íslandi svo ég geti byrjað að lesa með leshringnum mínum hjá Mörtu. Er með óskiljanlegt æðiber í rassinum þessa dagana og uppfull af hugmyndum að flytja eitthvert langt í burtu. Þar sem lyktin er öðruvísi og bragðið af matnum framandi. Svo augu mín sjái eitthvað nýtt og heilinn geti tekið inn annarskonar skilning, eyrun heyrt skringileg hljóð og orð. Og ég er óþreyjufull og get ekki beðið eftir að fara af stað. Er samt ekkert að fara neitt. Hef ekki hugmynd um hvar þessi staður er sem togar svona í mig núna. Ekki græna glóru. Kannski þarf ég bara að lita á mér hárið með nýjum lit eða fara að ganga í fjólubláu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
3.9.2007 | 11:54
Plágur og frægar pempíur
Var að lesa í blaðinu að nú væri geitungaplága að ganga yfir, sú versta í yfir 25 ár. Vegna votviðrisins sem hér gekk yfir í sumar og "indian summer" sem þýðir meiri hita en vanalega núna í ágúst hafa orðið til skilyrði fyrir plágu. Hugsið ykkur svona plágur eins og talað er um í biblíunni þegar óaragardýr koma fljúgandi í hópum, stærri, grimmari og reiðari en nokkru sinni. Og tilbúnir í að stinga og stinga hvar sem þeir komast. Eins og það sé ekki nóg að köngulærnar séu stærri og fljótari?? Og voruð þið búin að frétta um stærsta köngulóarvef sem fundist hefur? Yfir 190 metra breiður. Það er einhvernveginn að verða meira af öllu og allt að verða stærra í heiminum núna. Nema kannski það sem maður vildi sjá meira af .eins og umburðarlyndi, viska, samkennd og skilningur. Samfélög sem hafa þá grunnhugsun að sjá vel um sitt fólk..sérstaklega þá sem minna mega sín.
Ég er ekkert alvarlega hrædd við geitunga en mér líst illa á plágur af öllum sortum. Og mér líka ekki svona hugsanaplágur sem éta upp alla skynsemi og bræðralag og leyfa því að viðgangast á litlum eyjum að þeir sem minnst mega sín, mega mest eiga sig. Það er bara alveg óttalegt að lesa um hvað við erum ekki að skilja hvað skiptir mestu máli. Lesið bara bloggið hennar Þórdísar Tinnu.
Þess má svo geta fyrst við erum að tala um ótta að Johnny Depp fallegasti karlmaður og hæfileikaríkasti leikari á jörðinni er skíthræddur við trúða...honum finnst alltaf eins og eitthvað ógnvænlegt búi á bak við málað andlitið og gervibrosið.
Ætli hann sé þá ekki líka hræddur við flestar Hollywoodstjörnurnar??
Mér hefði nú þótt smartara fyrir svona flottan gæja að vera hræddur við eitthvað stórfenglegra en saklausa trúða. Sjóræningja t.d.
Nicole Kidman sem er líka falleg, fræg og hæfileikarík leikkona er hins vegar skíthrædd við fiðrildi.
Fiðrildi??? Hvernig er hægt að vera hræddur við fiðrildi??
Þetta fræga fólk eru bara pempíur af verstu sort.
Og Ophra Winfrey sjónvarpsþáttastjarna er brjálæðislega hrædd við...TYGGJÓ!!!
Til að enda þessa bloggfærslu á jákvæðum nótum þá hefur stærsti demantur í heimi fundist. Hann fannst í Afríku og er metinn á svo mikla peninga að það eru ekki til nægilega mörg núll til að setja fyrir aftan þá tölu. Þegar ég las um þennan merka fund fór gleðibylgja um hjarta mitt og ég hugsaði með sjálfri mér hversu frábært þetta væri fyrir afríkubúa. Nú hefðu þeir efni á að byggja skóla og spítala, fá lyf og mat og hreinlega bara fara að laga til í þessari fallegu heimsálfu sinni og jafna kjörin og bæta ógnarástandið sem víða ríkir. Ég hreinlega gleymdi mér í dagdraumi um hvað hægt væri að gera..en svo mundi ég allt í einu eftir að svona gerast ekki hlutirnir.
Demanturinn er núna geymdur í bankahólfi meðan eigendurnir eru að hugsa um hvað þeir ætla að gera. Kannski að fjárfesta í einhverju sniðugu. Hlutabréfum eða spariskírteinum Ríkissjóðs.
Einhverju allt öðru en þvi sem kemur fólkinu þeirra til góða. Því það er þar eins og hér að þeir sem minnst mega sín gleymast alltaf. Þannig að jákvæða fréttin dó sjálfri sér þegar ég mundi að það er bara eitt sem stjórnar í kringum svona demanta og olíulindir.
Græðgi... ekki góðvild.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
3.9.2007 | 00:43
Að ganga um lífið á opnum skóm
Er búin að sitja með lappirnar á mér undir mér í sófanum og vona að ég sjái ekki einhverja hreyfingu útundan mér. Og er algerlega örugg eins og er. Engin risakönguló hlaupið yfir gólfið. Fór í kaffi til vinar í næsta húsi sem hefur sama vandamál. Risaköngulær hlaupandi yrir gólfið!!!
Þar með get ég útilokað að þetta sé einhver persónuleg árás hinna langfættu og búttuðu köngulóa inn á mitt heimili til að gera mér skrekk. ....þær eru allsstaðar!!!!
En svona til vonar og vara er ég í skónum. Þeir gefa manni smá öryggi...eins og maður þurfi þá ekki að snerta jörðina meðan maður er berfættur og varnarlaus.
Get þá trampað á einni ef hún sýnir sig núna þar sem eiginmannshetjan er ekki í húsi.
En frá köngulóm yfir í annað merkilegra.
Skórnir.
Skósagan hefur fengið góð viðbrögð og ég er núna á fullu að taka fleiri myndir og setja saman söguna um þá.
Ekkert smá merkilegt hvað svona skópör fá mikla athygli. Það er sem ég segi...Skórnir skapa söguna.
Hverjir eru þínir uppáhaldsskór og hvers vegna???
Á hvernig skóm gengur þú í gegnum lífið??
Annars er lífið bara einfalt.
Það er um opnun.
Þú opnir þig og ég mig. Hafa allt galopið og hætta að felast.
Á einhverjum stað erum við öll eins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2.9.2007 | 20:19
Orðagjálfur um kvöld
Viltu eiga við mig orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð orð og orð . Þú sem allt veist. Um orð.
Bloggar | Breytt 3.9.2007 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
2.9.2007 | 00:39
Mitt brjálæðislega djamm um miðja nótt
Nenni ekki að hugsa meira um köngulær...sit hér og djamma á laugardagskvöldi. Mitt helgardjamm er að fara alltaf rúntinn á Rás 1. Er núna að hlusta á Kvöldgesti Jónasar Jónassonar þar sem vinkona mín Unnur Lárusdóttir Gyðjusöngkona er í skemmtilegu viðtali. Hún samdi einu sinni fyrir mig lag við ljóð sem var partur af verki sem ég flutti og hún gerði það sko með glans. Svo þarf ég líka að hlusta á Óskastundir....gömlu íslensku lögin. Og veðurfréttir um súld og sunnangolu austan heiða.
Ef þetta er ekki almennilegt djamm þá veit ég ekki hvað.
Nóttin líður
og hún bíður
með þér.
Og lokalagið í þættinum sem ég er að hluta á akkúrat núna í Kvöldgestir
er tónlistin mín uppáhalds.
Bliss.
Diskurinn sem ég keypti þegar ég fór að sjá
Neale Donald Walsh í Birmingham í vor.
One hundred thousand angels
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
1.9.2007 | 21:55
Maður á að vera góður við öll dýr...líka köngulær
Bara leyfa ykkur að fylgjast með risaköngulóarfaraldrinum hér. Núna rétt áðan hljóp enn ein yfir gólfið. Þær koma alltaf undan sjónvarpinu og ég verð enn og aftur að standa uppi í sófa til að verkstýra því hvernig þær eru fangaðar. Ég er samt alveg stóískt róleg..ég meina ég arga hvorki né garga..bara hypja mig hratt og vel uppí sófa og læt hlutina gerast þaðan. Sest svo rólega þegar ég veit að köngulóin er örugglega komin í garð nágrannans. Mér dettur ekki í hug að drepa þær..það boðar ekkert gott en vá hvað ég hugsa stundum um að.....óprenthæft!!!
Ég hef samt smá áhyggjur af þessari ró minni. Hvar eru öskrin og tryllingurinn sem heltóku mig hér áður fyrr...eru þau kannski bara að safnast upp innra með mér og svo einn góðan veðurdag þegar ég stend við tannkremshilluna í súpermarkaðinum þá bara brestur stiflan og ég arga og garga..hoppa og reyti hár mitt í óviðráðanlegum köngulóartryllingi??? Og hvað í ósköpunum eru þær að gera þarna undir sjónvarpshillunni??
Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að kíkja þar undir.
Er bara í skónum inni.
Ohhhh..best að setja inn mynd sem lætur mig gleyma
að ég sé heima
með áttfættum skrímslum sem sitja um líf mitt.
Ef þær koma aftur og ég sit hér í sakleysi mínu
set ég bara fyrir mig hendina og segi.."Talk to the hand
and leave me alone!!
Innri ró
Innri ró
Innri ró og friður
sé með yður
sagði Risaköngulóin sem
sat í hárinu á mér og brosti.
Hér er ein rosaleg saga sem ég lenti einu sinni í...Varúð ekki fyrir viðkvæma!!http://katrinsnaeholm.blog.is/blog/katrinsnaeholm/entry/110510
Bloggar | Breytt 2.9.2007 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.9.2007 | 17:18
Heft peningastreymi út af skítugum ofni og opinni klósettsetu. Dauðþreytt en alsæl húsmóðir.
Hrikalegt eldhúsið hjá mér í dag eftir að hafa steikt beikonið, spælt eggin og kreist allan þennan ávaxtasafa. Ég er bara svo heppin að kallinn minn er svo hjálpsamur og skilningsríkur þegar mér fallast hendur yfir húsmóðurstörfunum. Þá tekur hann um axlir mér og telur í mig kjarkinn til að halda áfram. Að ég sé einmitt svo flink í öllu svona og ætti að vera þakklát fyrir að hafa einhverja hæfileika. Það séu nú ekki allar konur svo heppnar svo ég varð glöð og byrjaði á fullu að þrífa.
Og fyrst ég var byrjuð ákvað ég að þrífa bakaraofninn líka. Það er sko verk sem ég fresta eins lengi og ég kemst upp með. En svo sagði einhver kona í útvarpinu einu sinni að ef maður þrifi ekki ofninn vel og vandlega myndi maður verða blankur eða peningastreymið snarminnka til manns. Ég bara þorði ekki öðru en að skrúbba og skrúbba ofninn. Rosalegan tíma og krafta þarf í það ansans verkefni. Var reyndar sniðug og spreyjaði einhverju töfraefni á allar grindurnar og henti þeim svo í uppþvottavélina og bíð núna spennt eftir árangrinum. Kallinn er svo yndæll. Kallar fram hvatningarorð í hverju hléi í fótboltanum og brosir uppörvandi til mín þegar hann kemur og nær sér í meiri bjór. Það er sko munur að vera vel giftur. Gvöð..svo mundi ég eftir öðru sem maður getur sparað sér peminga á...LOKA klósettsetunni. Ef hún er alltaf opin fjúka allir peningar í burtu. Feng shui fræðin. Ég hentist upp á loft og viti menn! Setan uppi!!! Er það nema von að reikningarnir hrúgist upp. Ég vona að hún detti á sprellann á þessum herramönnum sem hér búa svo þeir muni eftir að setja hana niður sjálfir næst. Notaði tímann vel og þreif klóið í leiðinni svo nú er það glansandi fínt.
Já svona er nú lífið gott á laugardögum. Ég get ekki beðið eftir að komast í bankann á mánudaginn og gá hvað ég græddi á öllum þessum þrifum. Bæði ofninn tandurhreinn og klósettsetan niðri. Ég límdi hana niður með galdragripi bara svona til að fyrirbyggja frekari blankheit. Sé fyrir mér feitan bankareikning og hef lofað sjálfri mér að þrífa ofninn daglega núna og taka ekkert límið af klósettsetunni. Við getum bara migið í koppa eins og fólk gerði hérna áður fyrr. Erum ekkert of góð til þess.
Ahhh...ég var að tékka á skúffunum og grindunum í uppþvottavélinni. Tandurhreint og glimrandi skínandi hreint allt saman. Núna tekst þetta hjá mér. Núna getur ekkert komið í veg fyrir að ég verði milljónerakona. Æ ég er svolítið þreytt eftir öll lætin og skrúbbin og ætla aðeins að leggja mig og muna að biðja til Guðs í leiðinni að mér verði fyrirgefin öll lygin sem ég er búin að ljúga upp á minn betri helming í þessum pisitli.
Amen.
Ég bara varð að setja inn gamla færslu svo ég færi ekki að blogga um minn raunverulega dag eins og hann var...jeminn eini hvað ég get sundum bara ekki skilið það sem sagt er við mig...haldiði ekki að ég hafi bara mætt á....jussumía. Segi frá því síðar þegar ég er búin að jafna mig smá. Ég hefði betur verið heima hjá mér að þrífa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari