Leita í fréttum mbl.is

Fiðrildakonur og förukerlingar

fiðrildakona

Ég er loksins að umbreytast og breytast úr lirfu í fiðrildi..jehey!!!!!

Hitti rosalega merkilega konu í dag sem þurfti einu sinni að selja húsið sitt og flýja vegna ágangs fólks sem kom langar leiðir yfir höf og lönd til að fá spádóma hjá henni. Svona kerla sem sér í gegnum holt og hæðir. Og hún sagði mér svolítið sem staðfesti ýmislegt fyrir mér sem ég hafði svona vitað með sjálfri mér. Það sama og gamli indverjinn sá sem ég hitti einu sinni í London og svo kínverji sem var lófalesari. Það fór bara um mig smá hrollur...bæði svona spúkíhrollur og líka gleðihrollur. Hvað okkur fór á milli verð ég að eiga með sjálfri mér en aðal niðurstaðan er að ég get hætt að vera lirfa og get núna farið að breiða úr fiðrildavængjunum mínum. Verið fiðrildakona. Það er nú ekki slæmt hlutverk. Kannski það hafi eitthvað með drauminn að gera um daginn þar sem mig dreymdi að ég væri að læra að fljúga? Ég er líka bara orðin hundþreytt á því að geta ekki breitt vel úr mér. Agalegt að húka svona aðþrengdur í einhverri púpu og sjá ekki einu sinni út. Núna fæ ég útsýni og ferðaleyfi. Meiriháttar. Hlakka til að hitta þessa sérstöku konu aftur. Við vorum að þrífa skítugt eldhús saman í dag. Svona liggja stundum leiðir saman á skemmtilegum stöðum.

Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan gluggann..tra la la.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

En æðislegt, mér hefur nú alltaf fundist þú fljúga, krúttið mitt, en líklega munu vængirnir stækka svo um munar!!! Gaman að hitta svona alvörunornir! Spennt að fylgjast með.

Guðríður Haraldsdóttir, 20.2.2007 kl. 21:57

2 Smámynd: www.zordis.com

En sætt!    Bráðum hitti ég svona konu og það verður vonandi gaman.  Er ekki lífið undursamlegt!

www.zordis.com, 20.2.2007 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband