Leita í fréttum mbl.is

Hið litaða líf og flott sólgleraugu!

fiðrildi

Lífið er svo flott á litinn.

Man eftir einum manni sem kom í viðtal á Aðalstöðina fyrir mörgum árum. Hann kom vikulega til að ræða ákveðið mál og það sem vakti athygli mína og kátínu var að hann kom alltaf með mismunandi lituð sólgleraugu. Einn daginn kom hann með appelsínugul sólgleraugu, annan daginn með blá, stundum rauð og stundum gul eða græn. Sagði að þetta væri hans leið til að horfa á heiminn í gegnum mismunandi liti og kæmi honum alltaf í gott skap. Og hann var alltaf glaður og kátur og bjartsýnn. Hló mikið og var ekkert að taka lífinu af of mikilli alvöru..hvað þá sjálfum sér.

Hafiði pælt í því að við erum kannski bara alltaf að sjá í gegnum okkar lit hvernig lífið er? Og svo er einhver hinum megin við borðið að reyna að troða sínum lit í þín augu? Skilur svo ekkert í að þið séuð aldrei sammála? Kannski erum við öll með lituð sólgleraugu sem bera í sér litina sem mótuðu okkur í gegnum reynslu, persónulega upplifun, menntun, menningu og bara öllu öðru sem hefur bara komið fyrir þig. Að það sé hreinlega enginn annar sem eigi nákvæmlega eins lituð sólgleraugu og þú?

Vhoaaa...ætli það þýði að við séum að lifa 6 billjónir raunveruleika..þar sem í hverjum þeirra er einn aðalleikari. Þú? Ef það væri svoleiðis getur maður svo sem skilið að fólk sé ekki að koma sér saman um fullt af hlutum. Vonandi er þá eitthvert svið þarna á bak við þar sem leyfi er gefið fyrir að taka niður lituðu sólgleraugun og allir geta séð hvernig allt er í raun.  Það eru nefninlega allir litir í ljósinu. Er  það ekki spennandi?

fíll með sólgleraugu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vonandi fara sem flestir að sjá allt litrófið.

Svava frá Strandbergi , 21.2.2007 kl. 12:50

2 Smámynd: halkatla

það er skerí að spá í hvernig heimurinn liti út ef við hefðum bara svarthvíta sjón einsog sumar tegundir, úff hehe, litirnir koma okkur í gott skap

mikið rétt það sem þú segir um blæbrigði mannlífssins, þau er ca 6 billjón talsins. 

halkatla, 21.2.2007 kl. 12:55

3 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Suma dreymir bara í svart/hvítu. Aumingja þeir!

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 21.2.2007 kl. 13:44

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Litir, litir, litir!!! Elska liti! Þegar ég var lítil var mér skammtaður uppáhaldslitur. Mía systir átti þann gula, Hilda rauða, Gummi bróðir græna og ég fékk þá þann bláa! Man ekki hvernig þetta gerðist en ég fékk allt í bláu þangað til mér þótti nóg um. Það er svo gaman að vera orðin fullorðin og geta átt ALLA liti sem uppáhaldsliti!

Sammála þér, lífið er svo flott á litinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 21.2.2007 kl. 17:09

5 Smámynd: Birgitta

Það er heilmikið til í því að það séu 6 billjón veruleikar "þarna úti" og að allir séu aðalleikarar í sínum. Það getur enginn skilið nákvæmlega hvernig þér líður, ekki nokkur maður, því hann hefur ekki verið aðalpersónan í þínum veruleika. Sem betur fer náum við þó flest að vera nokkuð sátt við aukaleikarana okkar.

Birgitta, 21.2.2007 kl. 18:08

6 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Góð pæling, lífið væri litlaust án lita

Kristberg Snjólfsson, 21.2.2007 kl. 18:18

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Æ, hvað þú ert skemmtileg! Takk fyrir þetta.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.2.2007 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband