Leita í fréttum mbl.is

Athugun 2

Hvað framkallar þetta orð hjá ykkur? Tilfinning, hugmynd, minning.....what?

Womans power?

Set ekki inn neina mynd með til að hafa ekki áhrif á niðurstöðuna. Svona er ég nú vísindaleg í athugunum mínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég fer að hugsa um Kvennalistann sáluga!

Guðríður Haraldsdóttir, 21.2.2007 kl. 20:47

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég sé torg iðandi af mannlífi og blautt malbik. Ég finn bragðið af sterku kaffi og ég er glöð. Ég er í úrvals félagsskap.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.2.2007 kl. 20:51

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Rauðhærða daman sem deildi við villimanninn Conan á símum tíma man ekki hvað hún hét. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2007 kl. 20:51

4 Smámynd: Hugarfluga

Womans power? Hmmm .... sjálfstraust. Defenitely sjálfstraust.

Hugarfluga, 21.2.2007 kl. 21:01

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ok. Takk fyrir þetta. Ég eyddi löngum tíma og miklum athugunum á verkefni sem ég gerði um það að vera kona. Las margar bækur og skrifaði næstum heila bók um athuganir mínar. Var að vinna með the feminine og the masculine. Bjó til skúlptúra og málverk og ljóð og tónlist og performance um allt sem ég komst að. Eitt af því sem ég gerði var að tala við fjöldann allan af fólki um þetta orð Womans power og í mínum huga hafði það ákvðna merkingu sem ég í einfeldni minni hélt að flsetir leggðu sömu merkingu í. Mér til mikillar furðu fékk ég mörg og ólík viðbrögð. Þannig fór ég að skilja að orð eða hugtök vekja margs konar kennsir og tilfinningar..hugmyndir og sýnir hjá mismunandi fólki. Og upp vöknuðu margar spurningar. Hvernig getum við komist að niðurstöðum þegar við erum eins og rollur um víðan völl og erum hreint ekkert sammála um t.d eitt orð? Hvernig getum við komist að niðurstöðum í ákveðnum málum egar við sjáum hlutina frá svona ólíkum sjónarmi'um sem okkur finnst auðvitað alveg rétt séð frá okkar sjónarhorni.

Nokkur dæmi um hvað þetta orð framkallaði hjá viðmælendum mínum.

Trukkalessur á leið yfrir fylki bandaríkjanna..í hlírabol með tattú og dimma rödd.

Einn gamall hippi hryllti sig yfir þessu orði og sá fyrir sér..konu í svörtum leðurgalla með svipu sem hefði algert vald yfir honum og léti hann var kynlífsþræl.

Eldri kona sem hefur aldrei verið í sambandi og sinnir bara garðyrkjustörfum sá fyrir sér sjálfa sig og sitt val að vera bara með náttúrunni og engan karl til að stela af sér kraftinum hennar. Karlmenn sykju í sig allt kvenlegt og eyðileggðu það. Kaus frekar einveru en að tapa kraftinum sínum.

Ein sagði að hún finndi til gyðjunnar sinnar og frelsis. Til að vera hún á eigin forsendum.

Þið hafið líka koið með meargar mismunandi myndir.

Spurningin er...Hversu auðvelt..erfitt er fyrir okkur í samfélagi að nálgast lausn sem hlfir öllum..flestum..þegar einföld orð eða hugtök framkalla svona margar og mismunandi myndir?

Hvernig er hægt að vinna með slíkt? Sem Social sculpture listakona skoða ég allt þetta. Og velti fyrir mér ef eitt orð skilar sér á svona mismunandi hátt greinilega út frá persónulegum reynsluheimi og hugmyndafræði þess sem heyrir..hvernig getum við komist að niðurstöðum. Hvernig getum við samræmt tungumálið?

Þegar ég svo flutti verkefnið mitt fékk ég mjög sterk viðbrögð og mikil. Frá alls konar fólki sem lagði mjög mismunandi merkingu í það sem ég hélt að ég hefði verið að koma á framfæri.

Gaf mér efni í alveg nýtt athugunarverkefni. Já lífið er þess vert að athuga.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.2.2007 kl. 21:28

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

p.s afsakið stafsetningarvillurnar...er ekki mjög flink á lyklaborðinu þegar ég er að flýta mér og liggur margt á hjarta.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.2.2007 kl. 21:34

7 Smámynd: www.zordis.com

Spunnið út frá svipuðum toga, kallar oft hvert á annað.  hlustun, lestur, vera framkallar, hugmynd...minningu og tilfinning vaknar eða dofnar jafnvel sofnar!  

Ég finn til og bregst við, skapa tilfinningu sem er hugarfóstur minninga.  hugmyndin lifir í frumum okkar þar sem systrafélagið hvílir .....

Gaman að spá og spekulera í orðum!      Eins og við gerðum forðum!  Í hvaða lífi eða formi er svo annað mál.  Líf mitt er leikur og hugmyndir skapast út frá leikrænni minningu tilfinninganna .......

www.zordis.com, 21.2.2007 kl. 22:05

8 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Það fyrsta sem kom var Stalín, á svartri og rauðri mynd. Mjög furðulegt. Síðan kom feit og kröftug svertingjakona með allt bandaríska undergroundið í svona syndandi bakgrunni. Að lokum kom svo Vigdís Finnbogadóttir.
En þetta með mismunandi skilning og skynjun er alveg hárrétt. Stórmerkilegt fyrirbæri. Alveg furðulegt eiginlega að það takist að halda heilu samfélögunum saman. Annars sá ég nýja vídd í því eftir að ég fór til Grikklands: Hér tala menn saman án þess nokkurntímann að skilja hvern annan, nema kannski að örlitlu broti. Og það er allt í lagi. Það fúnkerar.

gerður rósa gunnarsdóttir, 21.2.2007 kl. 23:48

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ja einmitt. Samskipti og tjáningarmáti felst í svo mörgu öðru en bara tungumálinu og orðunum.  He he Gerður, það er einmitt myndin sem maður fær í gegn á því að lesa bloggið þitt. Þessi furðulegu samskipti grikkjanna.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.2.2007 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband