Leita í fréttum mbl.is

Meðan það ringdi.....varð ljós!

í úrhellinu sem hefur gengið yfir okkur hérna seinni partinn.........

Sátum við á kaffihúsi með lifandi tónlist. Frökk hippastelpa söng með attitjúdi og innri krafti fyrir réttindum sínum og kynsystra sinna...meðan ungur fallegur maður í himinbláum flauelsjakka með gullbryddingum spilað mjúkt á fiðluna undir. Kertaljósin blöktu og það glampaði á hvítvín í glösum gesta sem brostu angurvært.

Drukkum við rjúkandi og froðufullt kappúsínó og töluðum um komandi viku og flutninga þegar næstu tónlistarmenn tóku sér stöðu í horninu undir þilinu og sungu um Daydreaming. Einn þeirra blístraði með gítarnum og regndroparnir kættust og þjöppuðu sér saman á rúðunni.

Hugsaði ég um hvað tónlistin hefur magnaðan sameiningarkraft og færir fólk svo nálægt hvert öðru. Og hvað það er margt gott og fallegt til sem lyftir og leikur með mannsandanum. Og hvernig við getum stundum gleymt því. Það rignir enn.....en það er sólarglæta í sinni og vissa um að á endanum styttir upp.

sveppur í rigningu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vel mælist þér, Katrín. Það er ekki mjög leiðinlegt að sitja á kaffihúsi með cappucino og hlusta á lifandi tónlist. Ég væri alveg til í að upplifa meira svoleiðis. Takk fyrir skemmtilega bloggsíðu.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.2.2007 kl. 21:46

2 Smámynd: www.zordis.com

Glæsilegur dagur hjá þér!  Ég hef notið blíðveðursins, drukkið kaffi í ótal húsum og hitt fólk sem gladdi mitt mjúka hjarta

www.zordis.com, 25.2.2007 kl. 23:34

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Klukkan er kannski orðin of margt fyrir kaffi... En ég held ég verði að fá mér samt eftir lesturinn!

Hvenær í apríl kemurðu til landsins... svona ca? 

Heiða B. Heiðars, 25.2.2007 kl. 23:36

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

I dont know...bara einhverntímann í apríl. Ræðst af mörgu öðru. En ég er til í kaffi sopa þegar það gerist...treystu því. Kominn tími til!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.2.2007 kl. 23:42

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Heldur betur!! Hvað ætli þau séu orðin mörg árin sem við höfum "þekkst" á tölvuplánetunni? Þau eru nokkur

Heiða B. Heiðars, 26.2.2007 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310959

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband