Leita í fréttum mbl.is

Kvöldjógað mitt

ekkert að fela 

Ég geri jóga á kvöldin til að losa um stress dagsins. Stressið er versti óvinurinn og best að hafa sem minnst af því í eftirdragi. Föt þvælast bara fyrir þegar maður þarf að teygja sig og reygja og ekkert mál að sitja bara eins og maður kom í þennan heim í rökkrinu og anda í takt við nóttina.

Hugsa svo um eitthvað sætt og yndislegt þegar maður leggst á koddann. Og fara svo á flug með Óla í draumalandið. Óla Lokbrá sko.

Sofiði vel og reynið að lifa kosningabaráttuna af þarna heima. Ohhh...muna að hugsa um eitthvað sætt og yndislegt. Anda og gera jóga í rökkri.  Fljúga á vængjum vitundar með Vinstri grænum.....

Arg....Hugsa um eitthvað sætt og yndislegt.  Náttúru, fossa og virkjanir...Pouty

Ok góða nótt. Hugleiðsla þykir góð til að ná valdi á huganum og stjórna því sem maður hugsar um. Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar......Shocking

 

HJÁLP!

bunny18
Ahhh...þarna kom það.
Bíum bíum bambaló bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró og úti bíður andlit á glugga.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Mér finnst gott að nota hádegið eða seinnipartinn fyrir sund, göngu eða leikfimi og ekkert betra en slökunaræfingar og teyjur á kvöldin. Ég hef ekki lært jóga en byggt upp mitt eigið kerfi sem byggist á slökunaræfingum og léttum teyjum. Best finnst mér að setja rólega tónlist á meðan ég slaka, helst klassík :-)

Þarf reyndar að fara taka jógatíma til að kynnast þeirri tækni betur :-)

Kristján Kristjánsson, 25.3.2007 kl. 22:13

2 Smámynd: bara Maja...

OHhh ljúft  gleyma sér í smá stund, hreinsa hugartetrið og njóta líðandi stundar...góða nótt og góða drauma

bara Maja..., 25.3.2007 kl. 22:23

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góða nótt mín kæra, ég hugleiði á andlega augðlegð

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.3.2007 kl. 22:38

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ ég verð eiginlega að segja satt. Ég kann ekkert að gera jóga og geri ekki jóga hvorki kvöld né morgna. Fannst myndin bara svo kúl.

En ég geri Lotte Berk æfingar sem eru samtvinnaðar ballettæfingar og nokkurskonar jóga og þær eru alveg frábærar. Það er alveg hreina satt.

Jakk..maður fær svona innra drasl þegar maður platar. Ekki gott. Vona að mér sé fyrirgefið

Já og sofið rótt. Maður getur ekki sofið fært með lygi á samviskunni.

Það er alveg ljóst.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.3.2007 kl. 22:53

5 Smámynd: bara Maja...

AhA grunaði mig ekki...  við stukkum öll með á Jóga lestina, En verð að segja að það er rétt hjá þér myndin er þrælflott og gaman að heyra hvernig myndin er uppspretta af skemmtilegu bloggi, þér er fyrirgefið, þetta hljómaði nefnilega annsi girnilega

bara Maja..., 25.3.2007 kl. 23:02

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég anda stundum nakin í rökkri...og geri ákveðna hluti til að afstressa mig..en bara ekki jógað. Æ þið eruð krútt

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.3.2007 kl. 23:09

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðann daginn Vona að þið hafið öll sofið rótt Það er sannarlega hollt að staldra við og finna sinn eigin takt í þessu erilsama og krefjandi líf sem okkur hættir til að lifa

Guðrún Þorleifs, 26.3.2007 kl. 06:00

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta var bæði holl og góð lesning Katrín mín, sama hvaðan gott kemur hehehe... En þú gafst mér allavega hugmynd  Sjálfstæðisflokkurinn hvað ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2007 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310953

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband