Leita í fréttum mbl.is

Sumar...endalaust sumar í minni sál.

Gleðilegt sumar bloggvinir og allir sem hér líta við.

Mér fannst alveg við hæfi að klæðast sumarlegri litum í tilefni dagsins og vera bjartari og litríkari í sumarkomunni.

Þetta er hin nýja ég.

X06-apro

Kona með tengingu við jörð en samt einhvernveginn alltaf með hugann þarna uppi..sveimandi hugsandi og dreymandi.

Við fögnuðum sumarkomunni með því að fara út í skóg þar sem rennur lækur á milli trjáa. Þar sem bláklukkurnar lita allt í þessum magnaða fjólubláa lit og stórir klettar klofna fyrir styrk trjáróta sem komast allt. Settumst í lautu og borðuðum nestið okkar og nutum veðurblíðunnar. Trjáandar ræsktu sig og ég settist undir tré og fékk  fjólubláa hugljómun.

Hugljómun um að allir eru alltaf þar sem þeir þurfa að vera.

Sín vegna og sálar sinnar vegna.

200312138-001

Þvotturinn minnn hangir enn úti á snúru. Einhver spurði mig hvort það væri ekki tímabært að fara að taka hann inn eftir margra daga útiveru. Ég hélt nú ekki. Maður notar svona brakandi þurrk til hins ýtrasta. Missi ekki einn dag úr. Tek hann svo inn þegar það fer að verða þungskýjað.

Þá er ég búin að græða eins mikinn þurrk og ein húsmóðir getur fengið fyrir ekki neitt.

Alsæl.

Sumarið er minn tími.

Svo gott þegar grámi vetrarins víkur. Litleysið er drungalegt.

 

nature

Svo kemur sumratíð og litagleðin fyllir augað hvert sem litið er.

Nú er sumar gleðjist gumar.

Gaman er í dag.

nature1

Gleðilegt sumar!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Gleðilegt sumar .. Ég fór í ljósa drakt og setti á mig bleikan varalit leið eins og sigurverara sem gerir daginn miklu betri! Það er dásamlegt að skipta um lit og sameinast sumri ..... Smúts á þig yndislegi penni!    Að sjálfsögðu koss á báðar!

www.zordis.com, 19.4.2007 kl. 18:52

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Flott og bráðskemmtileg færsla. Hver málaði þessa æðislega fallegu mynd af þér?

Steingerður Steinarsdóttir, 19.4.2007 kl. 19:50

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Gleðilegt sumar Katrín "ilmandi" Snæhólm!

Heiða B. Heiðars, 19.4.2007 kl. 19:52

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gleðilegt sumar Snætrýna mín. Hér á norðurhjára er enn vetur og englaflasa í lofti.  Bráum mun frú sól reka englana í bað með tjörusjampó og þá munu gullnir lokkarnir lýsa upp tilveruna.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.4.2007 kl. 21:34

5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Gleðilegt sumar Katrín mín og sólarkveðjur til allra

Margrét St Hafsteinsdóttir, 19.4.2007 kl. 22:47

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gleðilegt sumar Katrín mín og takk fyrir þessa skemmtilegu færslu.

Svava frá Strandbergi , 19.4.2007 kl. 23:44

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðann daginn og gleðilegt sumar

Guðrún Þorleifs, 20.4.2007 kl. 05:22

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þessa mynd málaði Rafaello af mér þegar ég var ung kona á Spáni um fimmtánhundruð og eitthvað. Honum þótti ég mjög sérstök og allt öðruvísi en aðrar konur á þessum tíma.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.4.2007 kl. 08:42

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndisleg sumarfærsla.  Gleðilegt sumar elsku Katrín

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.4.2007 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 311096

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband