Leita í fréttum mbl.is

Ég er að hvíla mig

Eftir langan dag og mikið labb og ferðalag er ég nú að hvíla mig. Sit og horfi á naglalakkið þorna og svo ætla ég að horfa á þvottinn þorna sem hangir á snúrum í veðurbliðunni í garðinum mínum. Eftir allt áhorfið er ég að hugsa um að fara í bað og horfa svo á hárið á mér þorna. Þetta eru framúrskarandi góð hvíldarráð.

poppy1

Svo þegar dimmir þá ætla ég að góna á tunglið og tala ekkert á meðan.

Ætlaði að semja hvíldarljóð en hætti við þar sem ég fann ekkert fallegt orð sem rímar við hvíld?

Svo ég bjó bara til hvíldarspakmæli handa ykkur.

"Hvildinni er kerling fegin eftir að hafa rápað í búðir og eytt engum peningum".Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Engum peningum kona!  Það er nánast kriminellt!

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 17:57

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

síld?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 17:58

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Vel hvíld

eins og síld???

Já Jenný..ég las nefninlega aftan á bók í bókabúðinni sem er með skiptiborð svo maður getur skipt á barninu sem maður er að passa....og þar sagði kona frá því að hún væri steinhætt að kaupa. Kaupir aldrei neitt nema mat og hreingerningarsápu og hefur aldrei verið hamingjusamari. Ég er að gera prufu hvort þetta virkar!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 18:04

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hmmmm hljómar ekki vel - svona on second thought.... En rímar

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 18:33

5 Smámynd: www.zordis.com

SÍLD var orðið sem mér datt líka í hug ...

Eftir armæðu og langan dag,

þráir konan hvíld.

Herramaður syngur lag,

og dillar sinni síld ....

Æj ekki sætt en rímar en ....

Hvíld

Mild

súld (svona rómo súld)

Katrín, ekki gera of langa prufu á þessu með matarinnkaup og hreingerningarsápur!  Ég sé fyrir mig konu sem situr á strönd og léttur vindur (mildur og vindur rímar) leikur um lokka hennar ...

Síld er góð, marineruð, krydduð og svo þarf maður að hvíla sig eftir að borða of mikið af síld! 

www.zordis.com, 22.5.2007 kl. 19:08

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

En fýld? Það rímar við hvíld, líka kýld. Nei annars þessi orði geta alls ekki átt við þig gyðja mín góð.

Svava frá Strandbergi , 22.5.2007 kl. 19:15

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Zordis þú ert frábær.....

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 20:21

8 Smámynd: Gerða Kristjáns

Ekki vissi ég að það væri hægt að fara á búðarráp án þess að eyða neinu !

Gerða Kristjáns, 22.5.2007 kl. 21:31

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Bíld

udalur? Hlusta á hárið þorna, snilld! Aha, snilld, þú getur notað það! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.5.2007 kl. 22:01

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hvíldarljóð:

Fýld er kella, meir´en ella, eftir búðaráp, sem ekki fyllti skáp.

Hvíld verður fegin, það er saga segin, að matur er mannsins megin, einkanlega haf´hann verið með síldarkryddlegi sleginn....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 23.5.2007 kl. 02:06

11 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hvíldu þig hvíld er góð. Vonadi ertu nú úthvíld

Guðrún Þorleifs, 23.5.2007 kl. 06:56

12 Smámynd: bara Maja...

 ert svo yndisleg kona  vona að þú sért úthvíld eins og glitrandi síld...(ps ég elska valmúa, á öllum þroskastigum, í upphafi og hvernig blöðin þrengja sig út í blóma og enda svo eins og myndin sýnir, ótrúlega listrænt blóm!)

bara Maja..., 23.5.2007 kl. 09:27

13 Smámynd: Hugarfluga

Ég veit hvað rímar við hvíld!!  Gott skap og vellíðan!!  Knús frá mér til þín.

Hugarfluga, 23.5.2007 kl. 09:49

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kvíldu  þig vel og hafðu það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.5.2007 kl. 10:15

15 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

góða hvíld, er hrifinn af því að sitja og horfa á hárið á sér þorna, ætla að gefa mér tíma til þess einhveratíma

Ljós til þín frá mér

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 15:16

16 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Er farin að hvíla mig eftir gegndarlaust puð á hjólinu. Kannski ég dundi mér við að horfa á hárið þorna í hvíldinni, nú er það orðið svo sítt því ég veit ekki hvernig.... en þvílík hvíld sem fæst út úr þeim tíma sem það tekur

Ps. ég las einu sinni að það væri mikilvægt að gefa sér tíma til að setja sjampó x2 í hárið. Nú hef ég gert það í rúmt ár og hárið og ég erum svo fín og afslöppuð

Guðrún Þorleifs, 23.5.2007 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 310956

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband