Leita í fréttum mbl.is

Fegurð og frægðardraumar konu á sunnudegi

sjalfsmynd

Ég var að róta í myndasafninu mínu og fann þessa bráðhuggulegu sjálfsmynd af mér sem ég teiknaði fyrir mörgum árum. Einhver leiðindapúki benti mér á að ég hefði greinilega steingleymt að rissa upp nokkur ár sem verða með aldrinum að ókennilegum línum og uppábrotum framan í manni..en það var svo ekki svoleiðis.

Ég einfaldlega notaði strokleðrið og þurrkaði út öll versumerki um visku mína og lífsreynslu.

 Mér finnst bara lífsnauðsyn að kona eigi eina mynd sem er ekki alsett aukalínum. Nógum tíma eyðir maður með galdrapennanum frá Loreal hvern morgun til að galdra sig fína og slétta. Já láttu þig dreyma kona góð...raunin er sú að ég eyði nefninlega bara litlum tíma og helst engum í að laga mig til og þess vegna er svo gott að eiga eina svona mynd..svona til samanburðar um hversu afskaplega fallega lífið er að setja mark sitt á mann með línum og hrukkum og fellingum svo það fari nú örugglega ekk framhjá neinum að ég er kona með fortíð og langa reynslu.  

 Nokkur þúsund líf að baki og fleiri framundan.

200393120-001

Annars er þessi sunnudagur búinn að vera svo sérdeilis frábær að hann mun bara auka broshrukkurnar mínar því ég er búin að vera brosandi næstum síðan ég vaknaði. Ég hef fengið svo mörg yndisleg e mail í  dag frá alls konar fólki..sum mjög óvænt og hjartahlýjandi. Meira að segja pantanir á kortum. Já þetta heimsveldi mitt er að fæðast..það er alveg ljóst.

Svo fékk ég eitt e mail sem sagði..Katrin don´t walk, Run!!!!

Og ég held að ég geri það bara...er að hugsa um að taka hlaupasprett í gegnum lífið núna í sumar og láta draumana mína rætast hratt og vel.

Það er nefninlega ekki eftir neinu að bíða.

art

 Ó fagra röndótta veröld

komdu með mér út að hjóla

um lífsins hóla.

Klæðum okkur í sumarkjóla

og svo skulum við róla

hátt

svo við sjáum yfir allt!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Langaði allt í einus svo í vöfflur með rjóma eftir að ég las pistilinn þinn  Þannig að ég ætla að fara að baka  Verður gott að rífa sig aðeins upp frá tölvunni sem ég er búin að sitja of lengi við. Ekkert skemmtilegt veður úti og ég ætlaði að eiga letidag  Takk fyrir að rífa mig upp úr stólnum. Kveðjur og knús

Margrét St Hafsteinsdóttir, 3.6.2007 kl. 15:23

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þessi mynd var nú bara teiknuð í flýti til að nota sem hluta af plönturannsóknarverkefni sem ég var að gera þá og til að sýna hversu tekin ég var af verkefninu setti ég hausinn á mér með á myndina af öllum plöntunum og sómdi mér bara vel á milli þeirra..

Vöfflur og rjóma...vá hvað ég hlýt að vera girnileg að framkalla löngun í slíkt góðgæti..híhí.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.6.2007 kl. 15:36

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Æðisleg sjálfsmynd!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 3.6.2007 kl. 16:58

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú ert falleg Katrín og flott myndin sem þú teiknaðir.

Svava frá Strandbergi , 3.6.2007 kl. 17:10

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er skemmtileg mynd Katrín mín.  Þrátta fyrir hrukkuleysið.  Það er auðvitað rétt hjá þér, að stundum þarf að spara svolítið  Annars ertu alveg frábær.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.6.2007 kl. 17:14

6 Smámynd: Hugarfluga

Falleg mynd af fallegri konu!

Hugarfluga, 3.6.2007 kl. 19:20

7 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Vöfflurnar voru mjög góðar  gleymdi að segja áðan að myndin sem þú teiknaðir af sjálfri þér er mjög góð og ég þekki þig alveg á henni  Hárið sérlega vel teiknað.....þú ert listakona. Knús

Margrét St Hafsteinsdóttir, 4.6.2007 kl. 02:39

8 Smámynd: Ibba Sig.

Þessi mynd er alveg eins og þú en samt svo ólík. Geturðu ekki teiknað eina svona af mér, þ.e. með engum línum?

Ibba Sig., 4.6.2007 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 311095

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband