Leita í fréttum mbl.is

Ástæðan fyrir að ég er ekki að blogga. (Þetta er ekki blogg, heldur tilkynning!)

Það er svo margt sem ég á eftir að blogga um að ég fæ svima þegar ég hugsa um það.

Þetta er bara örlítið brot af listanum yfir verðandi blogg

Græni geimsteinninn minn..ekkert smá spennandi saga. Athugið...GEIM steinn en ekki gimsteinn.

Gönguferð kringum vatn...the Lake.... með Skotum, börnum og björgun fótbrotinnar risabjöllu.

Litli fuglsunginn sem maðurinn með trésögina næstum drap!

Afmælisveislur í löngum bunum í júlí og vandfundna afmælisgjöf tengdasonarins sem kemur í stað veðurfrétta

Reykingapása í bakgarði kirkjugarðs og engill sem er fyrrverandi hermaður sem leitar hinnar kvenlegu hliðar sinnar eftir ískyggilegar reynslur í stríði

Skúlpturinn sem ég gerði blindandi og var svo enginn annar en....!!!!!Þarf að taka myndir af honum svo ég geti sett inn þegar myndakerfið kemst í lag.

Hætt að rigna og sólin LOKSINS farin að skína.

Já um allt þetta gæti ég bloggað væri ekki eitthvert ansans ólag á tölvunni minni og myndakerfið bara alls ekki að virka...en aðalástæðan er sú að ég á eftir að vaska upp!!

Og það geri ég núna með skærgulum uppþvottalegi með sumarlykt og einhverju sérstöku efni í sem gerir glösin glansandi. Og á meðan ég gleðst yfir sápukúlunum horfi ég út um gluggann og dansa í huganum um túnið með litlu blómálfunum sem fylgdu fallegu plöntunum sem ég var að setja á mína veranda

Veranda er svona ítalíulegt orð yfir stétt

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Yndislegt orð veranda.....

Eigðu góðan dag

Hrönn Sigurðardóttir, 8.7.2007 kl. 11:38

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins og ég bíð spennt eftir ofannefndum bloggum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 11:42

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Eigðu góðan dag Katrín mín. Vonandi heldur sólin  áfram að skína.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.7.2007 kl. 11:48

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jiii ég var næstum búin að gleyma furðulega draumnum sem hún Björg Kristjana bloggvinkona mín var í...að dreyma bara nafnið hennar er Sigurtákn..en þið ættuð að vita allt hitt...oh my god! Ég verð að blogga um þennan draum og svo hugmyndina sem ég fékk núna þegar ég var að vaska upp. Það yrði metsölubók ef ég myndi einhvern tíman skrifa þá sögu. Það segi ég satt.

Jæja má ekki vera að þessu..brakandi þurrkur og full þvottavél af ilmandi nýþvegnum þvotti sem bíður eftir að komast á snúrurnar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 12:06

5 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðan sunnudag og gleðilega sól. Þvílíkur munur að geta aftur farið að þvo þvott og þurrka úti! Maður þvær ekki í rigningu, er það nokkuð???

Væri nú aldeilis fínt ef þú settist nú niður nógu lengi til að skrifa eina bók fiðrildið mitt Spurning hvort það mundi henta þér betur að tala inn á diktafón og ...

Bara að koma með hugmyndir. Er svo frjó núna eftir fjörugan júnímánuð og heilabúið hreinvaskað eftir rigninguna og rokið undanfarið

Guðrún Þorleifs, 8.7.2007 kl. 12:19

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kveðja yfir hafið, engillinn minn! Hlakka til að lesa væntanleg blogg!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.7.2007 kl. 13:54

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Guðrún ég tek sko undir með þér að heilabúið er heldur betur hreinvaksað eftir nstum 8 vikna allsherjar rigningarskúr. Það er reyndar sossum ekkert glaðasólskin enn sem komið er..en samt aðeins að létta til. Ég var einmitt að raða....í huganum.....öllum óskrifuðu heimsbókmenntunum mínum. Þyrfti heldt að hafa svona sjálfvirkan gemlin hlauðpandi á eftir mér og skrifa jafnóðum niður allar mínar snilldarhugmyndir sem komast því miður of sjaldan út úr hausnum á mér.

Annars er ég htt við að hengja út þvottinn....það hrannast upp ský yfir litlu sólina mína!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 14:36

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Elsku Katrín. Passaðu að bræða ekki úr þér kona. Heilinn er greinilega á yfirsnúning. Nú er bara to breathe in.... breathe out... breathe in.... breathe out..... breathe in..... breat...... You get the picture, right? Verð þó að segja að ég bíð spennt eftir þessum blogg... nei... bíddu... ekki-bloggum. Ertu annars ekki komin með efni í heila bók þarna?

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 15:22

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Vandamálið mitt er ekki að mig vanti efni til að skrifa um...vandamálið mitt er að setjast niður og skrifa allt efnið og nota allar þessar hugmyndir. Get the picture?

 Gurrí..hvernig var með dularfullu styttuna frá Brasilíu sem losar allar ritstíflur sem þú ætlaðir að senda mér???

Það segir sig sjálft að ég get ekki bloggað af neinni alvöru með tölvuna í þessum hægagangi, myndakerfið óvirkt og lyklaborðið svoleiðis í rugli. Þið ættuð bara að vita hvað ég þarf að leggja á mig við að skrifa það sem ég hef skrifað í dag. Ég hef eiginlega þurft að nota galdra frá Hornstrendingum og Arnarfjarðarættinni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 16:03

10 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Er þetta nokkuð "kriptonít" þ.e. þessi græni geimsteinn?

Ásgeir Rúnar Helgason, 8.7.2007 kl. 19:58

11 Smámynd: www.zordis.com

Gott ad fá svona ekki blogg um hluti sem eru naudsynlegir og merkilegir!  Er komin af Fjalli og átti zar ljúfar stundir!

www.zordis.com, 8.7.2007 kl. 20:11

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Moldavite er græni geimsteininn minn..sjaldgæfastur steina á jörðu og sumir segja að í honum finnist málmar eða efni sem ekki séu þekkt á jörðunni.

Annras get ég bráðum byrjað að blogga því tölvan er loksins betri...Ásgeir minn..við erum með sama syndrómið sýnist mér. Þetta með að fá allt of margar hugmyndir sem verða svo ekki að neinu..híhí.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 20:29

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég get bara varla beðið eftir þessum bloggum, - og tilheyrandi skreytingum. Þú gerir lífið litfegurra og skemmtilegra, Katrín, og ég meina þetta. Ljúfar kveðjur!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.7.2007 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 310949

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband