19.7.2007 | 23:04
Ljós og blessun til þeirra sem þorðu að standa með sínum sannleika
Í dag var sól.
Var ekki örugglega rigning hjá ykkur?
Svo ég fór á kaffihúsið mitt og sat þar fyrir utan og naut mín í sólargeislunum. Horfði á leiðið þar sem þau 3 síðustu sem brennd voru á báli hér í bænum, voru sett til hinnar hinstu hvíldar.
Ég veit ekki fulkomlega hvað þau unnu sér til saka annað en það að vera ekki þóknanleg kirkjunnar mönnum á þessum myrku tímum miðalda.
Kannski soðið seyði úr jurtum til að lina þjáningar meðbræðra sinna..hvað veit ég? Kannski afneitað þeirra tíma trú að Guð væri vondur og refsandi faðir allra sem dæmdi fólk til ævilangrar helvítisdvalar fyrir að vera mannleg og breisk.
En ég tók eftir því að það voru blómvendir á leiðum þeirra sem eru beint fyrir utan kirkjudyrnar..og ég fór að skoða hvað þar stóð.
Fór meira að segja heim að sækja myndavélina svo þið gætum séð með eigin augum að 451 ári eftir voðaverknaðinn og brennuna er enn til fólk sem lætur sig örlög þeirra varða Og hefur skoðun og hjarta fyrir því.
En myndalbúmið mitt bara virkar ekki..því miður.
Set inn myndir síðar þegar það er komið í lag.
En þetta er það sem stóð á miðanum með blómunum sem einhver setti á leiðið þeirra 451 ári síðar. Það fannst mér fallegt!!!!
19th of july 2007
In memory of those who experienced persucution at the hands of angry, vindictive EGOS.
I am so sorry and ashemed that religiory persecution caused you all such pain.
If the power of love could overcome the love of power.
Then there would be peace.
May you rest in love and peace.
Pearl
Þar sem ég sat á bekknum við kirkjugarðinn og horfði á leiðið og blómin flugu fram hjá mér 3 svartar krákur. Og ég samdi ljóð.
Þrjár svartar krákur
í kirkjugarði
Hin heilaga þrenning
sem sækir í allt sem glitrar í ljósinu
Hinn fagri gimsteinn sem vaknar í hjartanu
þegar hið nýja streymi
þekkir hinn falda fjársjóð
og opnar hirslu
hins himneska sem aldrei dæmir.
Verði ljós!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Falleg færsla og góð áminning. Smjúts.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2007 kl. 23:22
Kannski skiptir þetta engu máli þar sem langt er um liðið og enginn ykkar þekkir enskar nornir? Mér finnst það samt skipta máli að láta sig varða hvernig við komum og höfum komið fram við þá sem eru ekki eins og við æskjum. Eða þá sem við ekki skiljum. Hvernig fara nútíma nornabrennur fram?
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 00:47
Einhverjar
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 01:04
Einhverjar hugmyndir?
Og hvað hafa nútíma nornir til að bera?
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 01:04
Vindictive angry Egos. Þarna stó ekki men eða people heldur egos. Það er þroskuð manneskja sem slíkt skrifar. Daæmir ekki menn en hryggist hugarástandið sem olli þessu.
Fallegt ljóð og viðeigandi.
Jón Steinar Ragnarsson, 20.7.2007 kl. 03:02
Egoið stefnir áfram með liðna þjáningu. Við erum hér til að skapa betri heim, læra af gjörðum og hver veit hver var hvað þegar litið er til baka .... svörin búa í hjarta okkar kæra Katrín!
Hefði viljað sitja með þér og hlusta á þögnina!
Fallegt ljóð!!!
www.zordis.com, 20.7.2007 kl. 05:59
Góð færsla hjá þér mín kæra. Yndislegt að í dag skuli vera til fólk sem finnst því varða hvað áður hefur gengið á og vill tjá sig á þennan hátt. Fallegt ljóð í anda þessarar stundar.
Knús til þín og veistu? Það rignir ekki hjá mér!
Guðrún Þorleifs, 20.7.2007 kl. 06:11
Auðvitað skiptir það máli. Mér finnst þetta falleg athöfn og gott að einhver lætur sig söguna varða
Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 07:09
fallegt færsla, ég tek undir hjá jóni steinar, áhugavert !
hafðu fallegan sólskinsdag, eins og ég ætla að hafa
Ljós
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 07:18
Þetta sýnir að fólk virðist öðru hvoru staldra við og hugsa til fortíðar. Og kannski til nútímans í leiðinni, því svona "nornabrennur" eru alveg í gangi í dag, bara ekki með alvöru eldi.
Sbr. Lúkasarmálið hér uppi á Regn-og-Íslandi og fleiri heit mál í fjölmiðlum.
Maja Solla (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 08:38
Takk fyrir góðar óskir um sólskin. Fór í morgungönguna í brjálæðislegu þrumuveðri og þvílíku úrhelli að við vorum eins og hundar dregnir af sundi þegar heim var komið.
Algerlega geggjuð ganga í mrkvuðum skógi. Þegar heim var komið langaði mig mest að hlaupa um allsber í garðinum en ég tek tillit siðprúðra nágranna mína sem myndu eflaust kalla á prestinn og krossa sig yfir slíkum dónaskap.
Þetta er ein af ástæðunum að ég verð að búa svolítið sér. Af því að ég er svo sérvitur.
Nútíma aftökur eða brennur fara einmitt frekar fram í mannorðsmorðum fremur en nokkru öðru. Stundum er lygin notuð sem vopn eða öfund og græðgi. Eins gott að við skolum af okkur dauðasyndirnar sjö svo við getum farið að hafa fjör hérna á jörðinni.
Eigið góðan dag elskurnar.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 11:00
Þetta er mjög falleg færsla hjá þér mér finnst þetta falleg athöfn eigðu góða helgi
Kristín Katla Árnadóttir, 20.7.2007 kl. 11:01
Yndisleg færsla Katrín
Marta B Helgadóttir, 23.7.2007 kl. 13:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.