17.9.2007 | 10:38
Storyteller á steinþrepi og englar sem elska næturklúbba!
Ég fékk svo sætt e mail með ástarsögu sem gerðist fyrir tilstilli lítillar bænar eða tengingar við Guðssálina. Og ég ætlaði að senda smá svar sem varð svo bara að að heilu bloggi. Svo ég set það hér svo þið getið haft eitthvað skemmtilegt að hugsa um og prufa í dag..ok?
"Já sko þetta er það sem ég er alltaf að reyna að segja öllum. Gott að þú ert búin að uppgötva þetta. Það breytir lífi manns og gerir það að algeru ævintýri.
Man eftir einni skólasystur minni þýskri sem var barnlaus og makalaus 37 ára en átti flott fyrirtæki og fína íbúð. Búin að ferðast mikið en var nú komin á þann stað að langa til að eignast kall og krakka og kött og fannst lífið frekar einmanalegt og hryllilega tómlegt.
Vandamálið var hins vegar það að hún hitti aldrei neinn sem passaði henni og varla nokkurn sem hafði áhuga sagði hún. Samt var hún búin að leita í mörg mörg ár með engum árangri. Við sátum á steintröppunum fyrir utan skólann sem var svona mitt kaffiþrep eða afdrep og þar sat ég öllum stundum og fólk settist hjá mér og fékk eina og eina sögu sem passaði fyrir vandamálin þeirra.
"Sko" sagði ég .."ekki hafa neinar áhyggjur. Biddu bara englana þína að finna fyrir þig mann sem hentar þér. Segðu þeim svo í aðalatriðum og jafnvel smáatriðum líka hvers konar félaga þú leitar að og hvaða eiginleika þú vilt að hann hafi. Þýska bekkjarsystir mín sem fæddist 11. júní 1963 og er þar með aðeins tveimur dögum eldri en ég og þar af leiðandi heldur hún að hún sé líka vitrari sem er ekki alveg rétt...horfði á mig eins og ég væri greinilega tveimur dögum yngri og ekki alveg með fulle femm. Engla?? Hvaða engla ertu að tala um??? Ekki segja mér að þú trúir í alvöru á engla???Horfði á mig eins og ég hefði haldið því fram að hafið væri rautt og himinninn grænn.
Þar sem ég er orðin ýmsu vön sitjandi þarna á þessu steinþrepi daginn inn og daginn út, segjandi skrítnar en dagsannar sögur, lét ég þessi viðbrögð ekkert á mig fá.
"Sko mín kæra...gerðu bara eins og ég segi þér. Settu svo verkefnið í hendur englanna þinna og hættu að hugsa um það. Þeir munu finna fyrir þig the perfect man."Belive you me" sagði ég svo með áhersluþunga og horfði beint í augun á henni. Mundu bara að bregðast við innri tilfinningum þínum og svara alheiminum þegar hann byrjar að færa ykkur saman. Ef þú færð furðulega hugdettu sem er algerlega ólógísk..er það líklega það sem þú þarft að gera.
Skilurðu mig?? ´
Þetta var á fimmtudegi og vikuna á eftir kom þýska einmana skólasystir mín með tómlega og karllausa lífið sitt og settist hjá mér á steinþrepið. Hún hreinlega tindraði og glitraði og hamingjan skein af henni skærar en sólin.
"Veistu hvað..ég ákvað að gera þetta sem þú sagðir mér..þú veist þetta með englana..ha? Ég meina ég trúi ekki svona dellum en þar sem ég hafði sossum engu að tapa ákvað ég að prófa. Á föstudaginn var ég á gangi niðri í þorpi þegar ég fékk allt í einu þá flugu í höfuðið að fara til London og dansa alla nóttina í næturklúbbi..bara alein. Sem er bara biluð hugmynd og alls ekki við mitt hæfi. En þessi hugmynd lét mig ekki friði svo ég ákvað bara að skella mér, minnug orða þinna um að ég ætti bara að bregðast við og framkvæma hugdettur mínar. Allavega ég fór til London með lestinni..fann næturklúbb labbaði inn á gólf og byrjaði að dansa. Útundan mér sá ég hávaxinn og myndarlegan mann..hann var að horfa á mig og ég horfði á móti. Mér fannst eins og ég þekkti hann en kom honum ekki fyrir mig.Hann færði sig nær og við byrjuðum bara að dansa saman án þess að tala.
Við dönsuðum saman alla nóttina eins og gamlir elskendur. Undir morgun kom það í ljós að hann býr í litla þorpinu þar sem skólinn okkar er og var að fara þangað..hafði sjálfur fengið þessi klikkuðu hugmynd um að fara til London að dansa...hann er hálfþýskur og á fyrirtæki í þýskalandi eins og ég. Og fer þangað aftur í sumar..eins og ég! Og veistu...það er svo skrítið það er eins og þetta hafi átt að gerast, allt verið planað og undirbúið. Svo brosti hún og horfði á mig.
Kannski af englum??
Hver veit??
Síðast þegar ég frétti af þeim bjuggu þau alsæl og hamingjusöm saman einhversstaðar í þýskalandi.
Já englar hafa nefnilega smekk fyrir öllu..hávaðasömum næturklúbbum í London og geta látið allt gerast þrátt fyrir vantrú okkar jarðlinga.
Er það ekki bara hughreystandi og gott að vita??
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Falleg saga.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.9.2007 kl. 11:10
Falleg saga og maður tekur þetta að einhverju leyti til sín, því þótt ég sé í yndislegri sambúð núna og sé fósturpabbi ... þá hef ég aldrei þráð neitt meira en að verða pabbi sjálfur. Allt frá því ég átti samræður við afa minn átta ára (sko ég var átta ára þá!) og hann gaf mér kaffi í brúnan plastkaffibolla (plastbolla sem ég á í dag) ... þá vissi ég að ég vildi verða barnakarl og ætlaði að verða besti pabbi í heimi. Örlögin hafa látið mig bíða, og þola ýmislegt, en í gegnum súrt og sætt hef ég vitað það, að það er alltaf einhver tilgangur með öllu.
Hvort sem um engla verður að ræða eða ekki, þá bíð ég enn eftir þessari blessun að verða pabbi ... og trúi því að það sem á að gerast .... muni gerast.
Kveðjur frá Akureyri!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 11:45
Dásamleg saga! Takk þetta er gott efni til að hugsa um. Þú hefur greinilega mjög ákveðnu hlutverki að gegna í þrepunum í lífi þínu...
Ragnhildur Jónsdóttir, 17.9.2007 kl. 12:00
Frábært þetta líf Katrín.....og eins og þú segir; engar tilviljanir...
Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 12:09
...gott mál!
(Þetta er eiginlega svona.........(hum....)......svona stelpusaga)
Júlíus Valsson, 17.9.2007 kl. 13:05
Góð "stelpu"saga. Strákar hafa líka gott af að heyra svona sögur.
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 13:15
Auðvitað er þetta stelpusaga. Allir vita að englar eru konur sem hjálpa bara stelpum og konum. Hvað heita þeir aftur sem eru alltaf að hvísla einhverju að strákunum....já nú man ég. Púkar!!! Þarf að skrifa eina púkasögu sem verður þá náttla strákasaga.
Kannski best að muna eftir að setja í fyrirsögnina..strákasaga eða stelpusaga eftir því sem við á. Það er nefninlega alls ekki sama eða..er það nokkuð???
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 13:32
frábærlega sniðug og skemmtileg saga
greinilega einhverjar örlagadísir hér á ferðinni
halkatla, 17.9.2007 kl. 14:14
Frábær saga án tillits til hvort hún er stelpu eða stráka.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 15:24
Allar góðar sögur eiga rétt á sér. Ég er bara með flokkunaráráttu eftir of langa dvöl á skólabekk.
Júlíus Valsson, 17.9.2007 kl. 15:53
Yndisleg saga, elska svona hluti. Eitthvað svo óvænt, þig langar í eitthvað og ef þú bíður nógu lengi þá kemur það til þín. Knús
Ásdís Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 16:18
þetta er dásamlegt ! vinkona mín sagði einu sinni við mig,
"það er orðið þannig að englarnir bíða í röðum eftir að við biðjum þá um hjálp. það er hreinlega atvinnuleysi hjá þeim !!!
því fólk er hætt að trúa á þá og þar af leiðandi biður það ekki um hjálp !!
AlheimsLjós til þín
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 17:18
FLott og gott, aldeilis frábært
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.9.2007 kl. 17:57
Þessi saga er yndisleg Ég skila kveðjunni Katrín mín.
Kveðja
Ragnheiður Ingadóttir (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 18:33
Ég hnerra nú bara við lesturinn englaryk og fiður út um allt! Æðilseg saga sem fólk ætti að tileinka sér.
Stelpu og Stráka englasögur eru yndi!
www.zordis.com, 17.9.2007 kl. 18:40
Takk fyrir söguna, þetta er hárrétt aðferð og hefur dugað vel til ýmissa þarfa. Sá eða sú sem lokar á gamla kerfið, opnar sig fyrir breytingum og færir englunum verkefnið, fær sitt fyrr en síðar.
Ívar Pálsson, 17.9.2007 kl. 20:56
Ta er eg 4 dogum eldri en tu, gamall madur
Viðar Zophoníasson, 18.9.2007 kl. 05:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.