Leita í fréttum mbl.is

Storyteller á steinþrepi og englar sem elska næturklúbba!

 Ég fékk svo sætt e mail með ástarsögu sem gerðist fyrir tilstilli lítillar bænar eða tengingar við Guðssálina. Og ég ætlaði að senda smá svar sem varð svo bara að að heilu bloggi. Svo ég set það hér svo þið getið haft eitthvað skemmtilegt að hugsa um og prufa í dag..ok?
"Já sko þetta er það sem ég er alltaf að reyna að segja öllum.  Gott að þú ert búin að uppgötva þetta. Það breytir lífi manns og gerir það að algeru ævintýri.
Man eftir einni skólasystur minni þýskri sem var barnlaus og makalaus 37 ára en átti flott fyrirtæki og fína íbúð. Búin að ferðast mikið en var nú komin á þann stað að langa til að eignast kall og krakka og kött og fannst lífið frekar einmanalegt og hryllilega tómlegt.
þaumín leið

Vandamálið var hins vegar það að hún hitti aldrei neinn sem passaði henni og varla nokkurn sem hafði áhuga sagði hún. Samt var hún búin að leita í mörg mörg ár með engum árangri. Við sátum á steintröppunum fyrir utan skólann sem var svona mitt kaffiþrep eða afdrep og þar sat ég öllum stundum og fólk settist hjá mér og fékk eina og eina sögu sem passaði fyrir vandamálin þeirra.
"Sko" sagði ég .."ekki hafa neinar áhyggjur. Biddu bara englana þína að finna fyrir þig mann sem hentar þér.  Segðu þeim svo í aðalatriðum og jafnvel smáatriðum líka hvers konar félaga þú leitar að og hvaða eiginleika þú vilt að hann hafi. Þýska bekkjarsystir mín sem fæddist 11. júní 1963 og er þar með aðeins tveimur dögum eldri en ég og þar af leiðandi heldur hún að hún sé líka vitrari sem er ekki alveg rétt...horfði á mig eins og ég væri greinilega tveimur dögum yngri og ekki alveg með fulle femm. Engla?? Hvaða engla ertu að tala um??? Ekki segja mér að þú trúir í alvöru á engla???Horfði á mig eins og ég hefði haldið því fram að hafið væri rautt og himinninn grænn
Þar sem ég er orðin ýmsu vön sitjandi þarna á þessu steinþrepi daginn inn og daginn út, segjandi skrítnar en dagsannar sögur, lét ég þessi viðbrögð ekkert á mig fá.
"Sko mín kæra...gerðu bara eins og ég segi þér. Settu svo verkefnið í hendur englanna þinna og hættu að hugsa um það. Þeir munu finna fyrir þig the perfect man."Belive you me" sagði ég svo með áhersluþunga og horfði beint í augun á henni. Mundu bara að bregðast við innri tilfinningum þínum og svara alheiminum þegar hann byrjar að færa ykkur saman. Ef þú færð furðulega hugdettu sem er algerlega ólógísk..er það líklega það sem þú þarft að gera.
 Skilurðu mig?? ´
MC2501526863819_ca1d92c3bb
Þetta var á fimmtudegi og vikuna á eftir kom þýska einmana skólasystir mín með tómlega og karllausa lífið sitt og settist hjá mér á steinþrepið. Hún hreinlega tindraði og glitraði og hamingjan skein af henni skærar en sólin.
  "Veistu hvað..ég ákvað að gera þetta sem þú sagðir mér..þú veist þetta með englana..ha? Ég meina ég trúi ekki svona dellum en þar sem ég hafði sossum engu að tapa ákvað ég að prófa. Á föstudaginn var ég á gangi niðri í þorpi þegar ég fékk allt í einu þá flugu í höfuðið að fara til London og dansa alla nóttina í næturklúbbi..bara alein. Sem er bara biluð hugmynd og alls ekki við mitt hæfi. En þessi hugmynd lét mig ekki  friði svo ég ákvað bara að skella mér, minnug orða þinna um að ég ætti bara að bregðast við og framkvæma hugdettur mínar. Allavega ég fór til London með lestinni..fann næturklúbb labbaði inn á gólf og byrjaði að dansa. Útundan mér sá ég hávaxinn og myndarlegan mann..hann var að horfa á mig og ég horfði á móti. Mér fannst eins og ég þekkti hann en kom honum ekki fyrir mig.Hann færði sig nær og við byrjuðum bara að dansa saman án þess að tala.
A184
Við dönsuðum saman alla nóttina eins og gamlir elskendur. Undir morgun kom það í ljós að hann býr í litla þorpinu þar sem skólinn okkar er og var að fara þangað..hafði sjálfur fengið þessi klikkuðu hugmynd um að fara til London að dansa...hann er hálfþýskur og á fyrirtæki í þýskalandi eins og ég. Og fer þangað aftur í sumar..eins og ég!  Og veistu...það er svo skrítið það er eins og þetta hafi átt að gerast, allt verið planað og undirbúið. Svo brosti hún og horfði á mig. 
Kannski af englum??
Hver veit??
untitled
Síðast þegar ég frétti af þeim bjuggu þau alsæl og hamingjusöm saman einhversstaðar í þýskalandi.
Já englar hafa nefnilega smekk fyrir öllu..hávaðasömum næturklúbbum í London og geta látið allt gerast þrátt fyrir vantrú okkar jarðlinga.
 Er það ekki bara hughreystandi og gott að vita??

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Falleg saga.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.9.2007 kl. 11:10

2 identicon

Falleg saga og maður tekur þetta að einhverju leyti til sín, því þótt ég sé í yndislegri sambúð núna og sé fósturpabbi ... þá hef ég aldrei þráð neitt meira en að verða pabbi sjálfur. Allt frá því ég átti samræður við afa minn átta ára (sko ég var átta ára þá!) og hann gaf mér kaffi í brúnan plastkaffibolla (plastbolla sem ég á í dag) ... þá vissi ég að ég vildi verða barnakarl og ætlaði að verða besti pabbi í heimi. Örlögin hafa látið mig bíða, og þola ýmislegt, en í gegnum súrt og sætt hef ég vitað það, að það er alltaf einhver tilgangur með öllu.

Hvort sem um engla verður að ræða eða ekki, þá bíð ég enn eftir þessari blessun að verða pabbi ... og trúi því að það sem á að gerast .... muni gerast.

Kveðjur frá Akureyri!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 11:45

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Dásamleg saga!  Takk  þetta er gott efni til að hugsa um. Þú hefur greinilega mjög ákveðnu hlutverki að gegna í þrepunum í lífi þínu...

Ragnhildur Jónsdóttir, 17.9.2007 kl. 12:00

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Frábært þetta líf Katrín.....og eins og þú segir; engar tilviljanir... 

Anna Einarsdóttir, 17.9.2007 kl. 12:09

5 Smámynd: Júlíus Valsson

...gott mál!

(Þetta er eiginlega svona.........(hum....)......svona stelpusaga)

Júlíus Valsson, 17.9.2007 kl. 13:05

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð "stelpu"saga. Strákar hafa líka gott af að heyra svona sögur.

Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 13:15

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Auðvitað er þetta stelpusaga. Allir vita að englar eru konur sem hjálpa bara stelpum og konum. Hvað heita þeir aftur sem eru alltaf að hvísla einhverju að strákunum....já nú man ég. Púkar!!! Þarf að skrifa eina púkasögu sem verður þá náttla strákasaga.

Kannski best að muna eftir að setja í fyrirsögnina..strákasaga eða stelpusaga eftir því sem við á. Það er nefninlega alls ekki sama eða..er það nokkuð???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 13:32

8 Smámynd: halkatla

frábærlega sniðug og skemmtileg saga 

greinilega einhverjar örlagadísir hér á ferðinni

halkatla, 17.9.2007 kl. 14:14

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábær saga án tillits til hvort hún er stelpu eða stráka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 15:24

10 Smámynd: Júlíus Valsson

Allar góðar sögur eiga rétt á sér. Ég er bara með flokkunaráráttu eftir of langa dvöl á skólabekk. 

Júlíus Valsson, 17.9.2007 kl. 15:53

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg saga, elska svona hluti. Eitthvað svo óvænt, þig langar í eitthvað og ef þú bíður nógu lengi þá kemur það til þín.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 16:18

12 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er dásamlegt ! vinkona mín sagði einu sinni við mig,

"það er orðið þannig að englarnir bíða í röðum eftir að við biðjum þá um hjálp. það er hreinlega atvinnuleysi hjá þeim !!!

því fólk er hætt að trúa á þá og þar af leiðandi biður það ekki um hjálp !!

AlheimsLjós til þín

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 17:18

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

FLott og gott, aldeilis frábært

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.9.2007 kl. 17:57

14 identicon

Þessi saga er yndisleg  Ég skila kveðjunni Katrín mín.

Kveðja

Ragnheiður Ingadóttir (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 18:33

15 Smámynd: www.zordis.com

Ég hnerra nú bara við lesturinn  englaryk og fiður út um allt!  Æðilseg saga sem fólk ætti að tileinka sér. 

Stelpu og Stráka englasögur eru yndi!

www.zordis.com, 17.9.2007 kl. 18:40

16 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk fyrir söguna, þetta er hárrétt aðferð og hefur dugað vel til ýmissa þarfa. Sá eða sú sem lokar á gamla kerfið, opnar sig fyrir breytingum og færir englunum verkefnið, fær sitt fyrr en síðar.

Ívar Pálsson, 17.9.2007 kl. 20:56

17 Smámynd: Viðar Zophoníasson

Ta er eg 4 dogum eldri en tu, gamall madur

Viðar Zophoníasson, 18.9.2007 kl. 05:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband