27.10.2007 | 11:55
Lent
Mikið rosalega er veðrið hressandi og birtan falleg. Ég er lent á landinu mínu góða og bíð á stofugólfinu hjá mömmu eftir næsta áfangastað og skipinu sem siglir með dótið mitt heim. Ætla fá mér eina með öllu í hádegismat og horfa á Esjuna út um eldhúsgluggann. Mikið hlakka ég til að koma mér fyrir og vera heima hjá sjálfri mér á alla kanta. Setja lítið jólaljós í eldhúsgluggann og horfa á það og friðarljósssúluna til skiptis. Bæði jafn falleg og fín. Já ég er friðsæl og fagnandi og afskaplega fögur með alíslenskt hairdú. Dóttir mín segir..."Mom you look like a real icelander now" enda er ég komin með hár sem lítur út eins og alvöru hár og liggur niður í stað þess að sveima í kringum hausinn á mér eins og óákveðið ský. Er meira að segja ljóshærðari og litfríðari en áður. Nú myndu sveitalubbarnir í héraðinu heima reka upp stór augu gætu þeir séð hina nýju mig. Það er mikill munur á mér sem enskri blómaros eða sem íslenskri valkyrju. Bara tvær ólíkar konur verð ég að segja.
Já það er voða gott að vera komin alla leið heim. Ég bíð spennt eftir að sjá hverju lífið skolar að ströndu að þessu sinni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 311442
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Hjartanlega velkomin heim
kidda, 27.10.2007 kl. 12:14
Innilega velkomin heim á Frón. Ég er viss um að allt mun ganga vel hjá þér. Enn og aftur velkomin heim í heiðardalinn
Ásdís Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 12:16
Velkomin til þíns heima, valkyrja
Bloggvinakveðja frá Als
Guðrún Þorleifs, 27.10.2007 kl. 12:17
Gott að heyra að allt hafi gengið vel, á stofugólfinu heima hjá mömmu og væntingarnar ... nýtt upphaf er dásamlegt spor sem hefur allt að geyma!
www.zordis.com, 27.10.2007 kl. 12:37
Ég bæti mér í hóp þeirra sem velkomna þig heim til okkar:-)
Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.10.2007 kl. 12:38
Vó hvað ég er búin að bíða spennt eftir þessari færslu. Velkomin, velkomin, velkomin og hvað mig hlakkar rosalega til að knúsa og kyssi (eins og Jenný segir) OMG til hamingju elskan
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2007 kl. 13:43
Gott að vera búin að fá þig heim - nú er bara að taka hitting á blog.vinina......
Velkomin heim, hjartans!
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 27.10.2007 kl. 13:50
Takk elskurnar...það skrítna er samt að mér finnst óþægilegt að blogga á íslandi...var miklu betra og öruggara einhvernveginn að blogga úr fjarlægð yfir hafið. Eins og maður sé sýnilegri þegar maður gengur á sama landi og þið...hehe. Þetta rjálast örugglega af kerlu og já ég sé fyrir mér að sitja sem fastast á kaffihúsum meðan ég bíð jólanna og drekka kaffi með bráðskemmtilegum bloggurum!! En fyrst þarf ég að ritgerðast svolítið og vonandi flytja í vikunni á mina Sólvelli og láta sólina skína á mitt nýja heimili.
Jamms....
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.10.2007 kl. 13:57
Velkomin heim.
Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 15:01
Velkomin heim, Snædrottning! Gott að fá þig heim
Hugarfluga, 27.10.2007 kl. 15:06
Velkomin heim bloggvinkona mín. Ég vona að Ísland taki áfram svona vel á móti ykkur eins og dagurinn í dag. Og engin ástæða til að ætla annað
Hafið það gott og gangi ykkur vel að koma ykkur fyrir
Ragnhildur Jónsdóttir, 27.10.2007 kl. 15:14
Velkomin heim
Hrönn Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 15:50
gangi þér vel kæra valkyrja.
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 15:56
Velkomin heim flotta kona.
Marta B Helgadóttir, 27.10.2007 kl. 16:51
Velkomin heim elsku Katrín mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.10.2007 kl. 16:58
Ó, hvað ég er glöð að vera búin að fá ykkur heim. Vona að við hittumst sem fyrst. Knús á liðið þitt!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.10.2007 kl. 17:38
Velkomi heim
Huld S. Ringsted, 27.10.2007 kl. 18:34
Velkomin heim.
Anna Einarsdóttir, 27.10.2007 kl. 22:44
Velkominn heim!!! Lentirðu á afmælisdegi mínum? Vá! Hlýtur að boða gott Takk fyrir kveðjuna og hlakka til að sjá þig þegar þú mætir með TÓMSNILLINGANA!
Margrét St Hafsteinsdóttir, 27.10.2007 kl. 23:23
Spennó! :)
gerður rósa gunnarsdóttir, 28.10.2007 kl. 06:33
Velkomin heim
Kaffið í Klettahlíðinni bíður ykkar
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 28.10.2007 kl. 10:23
Velkomin heim
Gaman væri að hittast við tækifæri.
Bestu kveðjur Ingigerður
Ingigerður Friðgeirsdóttir, 28.10.2007 kl. 16:34
Velkomin á Klakann!
Ívar Pálsson, 28.10.2007 kl. 20:57
Nú þarf að lesa nýjasta nýtt á minni síðu og senda mér bókatitla í vikunni
Marta B Helgadóttir, 28.10.2007 kl. 22:45
Kæra Katrín, velkomin heim...
josira, 28.10.2007 kl. 23:31
Takk fyrir allar þessar hlýlegur heimkomukveðjur kæru bloggvinir....en mér finnst ég samt ekki vera komin heim fyrr en ég er flutt inn með allt mitt hafurtask og bækurnar mínar komnar uppí hillu. Skipið siglir í höfn á morgun með búslóðina og ég ætti að vera búin að koma mér fyrir um helgina. Mikið ofboðslega rosalega frábærlega verður það nú geðveikt GOTT!! Kertaljós og kúr í eigin rúmi. Ohhhh.....
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2007 kl. 23:36
og takk fyrir fallegu fjallamyndina......upplifði mig í henni... hér á árum áður á minni hvítu yndislegu hryssu:
Kraumandi kraft, ótrúleg geta
frelsi í faxi verður að meta
Í fjallaferðum nýtur hún sín
elskulega merin mín
Þegar sest er í hnakkinn,
þá reisist makkinn
Forustuhross, mikið í reið
henni liggur gatan greið
Minningarnar sem koma fram hér
saman streyma um hjarta mér.
Tengdar urðum órjúfa böndum
í faðmi frelsis, á fjöllum og söndum
josira, 28.10.2007 kl. 23:45
Velkomin, hvar get ég nálgast kortin
Fríða Eyland, 4.11.2007 kl. 21:53
Mikið og innilega velkomin á Klakann, kæra Katrín!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.11.2007 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.