Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerir kona þegar hana dreymir...bara spaða til að byrja með???

Dreymdi skrítinn draum síðastliðna nótt eftir tilfæringar við andann um að gefa skýr skilaboðin í gegnum nóttina.

Spákona hringir og skipar konu í spá. Kona kemur og fær eintóm spaðaspil sem kunna engri lukku  að stýra. Kona fær hroll og hlykkjar sig í hnút. Spákona skipar svo konu  að draga tvö spil sem koma upp sem tígul tvistur og tígul nía.  Þegar í gegnum tígultvennuna kemur... raðast upp hjartaspilin og fylla herbergið...allt er dásemdin ein. HeartHeartLífið er lotterí segir hún og brosir. í gegnum tígultvennuna verður allt rétt.

Þetta gerist allt í draumnum eina..En morguninn eftir sækir kona í spákonu eftir mjög skrítnum leiðum sem segir farir sína eigi sléttar. Spákona hlær og segist fullviss um að..."Spaðar tákni að  allt sé fast...og hafi verið í 5 mánuði.... en tíglar opni leið fyrir hjartað.Heart

Og allt opnast og kona er í frjálsu falli beint inn í hamingjunnar vef. Að tvisturinn og nían tali fyrir alheiminn og samanlagt telji þau ellefu sem sé mastertala konu í lífinu.  Allt sem sagt í takt við hið eina sanna".

Og á morgun muni allt verða ljóst ....en ekki hvað??? 

kærleiksandiKona hugsar sitt og leggur svo á og mælir með að sannast muni hennar forkveðna vísa...

 

Góðum gægist velvild allra heima.

 

Annað augað opið fyrir góðsemi veraldar og  kærleiksríku gagni... en lokað auga muni eigi sjá allt það góða sem að því ber.

Hafið augun opin  kæru bloggvinir um allt það góða sem fer framhjá ykkur hvern einasta dag.

Hjarta, spaði , tígull eða lauf???

Eða eins og Steinn Steinar sagði...

??????? Sideways

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Að sigra heiminn er eins og að spila á spil

með spekingslegum svip og taka í nefið.

Og allt með glöðu geði

er gjarnan sett að veði.

Og þótt þú tapir það gerir bara ekkert til

því það er nefnilega vitlaust gefið.

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:35

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Veistu mín kæra vinkona, ég er engu nær eftir lesturinn um hvað er í gangi?  Ertu að leika þér að því að gera mann vitlausan úr forvitni eða hvað????

Knús samt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 23:37

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hulda Bergrós..takk fyrir botninn. Er búin að leita eins og vitlaus menneskja í bókahillunni að bókinni þar sem akkúrat þetta stendur!!!!

Og Jenný mín....þetta kemur allt í LJÓS.

Bara stórundarlegur dagur.

Hey....sáuð þið málverkasýninguna mína sem var í beinni í Ísland í dag á Uppsölum?? Mín var bara ánægð með það allt saman!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 23:48

4 identicon

Viðverukvitt.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 03:42

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Hvað sem er að gerast og hvað sem þú ert að segja þá fannst mér lesningin skemmtileg og myndin falleg

Sporðdrekinn, 1.4.2008 kl. 05:01

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Nú bara hringsnýst allt í mínum kolli, hjarta, spaði, tígull, lauf.......  OK þú lofar okkur að fylgjast með því eitthvað veist þú sem við vitum ekki hehehe     Kv. inn í bjartan dag.

Ía Jóhannsdóttir, 1.4.2008 kl. 07:16

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

He he..Það er nú ekkert nýtt að fólk skilji ekki hvað ég er að fara.

Sko mig dreymdi draum eftir að ég hafði sagt alheiminum að ég vildi fá skýr skilaboð um ákveðna hluti svo voru að þvælast fyrir mér. Þá dreymdi mig drauminn um spákonuna og spilin..hitti svo alvöru spákonu í gærdag..þið vitið í þessum raunveruleika hér...sem réði fyrir mig drauminn á svo sniðugan hátt. Með talnaspeki og alles. Og út úr því samtali fæddist eða efldist hugmynd sem er bara brilliant. Sú hugmynd þarf alveg heilt blogg fyrir sig með myndum og skrautskrift.

Eigið góðan og dreymandi dag...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.4.2008 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 310927

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband