Leita í fréttum mbl.is

Umbreytingar

scanned paintings 2 emailÞegar ég les bloggið mitt til baka sé ég að ég hef breyst og er orðin miklu "Íslenskari" svona meira hipp og kúl á yfirborðinu og feimnari með innaníið...ekki eins mjúk og flæðandi og ég var fyrir svona hálfu ári. Það mátti nú svo sem eitthvað á milli vera. En nú þarf kona að fara í náttúrugöngur og finna stundir til að sitja, hugsa og hlusta á sjálfa sig en ekki allan þennan lífsins nið sem lætur mikinn í ytri veröldinni.

10100920A~Butterfly-Chariot-PostersÞað þýðir ekkert að gleyma sér. Dró spil í morgun hjá Vilborgu bloggvinkonu og skilaboðin til mín voru þau að það væri ekki það sama að hafa mikið að gera og að vera skapandi. Ég skildi það. Hef haft svo rosalega mikið að gera undanfarið að ég hef ekki haft tíma til að vera til og skapa mér mína eigin tilveru á mínum forsendum.

Hearts-Print-C10113043Mér þykir væntum landið mitt og fólkið mitt hérna og ykkur bloggvinir. Og nú verður hjartastöðin bara höfð opin þó hún geti verið pínu viðkvæm í hryssingslegri veðráttu. Megi góðvildin vera ykkar förunautur í dag og mæta ykkur hvar sem þið komið.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús inn í daginn elsku Katrín

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 07:56

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég lít á þig eins og einskonar leiðarljós Katrín mín.  Þú er einhvernveginn ofan og utan við raunveruleikann.  Haltu þín striki, því svo sannarlega er þörf á fólki eins og þér í þessari hörðu köldu veröld. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.5.2008 kl. 09:04

3 Smámynd: www.zordis.com

Knús inn í daginn zinn .... ég aetla ad opna mína hjartastöd líka .... finna til í hjartanu!!!

Oooog svo zurfum vid ad skapa og láta gott af okkur leida.

"work smart not hard"

www.zordis.com, 20.5.2008 kl. 09:15

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

einhverntíma ekki fyrir löngu kommentaði ég einmitt þetta á blogginu þínu ! hafðu fallegan dag og lát flæða

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 12:06

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Nákvæmlega eins og Jóna Ingibjörg segir, þessi íslenzki skrápur er svo sannarlega staðreynd. Ég skil, finn og hef upplifað. Gangi þér vel með að virkja - stöðina.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.5.2008 kl. 21:16

6 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Stuðningskveðja ljósið mitt!

Vilborg Eggertsdóttir, 21.5.2008 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband