22.1.2009 | 09:49
Tíminn er NÚNA!!! Baráttan er hafin.
Má eiginlega ekki vera að því að blogga..hef verið að lesa yfir fréttir og blogg eftir atburði næturinnar.
Harkan sem BB boðaði í gærmorgun er greinilega innleidd. Það er auðvitað barnaskapur að ætla að þeir sem hér hafi völdin og auðinn muni leyfa að valdabáti þeirra sé í alvöru ruggað án þess að þeir bregðist harkalega við. Víla ekkert fyrir sér að beita gasi, kylfum, lögregluher, þöggunum, kúgunum, óttaáróðri og bara hverju sem þarf. Völdin munu þeir aldrei láta baráttulaust og það segir sig sjálft að nú er farið að fara um þá þegar þeir sjá að okkur er fúlasta alvara með að við krefjumst breytinga og að spillingunni sem gegnsýrir samfélagið okkar verði útrýmt.
Það færist harka í málin...ég dreg til ábyrgðar ráðamenn sem hafa skellt skollaeyrum við ákalli fólksins sem hefur staðið friðsamt á götum úti svo mánuðum skiptir. Það er margbúið að vara þau við að svona geti farið..en svo hella þau olíu á eld í hvert sinn sem þau opna munninn í fjölmiðlum eða á fjöldafundum með hroka sínum og vanvirðingu við fólkið í landinu. Og senda svo alvopnaða lögreglu á fólkið þegar það bregst við ömurleikanum sem við blasir með þau orð á vörum að þau séu hreint ekkert á förum enda séum við dauðvona og grafin án þeirra. Hvílík firring!!!!
Því miður leynast í röðum hins almenna mótmælanda fólk sem vill fæting og ofbeldi...eins er innan raða lögreglunnar. Þar leynast inn á milli fantar sem vilja það líka. Við hin sem erum þúsundir skulum halda áfram baráttunni af krafti styrk og samstöðu og gefum ekki tommu eftir..án ofbeldis eins lengi og við getum. Við skulum ekki leyfa neinum að rugla saman baráttu fólksins í landinu gegn grímulausu valdinu....við ofbeldisverk fárra. Lögreglan má líka alveg passa sig að vera ekki stöðugt að ögra. Vöndum okkur, tölum saman og verum virkilega vakandi í dag og næstu daga og höldum hópinn. Verjum okkar fólk og grípum inní þegar ofbeldi er að brjótast út. Það vill enginn að fólk stórslasist hér.
Þegar ég tala um "okkar fólk" á ég við að við verjum hvern þann sem veitst er að með ofbeldi..hvort sem það er almennur borgari eða lögreglumaður við störf sín og HINDRUM ofbeldi.
Friðsamir mótmælendur merkja sig nú með appelsínugulu!!!
Vinnum þetta saman..sjáumst á Austurvelli með troðfulla potta af friði og krafti..og sigri okkar fyrir réttlæti!!! Tíminn er NÚNA!!!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari
Athugasemdir
Frábært þið eruð hetjur! Allt sem þeir gera ykkur gera þeir mér, hvert kylfuhögg piparúði eða táragas. En vonandi fer allt friðsamlega fram. það er ekki undir mótmælendum komið eins og lögreglan segir, heldur undir Lögreglunni, það virðist nefnlega vera að þeir byrji alltaf. Það er rétt að halda því til haga.
En gott gengi Katrín mín og aðrar hetjur!
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2009 kl. 09:53
Ég er að safna liði! Sjáumst vonandi seinni partinn. Ég hringi í þig.
Hrönn Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 10:09
Já Hrönn. Þegar ég gekk í gegnum bæinn í gærkveldi eftir velheppnuð og frábær mótmæli við Þjóðleikhúskjallarann var ég með von í brjósti en samt sat í mér óhugur. Stoppaði og talaði við strákana sem voru að spúla alþingi eftir eggjakst dagsins og málingarslettur..á Bílnum þeirra stendur ALLT AF. Ég spurði hvort þeir ættu ekki fyrirtæki sem héti ALLT ÚT og hvort það gæti ekki hreinsað út úr alþingi fyrir okkur vanhæfu ráðamennina) Þá vissi ég ekki hvað beið í nóttinni..en ég heyrði lætin heim tíl mín og hugsaði hvort é ætti að kíkja niðureftir en ákvað að gera það ekki því ég var svo þreytt eftirdaginn og kvöldið.
Fékk símtal áðan frá bretlandi þar sem ég var spurð hovrt ég væri í lagi eftir nóttina..birtist víst mynd af okkur að mótmæla í einhverju stóru blaði þar. NÚ verða vinir mínir í englandi steinhissa að sjá að ég hef breyst í byltingarsinna..en vita þó vonandi eins og ég að ég er og verð friðsamur bytlingarsinni.
Hvað mun þessi dagur bera í skauti sér???
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 10:27
Tökum upp appelsínugula litinn til að aðgreina okkur frá þeim sem vilja skemma friðsöm mótmæli. Takk fyrir að standa vaktina Katrín.
Sigrún Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 11:24
Var að koma heim úr bænum..stöðugt bætist í MÓTMÆLENDAhópinn. Kom bara til að finna mér eitthvað appelsínugult til að merkja mig með og fleiri yfirhafnir.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 12:14
Kæru bloggvinir og samherjar..vinsamlegast skrifið allar athugasemdir með appelsínugulu framvegis hjá mér sem tákn um samstöðu gegn ofbeldi af öllu tagi
LÍKA OFBELDI RÍKISSTJÓRNARINNAR!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 12:26
Jebb, þeir munu nota allar þekktar og óþekktar leiðir til að troða okkur í skítinn. Þeir munu nota öll ljót orð og ljót orðatiltæki sem þeir þekkja til að lítillækka þjóðina. Kalla okkur lýðskrumara, skríl, lukkuriddara, tækifærissinna og hvað eina. Við vitum betur og látum þá ekki draga okkur niður á þeirra plan. Við gefumst ekki upp!
Arinbjörn Kúld, 22.1.2009 kl. 14:12
Appelsínugult skal það vera hér. En hvort ég láti mig hafa það að kláðast þeim lit er svo annað mál!
Ævar Rafn Kjartansson, 22.1.2009 kl. 14:21
Sammála þér í öllu
Hólmdís Hjartardóttir, 22.1.2009 kl. 18:15
Sammála..
Ég er minn fulltrúi... þarna og ber ábyrð á mér og mun ekki beita ofbeldi... það er allt og sumt sem ég þarf að gera.
Brynjar Jóhannsson, 22.1.2009 kl. 18:42
Gangi ykkur rosalega vel
halkatla, 22.1.2009 kl. 19:48
Er svo þakklát fyrir fólk eins og þig!!
Er með ykkur í anda :o)
Vilborg, 23.1.2009 kl. 00:51
Vitið þið að lögreglan fór úr varðstöðu sinni við alingi í gærkveldi og við þessi appelsínugulu tókum við..og það heppnaðsit fullkomlega?
Þetta var mögnuð stund..við stilltum okkur upp fyrir framan lögreglumennina og svo laumuðu þeir sér bara í burtu. Og það voru allir almennilegir, mótmælendur, lögreglumenn og aðrir borgarar. Svona á þetta að vera. Með samstöðu og samvinnu er allt hægt.
Mér fannst þetta táknræn og merkileg stund. Svona skrifast nefninlega sagan...af mörgum litlum merkilegum skrefum. Sjáumst á Austurvelli í dag. Og þið getið séð mig á forsíðu fréttablaðsins í dag
Gasalega fín og sæt hrópandi eins hátt og ég gat..Vanhæf ríkisstjórn!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.1.2009 kl. 09:20
Langflottust
Arinbjörn Kúld, 23.1.2009 kl. 23:50
Þú ert ekkert smáfín framan á Fréttablaðinu í dag ofurmótmælandinn þinn
Svo skilst mér að þú munir skreyta frummælendapall á morgun á Austurvelli!? Ef satt reynist langar mig til að óska þér góðs gengis.
Ég vona að ég megi vera svolítið stolt af þér líka! Ég get líka boðist til að bera hluta stoltsins með þér svo það sligi þig ekki
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.1.2009 kl. 01:55
Úpps! Datt allt í einu í hug að það ætti nú að vera hægt að komast að því hverjir væru með framsögu á morgun og uppgötvaði þannig að það er einhver reginnmisskilningur að þú sést að flytja ræðu á morgun
en það fer að líða að því er það ekki
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.1.2009 kl. 02:00
Ég er búin að skrifa ræðuna enda var planið að ég flytti hana í dag..en svo urðu smá áherslubreytingar...en minn tími mun koma!!
Sjáumst öll á Austurvelli!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.1.2009 kl. 05:07
gangi ykkur vel að vera appelsínugul. það er svo mikilvægt að mótmæa friðsamlega, til að skapa ekki ofbeldisorku í kringum sig. í þeim átökum sem hafa verið hérna í dk, hefur siggi (sonur minn) klæðst kanínubúning og gengið á milli þáttakenda og deilt rósum, bæði til lögreglu og mótmælanda, það er sterk leið sem hefur vaktið athygli, að sameina í staðin fyrir að sundra.
KærleiksLjós frá konu í Lejrekotinu
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 24.1.2009 kl. 07:37
Þinn tími er kominn Katrín mín
ef það hefur farið fram hjá einhverjum ættu þeir bara að líta framan á Fréttablaðið frá í gær
Ég ætla að gera ráð fyrir að ég fái að sjá eða heyra ræðuna þín þegar þar að kemur og segi þess vegna: hlakka til
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.1.2009 kl. 13:51
Frábært að hitta þig í dag ofurmótmælandi!
Vona svo sannarlega að þú steinsofir á þínu mótmælendaeyra.
Hrönn Sigurðardóttir, 24.1.2009 kl. 23:41
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.1.2009 kl. 00:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.