Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Katrín og Katrín og Katrín og Katrín

Svo margt sem ég les hér á blogginu er í mínu nafni. Katrín. Hvernig stendur á því að svona margar konur sem heita mínu nafni eru að tjá sig hér??? Nei segi svona. En það er greinilegt að það fylgir nafninu óendanlega mikil tjáningaþörf!Whistling

200190964-001

Katrín Katrín eða Katrín?


Takk fyrir meira en 500 hundruð heimsóknir í dag!!!

Algert met..ég þori ekki að fara að sofa svo ég sjái endanlega niðurstöðu heimsóknametsins fyrir daginn. Held samt ennþá að þetta sé eitthvert plott. Sé ekki alveg svona cool.

Vegna þess að ég veit alveg að svona sérvitringur eins og ég næ ekki athygli fjöldans. Skrifa hvorki um pólitík eða kynferðislega draumóra vinkvenna sem aldrei nokkunr tímann trúa mér fyrir neinum afrekum á þeim sviðum. Og ef ég ætti að blogga um mín afrek þar á vitleysingahetjudraumum...myndu flestir bara sofna og hrjóta. Hef sjaldnast haft þá getu eða hugaróra til að lenda í svo klikkuðum aðstæðum. Já svo yndislega boring er ég nú. Læt ekki tannlækna né tantrajógasnillinga spila mig uppí einhverja vitleysu. Svo gasalega jarðbundin og raunsæ sem ég er..eins og lesa má af bloggi mínu. En eingetin börn gæti ég átt með einkennilegum himnaverum sem er miklu dagfarsprúðara en hitt.

5f320970

Kona bara spyr sig eftir einn af þessum skritnu dögum..hvað gæti svo sem ekki gerst??

Þýðir að magi sem stendur út fyrir mæld umfangsmót gallabuxna þýði eitthvað annað en að það sé tími kominn á súkkulaði og egglos? Um miðjan mánuðinn er ekki um neitt annað að ræða. Og svei þeim sem halda eitthvað annað. Unaðslegt súkkulaðitímabil er hafið!!!Jummí!!

Njótið lífsins konur..og menn. Súkkulaðið gerir þetta allt bærilegra.

10186449

Hvílík byrjun á draumi í dós???

Sjáið það oftar en 500 sinnum á þessari síðu.

Er á meðan er!!!Joyful

Ég er samt svo algerlega á því að þetta sé eitthver rugl. Ég meina hver nennir að spá í svona hluti eins og hér koma fram meðan framsókn og sjálfstæðismenn eru á fullu að rústa veröldinni?

Er ekki alveg ljóst að ég er svoooo ópólitisk??? Og mun ekki kjosa neitt!

Held bara með

10133137

nýjum sjónarhornum.

Hæna sem enn á eftir að komast upp í turninn og njóta úsýnisins?

 


Skrítnir draumar og villandi tölur. Kosningatölur???

Það er ekkert eins og það á að vera í dag. Meira að segja moggabloggsteljararnir eru  í rugli. Ég er með hundruði heimsókna sem og aðrar vinkonur mínar ...við erum samt flestar á sama róli svona dagsdaglega. Núna er allt á blússi og ég veit ekki hvort mér líkar. Þetta er eins og að vera partur af leikritinu. Vera partur af einhverri samkeppni sem maður skilur ekki. Við hvað er verið að keppa og hvar??? Þjónar mér ekkert að tölur rjúka upp en engin ærin ástæða til. Mér finnst bara fínt að hafa mína daglegu bloggvini hér og spjalla við þá í gegnum kommentin...engin ný komment frá neinum nýjum en hundruðir heimsókna og enginn segir neitt eða kommentar???

Nei ég er ekki að kaupa þetta. Gengur ekki upp!!!! Ef maður tæki svona flug allt í einu sæjust þess einhver merki einhversstaðar. En það er ekki svo. Gæti alveg hlýjað egóinu undir vængjum....en samt svo augljóst að einhver stjórnar einhversstaðar.

10117629

Passar ekki.

Vissi það bara þegar ég vaknaði í morgun að þessi dagur væri ekki eins og hann sýndist. Dreymdi að Ómar Ragnarsson væri að keyra um á stórum svörtum forstjórajeppa um göturnar og horfa niður á almúgann. Íklæddur svörtu frakka og svörtum hönskum. Merkilegur með sig og nennti ekki að tala við fólk.  Keyrði framhjá litlum verlsunum þar sem hálsmen voru til sölu eftir mig, sem ég hefði hannað sem voru tveir fiskar spyrrtir saman og neðan úr sporðunum hengju glitrandi þræðir. Og í draumnum fannst mér fiskarnir tákna kristsvitund að mæta annarri vitund hér á jörð og þræðirnir væru merki þess að það myndi breiðast út. Og ég þurfti svo að komast á ákveðinn stað en enginn vildi taka mig þangað. Svo ég lagði af stað ein en eftir langa göngu áttaði mig loks á áttinni sem ég þurfti að fara. Sömu átt og Ómar og hans bíll. Í átt að einhverri birtu bak við fjöllin.

Ummm..skrítið.

10021007

Hvaða form talar til okkar þarna??? Hver er leiðin?

Kannski á morgun verður þetta allt skýrt en í dag er það í loftinu.

10149831

Hvað snýr fram og hvað snýr aftur? Hvað er eiginlega hvað?

Horfðu í spegilinn og mundu ásjónu þess sem segir satt.

Núna eru mikilvægir tímar..við verðum að sjá hvað er hvað.

Hlustaðu og skoðaðu.

10149832

Þessi draumur segir að ekki er alllt sem sýnist og þú verðir að vera vakandi og sjá.

Hvað???

Bara rosalega skrítinn dagur eitthvað.

Og metaðsókn að blogginu.

Hmmmm.

 


Ekki dagur

í dag er ekki föstudagur

Í dag ætla ég ekki að slóra við vinnuna

Ekki að gefast upp þó jólaskapið láti á sér standa og standi fyrir jólakortagerðinni

Ekki að hugsa um að það er frekar svalt úti i dag

Ekki að trúa mínum eigin augum um bilaðan teljara á moggablogginu..hehe

Ekki að umbera lengur bullandi klikkað heilbrigðiskerfi www.gjonsson.blog.is

Ekki að blogga um talandi tréð sem ég fann í morgun

ekki að halda eitt augnblik að þetta sé ekki besti dagur lífsins.10093576

Og það er ekki bannað að setja inn athugasemdir nema þær séu

ekki skemmtilegar eða jákvæðar á þessum ekki degi.

Ekki brosa!!!!

 


Sögu og ljóðakeppni...vertu með!!!

Hér koma 5 myndir. Þú mátt ráða hvort þú semur sögu um þær allar saman,

hvort þú velur eina þeirra til að semja sögu út frá

eða hvort þú vilt deila hugsýnum, setningum eða ljóði fyrir hverja mynd.

 Þetta þarf samt allt að vera þitt eigið..frumsamið sem sagt.

Mynd 110048275

Mynd 2200195440-001

Mynd 310027701

Mynd 4200523411-001

Mynd 510120668

Já þetta eru frekar skrítnar myndir en ættu að ýta hressilega undir hugmyndaflugið. Og það eru að sjálfsögðu verðlaun eins og síðast. Bloggarar kjósa svo bestu söguna, ljóðið eða innsýnina. Mundu bara að gefa upp númer hvað myndin/myndirnar er/eru sem þú velur til að skrifa um.

Sögukeppnin er opin fram á föstudagskvöld og svo verður kosið um helgina..ok?

Góða skemmtun.


Uppnumin bloggfærsla og elskaðar frumur

Nú gæti ég grátið. Er búin að sitja hér og setja saman algerlega einstaka bloggfærslu. Þið hefðuð átt að sjá myndirnar og umræðuefnið.

 Það er ekki oft sem andinn kemur svona allsvakalega yfir mig eins og hann gerði í morgun. Og nú hún er horfin, eitthvað útí geiminn eða í holu þessi bloggfærsla. Ég er með hjartslátt og neita að trúa þessu. Lífið verður aldrei eins fyrir ykkur án þessara upplýsinga. Og ég hef ekki tíma til að gera hana aftur enda man maður ekkert hvað maður skrifar þegar maður er á svona flugi þegar maður loksins lendir. Eina sem ég man að þetta var bara frábært.

702613

Jæja. Verð að lifa með því.

En..eitt skemmtilegt. Einn vitringanna vinur minn er að koma í morgunkaffi. Við ætlum að ræða efni og innihald bókarinnar Biology of belief. Gamli vitri vinur minn fór nefninlega á ráðstefnu með höfundinum fyrir nokkru síðan og er uppnuminn af þeim upplýsingum sem þar komu fram. Hann hringdi í mig  og sagði "Katrin my darling. You have to buy and read this book and then we have coffe together..ahh?It is how you can transform your life...it is about how to be healthy and happy. Be good to your cells". Read and then we have coffe..ok? Svo nú er komið að morgunstund með gull í mund..sem þýðir í þessu tilfelli..ferðalög um lendur hugans og andlegir fjársjóðir uppgötvaðir.

10001645

Farið vel með frumurnar ykkar. Þær eru svona 50 billjón trilljón og hver og ein einasta bregst við því sem þú hugsar og hvernig þér líður. Og líf þitt er útkoman af því hvernig frumurnar þínar hafa það..andlega og líkamlega..hehe. So be good!!! Besta útkoman fæst með því að elska sjálfan sig skilyrðislaust.  Það er mottó dagsins.

Heyrumst!!

p.s rakst á þessar upplýsingar á síðunni hjá Guðjóni Bergmann og set þær hér inn og veit að Guðjón fyrirgefur mér stuldinn..ég bara kann ekki að linka ennþá. Mæli eindregið með að þið sjáið þessa mynd. Örugglega frábært að sjá hana á stóru tjaldi.

The Secret

Fimmtudaginn 3.maí verður heimildar-/innblástursmyndin The Secret sýnd í stóra salnum í Háskólabíói. Ég er búinn að sjá myndina tvisvar og er svona 90% ánægður með það sem þar kemur fram (að mínu mati vantar dálítið inn í jöfnuna og svo eru loforðin í stærri kantinum - að öðru leyti er þarna um að ræða frábæran innblástur og góða innspýtingu í umræðuna um stjórn og mátt hugans). Það eru Stjórnarfélag Íslands og Salka sem standa fyrir þessari sýningu.

Hægt er að nálgast ÓKEYPIS MIÐA á sýninguna með því sem smella á http://www.stjornandinn.is/mail/user/maillist/viewletter/ccc4e142be73/535

Sjálfur kemst ég því miður ekki. Hefði haft gaman að því að sjá fyrirlesarann sem kemur sérstaklega frá Bretlandi til að tala um "aðdráttarlögmálið".

Ég mæli með því að sem flestir kíki á sýninguna og myndi sér sína eigin skoðun á innihaldinu í stað þess að sveigjast með eða móti í samfélagsumræðunni.

 

 


Gömlu góðu dagarnir þegar Guð var ekki bankastjóri!

hin blinda samheldni

Æ er þetta ekki nefndin sem þarna.. man aldrei neitt og veit ekkert alveg hvað er hvað eða hverjar reglurnar eru???

Eða er þetta framsóknarflokkurinn með sitt víðfræga útsýni?? Eða var það víðsýni??' Eins gott að ég er ekki í nefnd..gæti sossem notað monninginn en líkar ekki að taka að mér störf sem ég kann ekki..eða man ekki hvernig á að gera. Held mig bara við að lita. Lita samt alls ekki blátt.

200069844-001

Ég man líka þegar ég var lítil og fór í sunnudagaskóla í litlum skúr á fótboltavellinum. Þar lærði ég um Guð og mann og þeirra fína samaband. Alls konar skemmtilegar sögur og ævintýri um logandi runna,  engla og regnboga. Núna held ég að Guð sé orðinn bankastjóri. Þar gerast sko kraftaverkin nú á dögum !

Fimm aurar og tvö skuldabréf verða bara að Rauða hafinu að umfangi sé ekki borgað á réttum tíma.  Svo rignir ekki lengur eldi og brennisteini. Bara peningum. Já það eru breyttir tímar.

200069844-002

Held að ég sé gamaldags. Fer eftir boðorðinu um að dæma ekki nema hafa verið í annars manns skóm. Reyndar hefði ég aldrei efni á Gucci leðurskóm..en mínir eru alveg ágætir þó gamlir séu. Og ég get gengið í þeim framhjá jeppunum á bílastæði bankans.

Jamm.

Lífið er gott ef maður á góða skó.

200125925-001

Og man hvað er hvað.


Jól eða sumarból?

jólamynd Malla Jólin, jólin, jólin koma brátt..

...jólaskapið kemur smátt og smátt...!!!jólamynd MallaHeartHeartHeart

Hugsið ykkur það er fyrsti maí og ég er að gera smá jóla...og þarf að vera í jólaskapi og jólastemmningu svo ég geti skapað eitthvað afskaplega jólalegt..hugsa um jólabjöllur og jólasnjó, jólasveina og hreindýr en eina sem kemur eru einhver ævintýratré með álfum og furðuverum sitjandi í greinum spilandi á töfraflautur og flögrandi litfögur fiðrildi í kring.

Það er af því að það er sumar hér og ég er í miðjum skóginum og sólin skín og Cliff Richard ómar í útvarpinu...We are going on a summerhollyday..jejeje. Ó hjálp!!!

200131177-001

Ég veit hvað ég geri.

Pálmi minn Gunnarsson bloggvinur..ef þér fer að líða eitthvað skringilega þá er það bara af því að ég skellti Jólaplötunni með þér og stráknum þínum á fóninn. Er að hlusta á Friðarjól núna. Klikkar ekki!!!!

Og svo upp með rauða litinn og...tra la la..gleði og friðarjól. Dreg fyrir og kveiki á kertum og læt kallinn baka piparkökur og setja á sig skotthúfuna. Þá reddast þetta.

Gleðilegar jóla og hátíðarkveðjur til bloggvina nær og fjær, til sjávar og sveita, í uppsveitum og á granaskjóli koma hér á jólahjóli...Sko ég er búin að missa það.  Sideways

Borgar sig ekkert að vera að rugla með árstíðirnar..maður verður bara ga ga.

Happy kröfugangs.


Forever young?

200511781-001

Ekki orð.

Bara tilfinning.

Þó hún sé greypt í stein segir hún meir en nokkur andardráttur.

Heit minning, greypt í stein.

Greypt í sálu.

Heit.

Endalaus tilfinning.

10162333

Hinir gömlu muna líka.

Ekki gleyma þeim.

Lifandi tilfinningar og minningar í gömlum líkömum sem við skynjum ekki.

Horfum framhjá lifandi, tifandi sálum í hrörnandi umbúðum.

Horfum framhjá gamla fólkinu okkar eins og þau séu ekkert. Tóm.

10163842

Skynjum ekki að eitt tekur við af öðru.

 Allt jafnmikilvægt.

Að frá þeim tökum við við fortíðinni

og getum haldið áfram.

10129528

Synd þegar við gleymum hvaðan gott kemur og hverjir lögðu veginn okkar.

Í ærandi hávaða nútimans gleymist viska forfeðranna.

Hlýju gömlu vinnulúnu hendurnar sem lögðu grunninn.

Klöppuðu okkur á kollinn og áttu tímann sem er farinn.

Og við horfum starandi út í loftið og heyrum ekki.

Gömul orð, gömul ljóð, gömul hljóð.

Drukknandi í ærandi tímaleysi.

10041867

Tikk takk,tikk takk, tikk, takk!

Afi minn og amma mín

úti á Bakka búa

þau eru  bæði sæt og fín

Þangað vil eg fljúga

10048584


Ekki heppni...heldur Sköpun!!!

Nú liggur mér á hjarta.

love

Var að lesa bloggið hennar Zordisar sem ætti að vera skyldulesning hvern morgun fyrir þreytta og þjakaða íslendinga því það er svo upplyftandi og gefandi að það hreinlega setur man á ský. Einhver sagði þar að Zordis væri svo heppin. 

Að eiga sér dýrindislíf og dýrðardaga sem og alla hina dagana hefur ekkert með heppni að gera. Það hefur með hugarfar og hugsun og tilfinningu að gera. Það hefur með það að gera að vera opin og sannur og mæta lífinu eins og það kemur fyrir á hverri stundu með þann einlæga vilja í hjartanu að sjá það fallega og það góða í aðstæðum. Sama hvað. Að vera með opinn hugann og sjá og skynja alla þessa endalausu fegurð sem felst í þessu ævintýra lega lífi. Og það skapar hver mannvera innra með sér..líf hennar verður ekki svo fyrir einhverja óljósa heppni.10098378

Þarna er að verki innri vitund og sköpun. Yfir þessu búum við öll...alltaf! Það sem við hugsum og finnum innra með okkur leitar að samsvörun í veröldinni og laðar það eða dregur til okkar í samskonar formi.

Orkuformi.

Þess vegna skiptir það svo miklu máli að hafa þá ætlun að sjá og skynja í samræmi við drauminn okkar því það eru töfrarnir, neistarnir sem byrja að búa hann til og gera hann að daglegum raunveruleika okkar. Að hjartað og hugurinn séu í takt.

Hugsandi og sláandi fyrir kærleika og kátínu.

10135038

Með því að byrja að þræða þessar hugmyndir okkar upp á band og safna þeim og gæta þeirra vel daglega. Reyna að ná jafnvæginu smátt og smátt. Að einsetja sér að hugsa meira og betur hvern dag í þá átt að allt er gott og að útkoman verði einungis einstök í lífi okkar, verður orkubreyting í huganum og hjartanu og útsýnið mun bjartara og betra. Og þá fara að verða til fleiri perlur ..hugmyndaperlur og bjartar og litfagrar hugsanir sem safnast á þráðinn okkar og fara að móta lífið og stefnuna.

10135037

Lífið okkar og við förum að draga að okkur fallegri liti og fleira fólk sem vill bara gott. Sem getur horft á það góða og leyft ljósinu sínu að lýsa sjálfum sér og þér. Gefðu sjálfri/sjálfum þér þá gjöf að setja ljós í hugann og hjartað og byrja á þessu augnabliki að muna hver þú raunverulega ert. Skapari og mótandi alls þess sem er í lífi þínu. Hlustaðu þó ekki sé nema í 5 mínútur daglega í þögn á tónlistina sem leikur lífslagið þitt. Það er þarna . Innan í þér. Þú þarft ekkert að gera nema hlusta hljóð/ur og komast í takt. Heyra þinn tón og læra að hreyfa þig með. Fylgja þínu eigin lagi.

200133701-003217338

Hætta að hugsa um hvað öðrum finnst og vera bara það sem þú finnur innra með þér. Niður með grímuna sem við felum okkur á bak við. Eina sem hún gerir er að halda okkur frá hvert öðru. Því við erum öll eins og þráum það sama. Hvort annað og samræmi og jafnvægi. Frelsi. Sannleika. 

 Og það er allt þarna. Og það frábæra er að það hefur ekkert með heppni að gera, lukku eða krukku fulla af silfurpeningum. Þetta hefur bara með þig að gera. Hver þú ert þarna inni og að þú byrjir að muna eftir kraftinum þínum og hvað þig langar mest að gera og af hverju þú ert hér. Og dansir svo lífsdansinn við lagið þitt. í þínum takti. 200523617-001 Alveg þar til þú ákveður að næsta umbreyting sé tímabær.

Eigðu yndislegan dag troðfullan af sköpun og ljósi.

Og trúðu mér.536f4350

Þú hefur þetta allt í hendi þér.

Þessi veröld er þín.

Skapaðu!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband