Færsluflokkur: Bloggar
29.4.2007 | 15:21
Eru sunnudagar ekki himneskir???
Sunnudagar voru greinilega skapaðir á himnum af hundrað þúsund englum. Uppskriftin af alvöru sunnudegi er einhvernveginn svona.
Sofa út ef mann langar..vakna snemma af maður vill. Borða súkkulaðiköku í morgunmat og ískalt kók með eða hollt múslí og spælegg. Klæða sig í dýrindissparikjól og klossa..eða spranga um nakin í garðinum og láta vindinn gæla við handarkrikana. Hitta alla fjölskylduna í guðdómlegum brunch og tala og faðma og hlægja mikið eða njóta einveru og spila bara tónlist sem maður sjálfur fílar. Sem sagt maður má bara ráða hvernig maður notar þessa sætu sunnudaga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.4.2007 | 22:02
Fiskar og fransbrauð
í dag fórum við öll í yndislegan göngutúr og gáfum fiskunum brauð. Ha fiskunum? Meinarðu ekki öndunum?
Nei við fórum og gáfum fiskunum brauð. Franskbrauð.
Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Eftir að hafa gengið eftir skógarstíg upp á hæðina þar sem golfvölurinn er í St Johns þorpinu litla þar sem Karen og Steve búa, stoppuðum við á brú sem liggur yfir lestarteinana. Biðum þar eftir hraðlestinni og fundum hvernig hvert einasta líffæri nötraði í líkamanum þegar hún brunaði undir okkur og brúnna. Höfðum ekki hugmynd um að á svipuðum tíma varð jarðskjálfti hér uppá 4 komma eitthvað á richter!
Síðan héldum við göngunni áfram þar til við komum að stórri og fallegri tjörn sem er þarna við golfvöllinn. Flott tré og allt í blóma. Og fiskar sem borða brauð og eru svo gráðugir í það að þeir reka trýnið upp úr vatninu og slást um brauðbitana.
Þeir eru svona a.m.k 30 cm langir og nokkuð stórir og galopna munninn og synda næstum á land til að fá sér franskbrauð. Supu hveljur og slurpuðu og lætin voru svo mikil og gusugangurinn. Slagurinn um brauðið viðgengst greinilega ekki bara hjá manninum og öndunum.
Þetta fannst mér sko sniðugt og skemmtilegt. Hef bara aldrei séð það fyrir mér að gefa fiskum brauð. Eins gott að Jésú vini mínum datt það ekki í hug þegar hann mettaði 5000 manns með tveimur fiskum og fimm brauðum. Hvað ef hann hefði bara gefið fiskunum brauðið?
Bara yndislegur dagur og Frú Alice Þórhildur ömmubarn var auðvitað miðpunkturinn þó hún sé hvorki farin að borða brauð né fisk. Drekkur bara móðurmjólkina og dafnar vel.
Svo er krikketið í fyrramálið. Það tók mig langan tíma að læra að halda mér vakandi yfir þeim leik og skilja hvernig hann er leikinn. Núna er ég orðin svo flink og sit settleg í grænum veiðistól alla sunnudagsmorgna og kinka kolli með virðulegum viðurkenningarsvip og klappa hefðardömulega á réttum stöðum fyrir batti og bóli. Mér er sagt að ef við værum svo heppin að krikketleikirnir væru í eftirmiðdaginn tilheyrði að borða gúrkusamlokur og drekka kælt hvítvín með. Við fáum bara kaffi því við erum fyrirhádegiskrikketerar. Kaffið er ógeð en hæfir vel morgninum. Verð að muna eftir nýja skræpótta sumarhattinum mínum með stóru börðunum. Svo smart, og ég tala nú ekki um ef maður er með sólgleraugu líka. Eins og auðkýfinguafrú.
Alltaf gaman að sjá strákinn sinn spila og þeir eru auðvitað svo sætir þessir kútar í öllu hvítu. Örugglega ekki verið mamman sem hannaði skjannahvítan búning fyrir stráka til að spila í leik sem gengur að mestu út á það að henda sér í grasið og renna sér fast þar til allt er vel grænt og brúnt. Engin smá vinna að þvo og gera gallan hvítan aftur!
Jæja...ef mig dreymir Jésú í nótt ætla ég að spyrja hann útí þetta með fiskana og brauðin. Vonandi er eitthvað frábært að frétta frá himnum og ég læt ykkur vita ef svo er.
Night night...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.4.2007 | 13:45
Að tolla í tískunni og hoppirólunni.
Jæja þá erum við hjónin búin að taka okkur til og erum nú tilbúin að fara til London og sjá ömmu og afastelpuna okkar. Það er voða gaman svona öðru hverju að klæða sig upp og fara úr Hagkaupssloppnum og taka úr sér rúllurnar þegar bæjarferð stendur til. Get alveg verið hreinskilin með það að þegar maður býr svona örlítið afskekkt og útúr að þá er maður ekkert endilega að fylgjast sérstaklega vel með tískunni. Höfum reyndar bara ekkert spáð í hana mjög mjög lengi. Svo var ég bara svo heppin að finna svona tiskublað á tannlæknastofunni við bensínsdæluhúsið og við ákváðum bara að vera grand og fá okkur ný föt. Held hann heiti eitthvað Billy Smart hönnuðurinn. Okkur finnst frábært að hönnuðir noti svona fallega liti núorðið.
Það tók reyndar svolítinn tíma að klæða okkur svo við sögðum krökkunum að vera bara úti og leika sér á meðan. Þau alveg elska að fara í skóginn hérna við hliðina. Koma alltaf heim uppfull af lygasögum um að þau hafi nú séð þetta og lent í svona eða hinsegin ævintýrum. Pabbi þeirra segir að þau hafi þetta bull frá mér...Algjör!!!!
Jæja...núna er beðið eftir mér og við verðum að drífa okkur út á hraðbrautina. Hún Alice Þórhildur ömmustelpa er farin að velta sér á magann og svo aftur á bakið og svo er hún búin að læra að öskra!! Er þetta barn ekki bara algerlega einstakt??? Við fáum líka að sjá hana í nýju hoppirólunni sinni en í henni skríkir hún sko og hlær.
Eigið góðan laugardag elskurnar og munið að orð dagsins er Tíska!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.4.2007 | 01:18
Þokuloftinu útvarpað
Sauðaness sveitir, sjólítið hiti 6 stig.
Kjárahnjúkar hiti 5 stig . Loftþrýstingur , skyggni 9 kílómetrar. Stórhöfði..suðvestan 13. Sjö komma fimm gráður vestur... veðurhorfur næsta sólarhring...súld og suðvestan fimm til tíu. Þokuloft eða súld á köflum. Mun hægar norðan til. Þokubakkar. Súld eða þokuloft á köflum. Norðan tíu til fimmtán. Næst verða veðurfregnir lesnar...... Bara náði því ekki!!!! Og hvað gerir fólk þá????
Garri garri garri hvar er peysan mín? Hver hefur tekið bomsurnar mínar?
Viltu spila..."Er ég kem heim í Búðardal"??
Hvaðan hringir þú?
Ha ég...við erum bara að fara á ballið hérna útfrá á eftir. Böðvar frændi sækir okkur og keyrir.
Þetta er bara það sem ég hlustaði á í útvarpinu mínu á netinu. Vhoa!!!!
Slekk med dett samme og set eitthvað annað á. Ekki Íslenskt. Skítt með veðrið!!!! Norðan humátt austan sex. Kul með innsveitum sunnanlands. Bravó!!! Legulandskindur allar séðar austan til og til sveita. Kannski sumar í nánd. Vestanþoka eða gola.Upp með stuttermaboli vestan til. Grugg í höfn að austanverðu. Undirrritað...Seyðisfjörður austanverð þoka til innsveita.
Næsta lag er tileinkað Dúdda og Steina með ástarkveðju frá Möggu og Björgu sem senda ástar og saknaðarkveðjur með laginu..Run Away!
Er það furða að maður slökkvi á sumum stöðvum og setji bara á BBC???
Klassík!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.4.2007 | 23:20
Tími teldu með mér.
Góða nótt.
Í skugganum af sjálfum þér býr fræið sem þorir ekki að líta dagsins ljós.
Skugginn er fangavörðurinn sem gleymir alltaf að vökva. Vill ekki vökva.
En fræið er mikilfengleikinn sem býr í óopnuðum veruleikanum.
Opnastu fræ í ljósinu sem lýsir í fjarveru skuggans.
Fljótt fljótt!!! Meðan þú hefur tímann. Opnastu og vertu.
Velkominn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.4.2007 | 20:32
Fjalladrottningin fróma með heimþrá!!
Er ég Nörd eða hvað?
Sit hér alsæl og hlusta á gamla íslenska tónlist á föstudagskveldi....Óskastundina á Rás 1 ......"Ég vildi að ég væri eins og þú..og vakað gæti bæði daga og nætur"
Já ef ég mætti lifa eins og lindin tær sem á alla sína hundrað silfurstrengi slær.
Hugsa og humma alveg í takt við hið íslenska hjarta mitt sem er farið að heiman um stund. Lærir að elska annars konar jörðu og landslag. Skilja annars konar menningu sem slær í öðrum takti en samt jafnmannlegan og heima.
Hvað er annars heim?
Hvar á maður heima? Nú er annað lag kynnt frá konu til vina sinna með kærri vinarkveðju. Fyrr var oft í koti kátt.
Litlu íslensku kotin.....bænum mínum heima hjá..er svo margt að minnast á. Heim í gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir.
Í garðinum mínum loga kertaljós í logni og minna mig á veðrið heima. Hvernig viðrar í þjóðarsál um þessar mundir?
Er þar logandi von?
Vakin og sofin af hinum einstöku norðurljósum? Hvað lýsir upp hjarta hins sanna íslendings?
Um hvað er þjóðin mín sem ég horfi á úr fjarskanum? Og bíð eftir merki á himnum að bráðum sé tímabært að snúa heim. Hvað er aftur heim?
Hér hef ég tíma og tré og tindrandi hjartslátt dádýra sem lifa samkvæmt innri tíma og tengingu.
Fiðrilda sem flögra frjáls um garðinn eins og frelsið sé þeim í blóð borið. Færa sig á milli litfagurra blómanna og njóta. Hverfa svo og hvíla sig meðan rokið rýkur og hristir allt. Koma svo aftur og frelsa sig sjálf og syngja veröldinni fagnaðarsöng.
93 ára kona fær nú kveðju í Óskastundinni...Píanótónar. Bara fallegt.
Plánetan er heimkynni okkar. Hér og nú. Smárakvartettinn.
Góðar sumaróskir.
Harmonikkutónlist til 93 ára konu sem býr í lautu. Sunnan við sunnanblæinn.
Já ég er 43 ára íslenskur nörd. En þetta er bara yndi á föstudagskveldi sunnan við London.
Maðurinn með miklu hlýju röddina..Alfreð Clausen söng um íslenska sumrablíðu og fjallardrottinguna frómu. Og koma svo ekki Þrestirnir með Ramónu mína...ohhh ég dey!!! Íslendingar verið góðir við hver annan. Við þessi fagra eyjaþjóð eigum svo margt spes til að standa vörð um. Verum verðir okkar sjálfra og okkar eigin einstöku eiginleika. Látum hjörtun slá takt með Ramónu.
Síðasta lagið í kvöld heitir Draumaveröld og þar heyrast orð á borð við..Draumaveröld fagra vil ég eiga ástin mín..svo fjarri heimsins glaumi. Tendra eld í húmsins dapra hjarta..veitir töfra bjarta.
Já sannkölluð Óskastund.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.4.2007 | 15:21
Eyja til sölu kostar eina tölu.
Það er aldeilis að jörð kallar....Hreingerningar, þvottakarfan full og brakandi þurrkur úti. Ég er nefninlega að orkuspara og nota ekki þurrkarann nema í ýtrustu neyð. Skúra skrúbba og bóna..nei ég lýg því. Það þarf ekkert að skúra hér enda allt teppalagt í mínu húsi. Meira að segja baðherbergið OG eldhúsið. Eins gott að missa ekki egg eða brauðsneið á hvolf þar.
Húsmóðir veltir fyrir sér hvort henni hugnast að gera helgarhreingerninguna núna.
Verður undarleg á svip þegar hún hugsar um stórhreingerningu og skrúbb.
Hmmm.
Hvernig var aftur þessi brúsi sem alltaf er verið að auglýsa með sjálfhreinsandi stormsveip sem fer um hús og heimili og gerir allt skínandi fínt?
Ég í súpermarkaðinn að kaupa þannig brúsa. Eins gott að ná tappanum af.
Þegar allt er orðið hreint og fínt verða sett blóm á stofuborðið og ávextir í eldhússkálina. Muna að vökva svo kryddjurtirnar í eldhúsglugganum og blessa garðálfana sem skoppa alsælir um garðinn eftir að við settum niður litríku sumarblómin.
Allt er nefninlega vænt sem vel er grænt..ég ætla nú ekkert að tala um stjörnmál hér, hvorki græn né blá, enda er mér annt um geðheilbrigði mitt og læt ekki slíkan gauragang ná á mér tangarhöldum. Hækkaður blóðþrýstingur og bölv fylgir þessum ósóma og mun betra að láta tímann líða við að horfa á kryddjurtirnar vaxa og þvottinn þorna.
Já og eitt enn.
Um helgina ætla ég að fara um grundir grænar með nýjasta nýtt. Svona undratól sem finnur fyrir mann olíu eða gull. Og ef ég verð heppinn og finn þannig nægtir í tonnatali kaupi ég kannski Íslandið og geri það sem mér finnst að ætti að gera þar.
Er það ekki annars rétt hjá mér að eyjan sú sé til sölu???
Góða og ævintýralega helgi öll sömul!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.4.2007 | 19:36
Aha momentin....
Dagurinn í dag er búinn að vera svona Aha...dagur. Svona dagur þegar það rennur allt í einu upp fyrir manni ljós. Svo skært að það lýsir upp alla skuggakima innra með manni og lýsir upp allt í kringum mann. Maður sér allt upp á nýtt og upplifir veröldina bara allt öðruvísi en áður. Og hugsar með sér "það hlaut að vera"!
Eins og hulunni hafi verið svipt frá mikilvægu leyndarmáli.
Mínu leyndarmáli.
Núna getur sálin gifst andanum.
Það sem var áður sundur er nú saman.
Elska þegar veröldin skiptir allt í einu um lit og maður uppgötvar nýja fleti og nýjar sýnir sem gera allt heilt.
Já svoleiðis var þessi Aha dagur minn.
Hið eilífa augnablik og áleitnir draumar mannsins
um veröldina sem var og verður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.4.2007 | 12:29
Dvel ég í draumahöll?
Það sveimar draumur yfir húsinu mínu og þarf að komast til jarðar.
Og það um miðjan dag.
Hann hlýtur að flytja mikilvæg skilaboð.
Farin að leggja mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.4.2007 | 11:07
Verðlaunasagan!!!
Til hamingju óskráður soll með söguna þína hún fékk langflestu atkvæðin enda skemmtilega skrifuð og dularfull. Þú mátt núna senda mér mail kbaldursdottir@gmail.com eftir að þú hefur valið þér print af einu málaverki eða teikningu í galleríinu mínu og færð þá sent með hraði.
Soll (Óskráður, IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 23:28
Myndirnar sem sögurnar voru skrifaðar eftir eru í færslu hér neðar sem heitir Ég gef þér 5 myndir og þú skrifar sögu.
Innilega til hamingju og kærar þakkir fyrir þátttökuna þið öll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari
Föstudagurinn þrettándi
Föstudagurinn 13. apríl byrjaði eins og hver annar dagur. Það var rigning, svo að ég greip með mér regnhlíf áður en ég lagði af stað í vinnuna. Ég fer alltaf af stað á slaginu átta og gef mér góðan tíma til að ganga niður í bæ.
Ég var varla kominn út á gangstétt þegar svartur köttur kom hlaupandi yfir götuna og skaust inn í húsasund. Eflaust hefði einhver séð þetta sem slæman fyrirboða, sérstaklega á þessum degi, en ég er ekki hjátrúarfullur maður.
Þennan dag virtist rigningin koma úr öllum áttum, svo ég hraðaði mér áfram. Neðarlega á Laugaveginum hafði einhver skilið eftir stiga sem hallaðist upp á húsinu. Ég ákvað að ganga undir stigann, bara til þess að sýna að ég væri ekki hræddur við hindurvitni.
Mér varð litið til hliðar, þegar ég bjóst til að ganga undir stigann. Í kjallara hússins var kaffihús, sem ég hafði aldrei tekið eftir áður. Þó að klukkan væri ekki orðin hálf níu var búið að opna og freistandi ilmur af kaffi barst út um hálfopnar dyrnar. Ég ákvað að vera djarfur og fá mér einn kaffibolla, áður en bankinn opnaði.
Stúlkan við afgreiðsluborðið var með sítt, svart hár og fallega græn augu undir síðum toppi. Hún talaði með örlitlum hreim, sem gerði hana enn meira aðlaðandi. Ég pantaði cappucino og fékk mér sæti. Skömmu síðar kom stúlkan með kaffibollann. Hún hafði skreytt froðuna með mynd af páfugli. Ég þakkaði henni fyrir og hún brosti til mín. Viltu ekki frekar sitja hérna á bak við? sagði hún, og benti á þungt, dökkgrænt flauelstjald sem hékk við endann á salnum.
Venjulega hefði ég setið kyrr og klárað kaffið, en eitthvað við þessa stúlku gerði mig forvitinn, svo ég fór á eftir henni á bak við tjaldið. Þar tók við lítill glerskáli og þaðan var hægt að ganga út í trjágarð. Í garðinum var margt fólk saman komið og einhver sýning virtist vera í gangi. Þarna var töframaður með pípuhatt sem lék sér að því að kasta alls kyns hlutum upp í loftið, trúðar sem skemmtu áhorfendum og piltur sem lék á flautu.
Það hafði stytt upp og engin bleyta var sjáanleg í garðinum. Ég leit í kringum mig eftir stúlkunni, en sá hana hvergi. Þá tók ég eftir svarta kettinum sem spásseraði á milli fólksins. Var þetta sami kötturinn og ég hafði séð fyrr um morguninn? Nei, það gat ekki verið. En ég ákvað samt að elta köttinn og fljótlega sá ég stúlkuna aftur við enda garðsins. Hún benti mér að setjast hjá sér og við horfðum saman á skemmtunina.
Allt í einu varð mér litið á klukkuna. Hún var næstum orðin níu og ég var orðinn of seinn. Á tíu ára ferli hafði ég aldrei komið of seint. Ég stóð snögglega upp, svo að skvettist úr kaffibollanum. Stúlkan reyndi að fá mig til að vera lengur, en ég varð að fara. Ég tróðst í gegnum mannfjöldann og það virtist vera helmingi fleira fólk þarna en mér hafði sýnst í fyrstu. Loksins komst ég þó fram fyrir græna tjaldið, inn á kaffihúsið og út á stétt.
Það var aftur byrjað að rigna þegar ég kom út og ég hljóp við fót niður Bankastrætið. Ég kom sveittur og andstuttur í vinnuna og muldraði einhverjar afsakanir, um leið og ég kom mér fyrir á mínum stað. Mér varð samt lítið úr verki, aldrei þessu vant. Allan daginn sá ég fyrir mér grænu augun og vonbrigðin í svip stúlkunnar, þegar ég fór. Ég hafði ekki einu sinni spurt hana að nafni!
Eftir vinnu hraðaði ég mér upp Bankastrætið. Ég var ekki lengi að finna húsið, þó að stiginn væri horfinn. Þarna var kaffihúsið ennþá, en stúlkan var ekki lengur að afgreiða. Í hennar stað var kominn feitur maður með þunnt hár og fýlusvip. Ég spurði hann hvort stúlkan sem hefði verið að afgreiða um morguninn væri við, en hann þóttist ekki skilja mig. Það vinnur engin stelpa hér, svaraði maðurinn stuttaralega. Bara ég og konan.
En ég kom hingað um hálf níu og hún var á bak við afgreiðsluborðið, mótmælti ég. Við opnum ekki fyrr en klukkan tíu, sagði maðurinn og sneri sér að kaffivélinni. Ég æddi að enda kaffihússins og svipti græna tjaldinu til hliðar. Þar blasti við mér grár veggurinn. Hvar er garðskálinn? spurði ég manninn. Það hnussaði í honum. Garðskálinn? Hvað heldurðu að þetta sé? Hér er bara þessi salur og svo eldhúsið á bak við.
Ég hrökklaðist út á gangstéttina og gekk heim. Þar reyndi ég að dreifa huganum, en það eina sem ég gat hugsað um var stúlkan. Hver var hún? Hvaða fólk var þetta? Hvaðan komu þau? Ég leitaði að upplýsingum um erlendan sirkus eða töframenn sem gætu hafa verið í heimsókn, en enginn slíkur hópur var í bænum. Ég setti smáauglýsingu í dagblaðið, en enginn svaraði.
Stundum sé ég dökkhærðar stelpur með sítt hár og elti þær uppi, en það er aldrei hún. Mig dreymir hana á nóttunni og þegar ég vakna heyri ég óminn af flautuleik. Ég hef mörgum sinnum farið aftur á kaffihúsið og ég hef skoðað alla bakgarða við Laugaveginn, en ég hef aldrei fundinn garðinn aftur.