Leita í fréttum mbl.is

Gullkorn dagsins

Þó á þér skíni útlensk dragtin

yfirlætis og visku praktin

trú þú mér að minnkar maktin

af möðkunum snæðist.

Hold er mold hverju sem það klæðist.

Hallgrímur Pétursson

tískan

 


Það var mikið að menn fóru að hlýða...mér!!!

Sjáiði bara framsóknarflokkinn....Nú vilja þeir setja það inn í stjórnarskránna að auðlindir þjóðarinnar eigi að vera sameign þjóðarinnar.

Vissi svo sem að þeir væru að laumupúkast hér og lesa pistlana mín þrátt yfir yfirlýst ópólitískt eðli mitt.

Þó það nú væri að það megi skipta  einhverjum afgangssílum úr litlum polli á milli þjóðarinnar þegar Halldór og co eru búnir að tryggja sér sitt. Það var náttla óráð að tala um skiptingu og jöfnuð fyrr en búið var að tæma hirslurnar. Framsóknarmenn fá prik hjá mér fyrir stjórnkænskuna og viðurkenningu fyrir að koma svona algerlega grímulausir fram í græðgi sinni og hamsleysi. Menn eiga auðvitað alltaf að sýna sitt rétta andlit og það gera þeir svo sannarlega.

framsóknarhausar

Rakst á annað gullkorn frá framsóknarmönnum á vafri mínu.  Núna ætla þeir að læra af ákvörðunum sínum um íraksstríðið!!!

Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir WhistlingWhistlingWhistling

 

Fínt og gott að menn læri meðan þeir lifa og séu tilbúnir að leiðrétta. Fúlt þegar sömu menn eru enn að reyna að flokka rauðu legókubbana frá hinum bláu þegar veröldin er komin á allt annan stað. Blindir tréhestar á tækniöld.

Eiga ekkert erindi upp á dekk á þessari þjóðarskútu sem er löngu búin að leysa landfestar við úreltar hugmyndir og klíkuskap þorskanna.

Einhver forvitnaðist um hvað ég ætla að kjósa.

Ekki framsókn.


Athugunarstöðin heldur áfram.....

Hvað dettur bloggurum í hug þegar þeir skoða þessa mynd með athygli?

Hvað kallar hún fram og af hverju.

 Athuganir ykkar þurfa að færast í athugasemdir.

allir saman nú


Hvar væri veröldin án listarinnar og sköpunarkraftsins okkar?

AA033346art

Æ hvað það er gott að maðurinn getur skapað.

Hvar væri þessi veröld og hvernig liti þessi heimur út á listarinnar?

Ég hlæ með sjálfri mér þegar fólk argar..listamenn eru afætur og aumjngjar..sú stétt sem við getum alveg verið án. Aha einmitt og akkúrat. Málum nú aðeins myndina af veröld án listar og sköpunarkrafts. Það væri ekkert munstur í áklæðinu á sófanum þínum..sófinn hefði jafnvel aldrei verið hannaður og þú sætir bara á gólfinu. Þ.e ef það væri til arkitekt sem hefði hannað fyrir þig hús. Bækur hefðu ekki verið skrifaðar, allur sá innblástur og upplyfting andans sem þar hefur komist í gegn er ómetanlegt, eins tónlistin sem mýkir , flæðir, poppar upp tilveruna og kætir, Myndir og málverk, dansinn sem er guðsgjöf, söngurinn, á bak við allt þetta var listamaður eða kona sem gat náð þessu einstaka formi til jarðarinnar fyrir okkur öll að njóta. Það væru heldur engin leikhús eða kvikmyndir...og við gengjum líklegast öll um í gömlum kartöflupokum og berfætt. Og vissum ekki að það væru til ljóð sem fjölluðu einmitt um það að vera berfættur og fátækur í anda og efni. Og þetta er bara örlítið agnarlítið brot af því hvað listin gerir. Hún heilar og læknar og lyftir. Ég er stolt af því að hafa valið mér það sem eitt af mínum verkum til að gera að vera listakona.

Tré Rautt

Ég elska að skapa og hanna og búa til út frá hugmyndum sem sveima allt í kringum mig.Stundum mála ég, stundum sem ég ljóð eða skrifa. Geri skúlptúr eða skapa næði eða tóna.

Ég og dóttir mín bjuggum til söngva frá löndum sem enn eru ekki til  á tungumálum sen enn eru ekki töluð og skemmtum okkur konunglega. Ég hef þá ímynd að allt sé nú þegar til og fullskapað á einhverju sviði og það er bara okkar að ná því inn í efnisveröldina í hvaða formi sem það kemur.

Þess vegna veit ég líka að það er hægt að skapa þjóðfélag og samfélög sem eru allt öðruvísi en þau sem við höfum í dag. Sem byggja á háleitar gildum og miklu miklu meiri fegurð en við nú þekkjum..bæði í anda og efni.

Skapaðu nú eitthvað sniðugt í dag...HeartSköpunarþráin er ein af orkulindum mannsins, ein af frumÞörfunum.


Bloggfærslur 1. mars 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband