Leita í fréttum mbl.is

Draumastund með Móður Jörð

modir jord

modir jord     Þessa mynd málaði ég 1998 eftir að ég hitti Móður Jörð í draumi. Við vorum staddar í sérkennilegu landslagi þar sem tré uxu upp úr eplum og hún hélt á stórri leirkrús sem uppúr flugu marglit fiðrildi. Hún bað mig að mála sig eftir minningu draumsins þegar ég vaknaði.
Ég vinn mikið með drauma og innri tilfinningu þegar ég mála og flestum myndum minna fylgja sérkennilegar sögur sem spretta fram alskapaðar þegar myndin hefur verið gerð. Ég veit aldrei hvað ég er að fara að mála. Byrja bara með lit sem talar til mín og leyfi svo viðfangsefninu að verða til og elti bara pensilinn og tilfinninguna. Það er eins og hugmynd sé til á einhverju sviði og það sé hlutverk listamannsins að ná tengingu við hana og hjálpa henni að fæðast inn í veröldina. Og hún er ekki hans heldur öðlast sjálfstætt líf og heldur sína leið til þeirra sem bíða hennar.

Æ það er svo gott að fá lit í tilverunna svona um morgun. Finnst ykkur það ekki?


Smá svona listapælingar i morgunsárið fyrir þá sem hafa gaman af litum og formum og skrítnum sögum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Alltílæ. Mér finnst gaman af litum í morgunsárið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.1.2007 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband