18.3.2007 | 09:16
Bráðum
Bráðum kemur betri tíð með blóm
í haga...sæta langa sumardaga. Svona lifum við svo mörg.
Bráðum.
Þegar ég er búin að byggja..þegar ég er búin að ná þessu eða hinu..þegar ég á meiri peninga og búin að borga meira niður af skuldunum...þá ætla ég að njóta þess að eiga börn og maka, þá ætla ég að fara og ferðast og skoða þennan merkilega heim. Þegar þetta og þegar hitt er úr veginum þá ætla ég heldur betur að lifa og leika mér. Svo líða árin og jafnvel áratugirnir og allt í einu eru börnin farin að heiman og árin framundan færri og jafnvel heilsan farin að gefa sig af öllum þessum látum. Og augnablikin sem maður ætlaði að njóta farin hjá án þess að nokkur yrði þeirra var.
Ég á fullt af ókláruðum verkefnum og skuldum og öllu þessu dægurþrasi sem getur tafið fyrir manni og ég held að ég verði að klára áður en ég get í alvöru farið að njóta lífsins í botn. En ég ætla að hætta að segja bráðum. Ég ætla bara að gera allt í dag sem mig langar og taka tíma í það sem mér finnst mikilvægt og leyfa svo bara morgundeginum að koma eins og hann kemur. Núna er t.d tilvalið að fá sér almennilegan sunnudagsmorgunverð..egg og beikon og brætt smjör á rístuðu brauði. Skríða svo öll uppí aftur því það er rok og rigning og kúra og kjafta og bara vera til. Muna að ævintýrin gerast hér og nú.....
Sunnudagur til sælu hér og nú og ekkert bráðum kemur betri tíð. Þá förum við í gegnum lífið eins og ansinn sem eltir gulrótina sem hangir fyrir framan nefið á honum og sér ekkert annað og heldur að lífið sé bara um þesssa einu gulrót..sem hann svo fær aldrei.
Frekar sorglegt. Ég ætla bara að éta mína gulrót hér og nú og treysta því að það verði önnur gulrót fyrir mig Þarna úti á morgun..og hinn og hinn og hinn og borða þær jafnóðum...Jamm!!! Það er nefninlega einhvernveginn þannig að það þarf að vera pláss fyrir það góða í lífinu og þess vegna er fáránlegt að sanka að sér endalaust og troðfylla allar hirslur af drasli...þegar það eina sem maður þarf er ástvinir, samvera og svona eins og ein gulrót.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Góð hugleiðing í morgunsárið :-)
Kristján Kristjánsson, 18.3.2007 kl. 10:04
Að vera meðvitaður um að lifa í núinu er verðugt verkefni
Guðrún Þorleifs, 18.3.2007 kl. 10:20
á eftir er minning núna er nú, og núna er ég og lifi.
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.3.2007 kl. 10:30
Bráðum ætla ég sko að lifa í núinu..... svo margir hafa viljann og ætlunina til að lifa í NÚINU..bara ekki akkúrat núna!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.3.2007 kl. 10:36
ég ætla að fá mér bita af gulrótinni, hún er svo góð! Núna, akkúrat núna er yndisleg tilfinning sem hríslar um mig, kanski er það gulrótin og allt karotínið sem gefur mér kikkið! Eigðu dásamlegan dag!
www.zordis.com, 18.3.2007 kl. 11:48
Þetta kemur allt með aldrinum. Maður er að læra njóta "núsins" smátt og smátt. Vandinn er bara sá að á sama tíma fer núið hraðar yfir.
Haukur Nikulásson, 18.3.2007 kl. 12:06
Falleg hugrenning, dagurinn í dag verður sá besti.
Björn Heiðdal, 18.3.2007 kl. 12:12
Ég er í bráðum pakkanum (þess vegna sá ég peningana fjúka út um gluggann í fyrri færslunni þinni) ! En er jafnframt svo meðvituð um það að ég passa uppá að lifa í núinu líka og skapa minningar með stelpunum mínum... En hvar finnur þú þessar fallegu myndir ?
bara Maja..., 18.3.2007 kl. 12:13
Bráðum kemur ekki betri tíð, Því betri getur tíðin ekki orðið .
Svo er þessi alltaf mjög góð til þess að kippa mér útúr "bráðum" pakkanum:
Yesterday is history
Tomorrow is a mistery
Today is a gift
That's why it's called the present
Enjoy each present.
Birgitta, 18.3.2007 kl. 12:38
Eins og talað út úr mínu hjarta andans systir. Myndirnar líka skemmtilega lýsandi fyrir efnið. Gulrótin, sem við eltum og náum aldrei. Og ef við þá náum henni....hvað þá?
Jón Steinar Ragnarsson, 18.3.2007 kl. 13:24
Það er miklu betra að borða gulrótina strax því gulrætur vilja mygla við geymslu.
Svava frá Strandbergi , 18.3.2007 kl. 13:59
Já daginn sem maður lærir að lifa í núinu er dagurinn sem lífið byrjar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 14:24
Gulrætur eru æðislegar og það er hollt og gott að þurfa elta stundum... - tek undir með Guðnýju Svövu hérna ... miklu betra að borða gulrótina strax!
Dagurinn í dag er góður. Mér líður illa í bakinu og það er vont veður úti ... páskaölið er orðið volgt ... en allt það hverfur þegar maður sér hið yndislega umfram allt annað? Eins og t.d. þessa vini sína hérna í bloggheimum... knús og kossar!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 16:37
Frábær orð, elsku Katrín mín!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.3.2007 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.