Leita í fréttum mbl.is

Fjúkandi reið og róleg

GardenGoddesses_brighter

Er þetta hægt???

Ég er orðin óvinsælli núna en þegar ég byrjaði að blogga??

Eins gott að hætta á toppnum segja sumir en mér finnst alveg við hæfi að hætta á botninum.

 Er það ekki eini rétti staðurinn til að hætta?

Hvaða heilvita kona hættir á toppnum?

padma

Annars er ég öskureið.

Ekki yfir bloggvindsældalistanum sem er örugglega bara sanngjarn heldur yfir því sem ég lét hafa mig í í kvöld.

Sat á stól og leið eins og ég væri 5 ára og hugsaði mitt.

Hvernig í ósköpunum datt mér í hug að ég ætti að vera þarna???

Tek það fram að ég var ekki á stjórnmálafundi.

Jeminn eini hvað það getur tekið mann langan tíma að fatta.

Thats it!!!

Á morgun ætla ég að vakna og muna að ég get meira en ég held.

 Það er alveg ljóst.

Reiðin er vekjandi og frábær drifkraftur.love%20untitled

Ég er alsæl yfir að hafa reiðst svona!!!

Núna get ég verið róleg.

Allt á sér andstæður og hliðstæður.

Ég á mér andstæður og hliðstæður í sjálfri mér!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er gott að koma frá sér reiðinni. Þá er þetta bara góð hreinsun.  Tekur allt kuskið sem hafði safnast fyrir og var farið að segja til sín.  Nú ætti sálartetrið að vera hreint og fínt eins og nýfallinn mjöll.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.4.2007 kl. 00:09

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já segðu. Rosalega er samt gott að láta fjúka í sig öðru hverju.

Finna fyrir sér og hvað misbýður manni. Og anda svo inn ljósi og út með kuskið og komast aftur í taktinn. En reiðin er fín þegar hún vekur.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 00:13

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já það er gott þegar reiði manns fær útrás, það er stórhættulegt að byrgja hana inni.

Svava frá Strandbergi , 18.4.2007 kl. 00:21

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það var samt fyndið að aðstæðurnar gerðu mig svo reiða..ekki út í þær heldur sjálfa mig. Og hvað maður getur farið í taugarnar á sjálfum sér stundum. Æ.....við erum öll krútt inn við beinið!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 00:25

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Reiðin er golan í seglunum en ekki skipið sjálft.  Við þurfum bar að muna að standa við stýrið.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.4.2007 kl. 00:29

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jæja...búin að sitja og hugsa og hugleiða meðan ég husta á guðdómlega tónlist. Áður en ég leggst til svefns segi ég bara takk fyrir áminninguna og hvað hún kveikti hjá mér.

Maður er alltaf að læra og muna. Stend keik við stýrið og sigli minn veg. Engar tilviljanir eru til og það er okkar vinna að sjá hvað færir hvað. Sofum rótt og munum að leyfa lífinu að kenna okkur. Reiðin er fokin út í veður og vind og ég fer róleg að sofa í ró. En samt full af krafti og kenningu um að allt er eins og það á að vera. Ég lærði og skildi mitt.

Smjúts.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 01:48

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Systir mín Helga Guðjónsdóttir kannast við þig Katrín. Hún er búin að vera lengi í sálarrannsóknarfélaginu. Manst þú eftir henni?

Svava frá Strandbergi , 18.4.2007 kl. 03:37

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.4.2007 kl. 04:14

9 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðann daginn! Gott að þú vaktir sjálfa þig. Var að velta því fyrir mér í gær að þú vekur mann oft til umhugsunar vekjaraklukka en hver vekur þig. Svarið kom í þessum pistli, þú sjálf Hafðu það gott í dag. Verðum að bíða smá eftir góða veðrinu, en þá er gott að vera bara tilbúin að taka á móti því. Farin að gara allt klárt

Knús

Guðrún Þorleifs, 18.4.2007 kl. 06:04

10 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Ég bara verð að fá að vita hvað þú varst að gera þetta örlagaríka kvöld. Ég held að þetta hljóti að hafa verið einhvers konar trúboð, vottar Jehóva eða Moonistar.

Ingi Geir Hreinsson, 18.4.2007 kl. 08:45

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég segi eins og Ingi Geir. Forvitnin blossaði upp í mér

Hvað gerði þig svona reiða?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.4.2007 kl. 08:53

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nei kallinn minn...ekkert svoleiðis. Þetta var bara ósköp venulegur súlustaður. Nei jók!!! Það hefði nú verið eitthvað til að stinga saman nefjum yfir..hehe.

Þetta var fullkomið kvöld ég sé það núna. Til að ég áttaði mig á því sem ég þurfti að átta mig á og duglegt spark í minn netta afturenda Svo í morgun þegar ég vaknaði var ég Valkyrja með stórar hugmyndir.

Ég man frekar andlit en nöfn Guðný mín. Ætli ég myndi ekki kannast við hana ef ég sæi hana?

Jæja...við ætlum út í göngutúr með litlu ömmumúsina. Eigið góðan dag öl sömul!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 09:37

13 Smámynd: halkatla

er ekki bara þægilegt að vera reiður og rólegur í senn? ég held að ég hafi aldrei prufað það..... og mikið rétt, heilvita konur hætta ekki á toppnum

halkatla, 18.4.2007 kl. 09:49

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er reið og sorgmædd en mun huggast.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.4.2007 kl. 15:35

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Knús til þín Kristín Katla mín

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 17:31

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gott hjá þér Katrín að virkja reiðina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 311096

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband