Leita í fréttum mbl.is

Draumur og dagfarir

148648552_e263cc5e94

Dreymdi í nótt að ég væri komin í rútu sem var á leið út á flugvöll og ég átti enn eftir að taka ákvörðun um hvort ég ætlaði raunverulega heim til íslands.

Það er eitthvað svo margt að togast á um í mér núna og ég er að bíða eftir mikilvægum svörum og mikið að gera á sama tíma.  Stundum væri nú gott að vera bara fugl og fljúga yfir turninn í stað þess að þurfa að klifra upp. Skil ekkert í mér stundum að hafa ekki valið að hafa fæðst inn í þetta líf með vængi. Það ættu allir að hafa vængi. Það er hreinlega lífsnauðsynlegt að geta flogið upp og burt stöku sinnum svona rétt til að fá betra útsýni yfir stöðu mála..ekki satt?

álfamær

Það bara rignir og rignir og rignir hérna megin. Yndislegt fyrir blóm og tré en alger horror fyrir hárið mér sem verður eins og lambahárgreiðsla með heyívafi. Jæja best að halda áfram að vera til. Annars trúi ég því að lífið hafi alltaf fyrir mann svarið. Maður þarf bara að vera vakandi, hlustandi og taka eftir því sem er að gerast í kringum mann. Þá allt í einu og fyrirvaralaust kemur lausnin..ljúflega eins og fjöður og leggst við fætur manns.

untitledjogh

Ég elska þig útsýni

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hættu að dreyma um Íslandsferðir og drífðu þig yfir til okkar í sólskinið.  Já Katrín mín þetta er yndislegur dagur.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 10:34

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Það er ekki dónalegt að vera með lamba hárgreiðslu Katrín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2007 kl. 10:43

3 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ef þú elskar útsýni ættir þú að kíkja á Ísland "best í heimi" 

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 8.6.2007 kl. 11:52

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ef þú kíkir til Íslands verður þú að boða til sérstaks bloggvinafundar.

Steingerður Steinarsdóttir, 8.6.2007 kl. 12:00

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já hér er sól og gott veður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.6.2007 kl. 12:30

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

María í Skrúðgarðinum hefur enn eitt af stóru borðunum frátekið fyrir bloggvinafundinn sem átti að vera í apríl. Við Guðmundur, Keli og fleiri vorum búin að taka staðinn út og ... hann er nógu góður fyrir okkur!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.6.2007 kl. 12:39

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

KataSkata!!!  Snáfaðu til Íslands!! Eftir þrjá vikur verð ég nebbla farin í þrjár vikur! Ég elti þig að enda veraldar til að sparka í rassinn á þér ef þú kemur á klakann á meðan ég er fjarverandi!!!

Heiða B. Heiðars, 8.6.2007 kl. 14:52

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Úpps...planið var að koma á föstudaginn með Dótturinni tengdasyninum og litlu Alice Þórhildi sem er að koma og sjá alla ættingja sína á íslandi í fyrsta skipti..og nota þá tækifærið til að taka mynd af mér og mömmu og ömmu, dóttur minni og dótturdóttur..fimm ættliðir í beinan kvenlegg...en það tekst því miður ekki hjá mér nema eitthvað gasalega mikil heppni hendi mig..hver veit. Ég er nú voða heppin kona sko..

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 15:03

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Puttana í krossssssss

Heiða B. Heiðars, 8.6.2007 kl. 15:13

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Streingerður mí ég er akkúrat núna að "kíkja" til íslands með fína kíkinum sem ég fékk í jólagjöf. Eruð þið til að standa öll saman á Langasandi klukkan níu í kvöld svo ég geti séð ykkur..svo getið þið fengið ykkur kaffi á eftir í skrúðgarðinum með Gurrí. Hún borgar..mér skilst að hún sé milljarðer.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 16:17

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhahaha, auðvitað ég borga ég fyrir alla!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.6.2007 kl. 16:32

12 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

hæ ég veIFA ÞÉR Í ÁTT AÐ KÍKINUM!!!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.6.2007 kl. 18:55

13 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, kíktu Katrín mín. Ég verð með stóra rauða borðdúkinn og veifa sem mest ég má.

Steingerður Steinarsdóttir, 8.6.2007 kl. 20:12

14 Smámynd: Hugarfluga

Koddu, Katrín!! Bloggvinafundur par excellance og rauðvín og ostar! Ég bíð (með einföldu sko).

Hugarfluga, 8.6.2007 kl. 20:49

15 Smámynd: www.zordis.com

Er ekki málid ad fljúga bara saman!  Kaupa einn tvíburamida og láta allt um lund og lifandi leid!  Fljúga svo á zöndum fidurvaengjum

www.zordis.com, 8.6.2007 kl. 21:36

16 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ekki viturlegt að bíða.  Það kemur sem kemur og óþarfi að missa af því sem lífið bíður upp á á meðan.  Jafnvel þótt það sé ekki merkilegra en að horfa út um gluggann.  Það er allavega það sem er á matseðli tilverunnar núna og það skal maður gúffa í sig með gleði.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.6.2007 kl. 22:56

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Halló þarna ertu vinur númer eitt.... Já ég horfi og stari út um glugggann minn og vonast eftir að sjá þig meðal annars. Þín hefur verið sárt saknað. Velkominn elskulegur. Lífið kemur með lausnirnar á sínum hraða. Ég þarf bara að læra að bíða.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 310958

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband