Leita í fréttum mbl.is

Kona kemur og tunglið lýsir leiðina.

529743997_33771d90d0

Hvernig getur Björk okkar verið á sviði og litið út eins og aldurslaus álfur..kona fertug?

Ekkert smá flott og mögnuð.

Ég er að reyna að hlusta a hana í þessum þætti..en það rennur bara blóð um alla stiga.

Dóttir mín er með tvær vinkonur í sleepover..ein þeirra fékk blóðnasir sem er víst ekkert óvenjulegt með hana..við réðum við það. Dóttirin kom svo 5 mín seinna með tönn  sem hafði dottið úr og bara blóðslóð um öll teppi. Salt yfir þá dropa og vonum að það verði hægt að ryksuga þá upp á morgun.

Ég hins vegar sit sveitt og reyni að galdra til mín farmiða til íslands.....mig langar svo...nei ég verð að komst yfir hafið núna og vera samferða litlu fjölskyldunni minni sem er á leiðinni næsta föstudag til að sýna sig og sjá aðra.

Hér er Alice Þórhildur krúttmoli aldarinnar. Ömmustelpan mín fallegasta.

20070604204652_7

Hvernig á barnið að heimækja heimaslóðir og blóðböndin án mín???

Ég verð bara að vera með í för til að segja henni ósýnilegu ævintýrin um landið og fjöllin...hið íslenska tungl sem á eftir að lýsa henni leið í gegnum lífið.

Við konur áköllum tunglgyðjuna og krafta hennar..við vitum hvað býr í tunglskininu.

Bara við.

Here I come...þó ég þurfi að synda.

moonlight_and_spiritual-shadow

Ég trúi á að allt sé mögulegt. Þess vegna mun ég koma.

 Þó það verði bara í anda eða skini tunglsins.

Sjáumst!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Elsku bloggvinkona, var á námskeiði í gær sem byggði á spekinni sem er að finna á myndbandinu The Secret. Nú leggjumst við á eitt og trúum því að alheimurinn sendi þér far til Íslands svo við fáum að hittast og þú að sjá barnabarnið.

Steingerður Steinarsdóttir, 8.6.2007 kl. 23:07

2 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert að koma til Íslands ... svo einfalt er það. Og amláttuvur hvað Aliece Þórhildur er dásamlega falleg!! Vissirðu að þú skrifaðir einhversstaðar Alive í staðinn fyrir Alice? Var það viljandi eða óvart? Mér fannst það svo táknrænt.

Hugarfluga, 8.6.2007 kl. 23:17

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Björk syngur nú á íslensku í sjónvarpnu mínu hérna í englandi og hún segir...Niður á hafsbotninn...þar  á ég heima!!!

The Secret er búið að vera í lífi mínu í yfir eitt ár...Steingerður mín. Barnabarnið er hér hjá okkur í englandi..en málið er að ná saman okkur fimm. Mér ,mömmu, ömmu. dóttur minni og dóttur dóttur á mynd. Þetta gæti verið eina tækifærið í nánustu framtíð eða forever...Svo mér finnst svo mikið í húfi að við fimm ættliðir í beinum kvenlegg fáum tækifæri til að vera saman.

Mig langar svo heim núna!

Líka til að hitta nokkra kæra bloggvini augliti til auglitis.  Alladin...núna verður þú að vera fljótur að finna lausn fyrir mig elskan!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 23:21

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Goshhh Björk er mesta krúttið..segir allt um álffana heima og verurnar sem búa í íslenskri náttúru. Núna ætlar hún að syngja lag. Ég lá með henni á fæðingardeildinni þegar hún átti Sindra og ég átti Sunnevu. Hún er líka eitt magnaðasta draumatáknið í draumum mínum. Verð að segja ykkur hvað hún kenndi mér í gegnum einn draum einu sinni. Hefur aldrei horfið mér úr minni. Blogga um það bráðum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.6.2007 kl. 23:34

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Vá þvílíkar myndir, stúlkan yndisleg þessi augu!

Heiða Þórðar, 8.6.2007 kl. 23:40

6 identicon

Björk er aldurslaus, einfaldlega vegna þess að hún kýs að vera það.
Sýnir okkur hvað aldur er afskaplega afstætt hugtak.

Maja Solla (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 23:42

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Er núna að hlusta á þátt morgunsins Óskastundin á rás 1. Guðrún Á Símonar syngur...Taktu nú sorgina mína og ég syng hástöfum með þó ég sé engin óperusöngkona. Syng samt með mínu nefi.

Hugarfluga mín...það var alveg óvart að ég skrifaði Alive..en....það tók  á að þessi stelpa kæmi í heiminn heilu og höldnu. Ekki löngu löngu fyrir sinn tíma.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 00:15

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Barnið er guðdómlega fallegt og yndislegt eftir því.  Lík mömmunni til munnsins.  Audda kemur þú Katrín mín, var að senda visual staðfestingu upp í "universum".

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 00:43

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guð minn almáttugur hvað þetta barn er fallegt.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 02:26

10 Smámynd: www.zordis.com

Engin spurning ad Frú Katrín sé ad fljúga yfir hafid!  Hún er algjört yndi hún Alice Zorhildur, svo heil og hrein ! 

Ég zarf ad skreppa líka en ég fer ekki alveg strax, spella zad inn í dagskrána mína

www.zordis.com, 9.6.2007 kl. 08:48

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Zordis við þurfum líka að fara og mæla hvað við höfum mikð pláss í Ráðhúsinu...maður verður að vita hversu margar myndir og hversu stórar maður vill hafa á sýningunni okkar...manstu? Iss ef maður getur töfrað fram einn farmiða fram og til baka..þá getur maður það aftur hvenær sem maður þarf að komast. Kannski líka þegar þú ert þar að mæla..ha?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 08:59

12 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Björk er æði... En barnið er stjarna! Gvöð minn eini hvað hún er falleg!! Ég veit um kærasta handa henni Og þá mundi ég eftir því hvað það var skemmtileg tilviljun með stelpurnar okkar og barnaland! Katrín... við verðum að hittast og hana nú! KOMDU KONA! 

Og að fá zordísi á sama tíma yrði náttúrulega BARA BÓNUS!  

Heiða B. Heiðars, 9.6.2007 kl. 18:00

13 Smámynd: Heiða B. Heiðars

ps... hvað erum við eiginlega búnar að "þekkjast" lengi ilmurinn minn?

Heiða B. Heiðars, 9.6.2007 kl. 18:01

14 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já sjáum hvað liggur í spilunum..aldrei að vita hvað getur gerst.

Já þær verða nú að hittast með barnabörnin okkar..dóttir þín og dóttir mín. Ég veit bara ekki hvað við erum búnar að "þekkjast"lengi Heiða mín..kannski svona 3- 4ár???Jafnvel eitthvað lengur??

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 18:23

15 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Allavega fjögur.. held ég. En ég er ekkert góð í að muna svona. Kannski Ibba geti hjálpað okkur:)

Ji...sé fyrir mér tvær rígfullorðnar konur með barnabörnin sín á kaffihúsi....en langflottastar auðvitað

Heiða B. Heiðars, 9.6.2007 kl. 18:34

16 Smámynd: Ibba Sig.

Ég get ekkert hjálpað ykkur, er stundum agaleg þegar kemur að svona tíma. Ég myndi samt giska á svona fimm ár.

Og ég get sagt ykkur að Alice er jafnvel yndislegri í eigin persónu. Jú, ég segi það satt, það er hægt.  

Ibba Sig., 9.6.2007 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310959

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband