Leita í fréttum mbl.is

Situr kona ein og vonar um miðja nótt

Að dóttir og hennar sleepover gestir fari nú að sofa. Hvaða sport er það að vaka eins lengi og hægt er??? Og halda aumingja mömmunni glaseygðri og úrvinda fram eftir nóttu til að vera þess fullviss um að ....skrýmslin séu sofnuð?Sleeping

Mér heyrist að það sé að komast ró á...enda lét ég þær horfa á íslenskan dvd með íslenskum barnasöngvum á....hehe. Held þær hafi misst áhugann á "Krummi krunkar úti...kallar á nafna sinn"! Og loksins farið að sofa..og ég held að ég leyfi mínu örlagaþungu augnlokum að hvíla sig líka núna. Night night.

362%20DREAM%20ANGEL

Nú legg ég augun aftur og hvíli mína fiðurvængi um nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ojojoj manstu gamla daga?

Þegar mesta sportið var að hvíslast á og vaka þar til allir aðrir voru sofnaðir? Að vísu læddist ég alltaf heim þá - enda lítið gefin fyrir að vakna annarsstaðar en heima....

 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:08

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nei takk...ég vil ekki muna...þetta er torture!!!

Börn EIGA að sofna á kristilegum tíma. Voru loksins að byrja að anda létt og eins og sofandi börn eiga að gera núna þegar ég leit til þeirra.  Nóttin mín eina fagra og þráða ....here I come!!!!! Night night og ekkihalda eitt augnablik að ég bloggi neitt í fyrramál. Ég mun sofa fast á mitt græna.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 01:26

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jæja, jæja, ljúfust, sofðu þá á þitt væna græna....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:34

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða nótt og sofðu rótt megi allir góðir vættir vaka yfir þér og vernda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:58

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég bíð spennt að heyra að þú hafir ekki farið á fætur og gefið næturhröfnunum að borða

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 02:27

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jóna mín..erum við ekki fyrirsjáanlegar allar sem ein?

Ég er búin að setja í þvottavél og taka úr þurrkaranum og ryksuga yfir gólfið. Komst að því að saltið tekur ekki blóðbletti. Hvernig dettur börnum í hug að missa tönn úti á miðju teppalögðu gólfi???

Og nú er morgunverður framborin fyrir Theodóru sem er in liove with Elliot, Hannah Dunn sem er in love with George og Hannah Doley sem er in love with Miles.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 08:21

7 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Sofðu rótt vinan.

Ingi Geir Hreinsson, 9.6.2007 kl. 08:35

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Takk Ingi minn...ég er reyndar búin að sofa rótt og komin á fætur aftur...en takk samt!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 09:02

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góðan dagin Katrín mín vonandi að þú hafir sofið vel .

Kristín Katla Árnadóttir, 9.6.2007 kl. 11:30

10 Smámynd: Hugarfluga

Ég var eins og Hrönn ... vildi bara vanka upp heima hjá mér. Músarhjartað sló ótt og títt og náði ekki að róast fyrr en mamma vafði mig örmum og "bíaði" á eyrað mitt. Eigðu góðan dag, mín fagra Katrín Snæhólm.

Hugarfluga, 9.6.2007 kl. 11:46

11 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Þetta er alltaf svona. Ég er annað hvort á undan eða á eftir minni samtíð. Óska þér alls hins besta um helgina og í náinni og fjarlægri framtíð .

Ingi Geir Hreinsson, 9.6.2007 kl. 11:47

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þetta er náttúrlega ósvífni hin mesta að láta sér detta í hug svona tannamissi þar sem maður stendur. Ég er fegin að Theodora, Hannah Du og Hannah Do hafa mismunandi smekk. Annað gæti verið mikið álag á vináttuna. Segir mér allavega að tannmissirinn var af náttúrulegum toga frekar en slagsmálum.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 12:19

13 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Smá blogglestrar kvitt þar sem ég dró mig inn í hús til að hvíla mig á yndislegri sólinni. Mikið er litla ömmustelpan þin falleg! Skil vel þrá þína til að fara með henni til Íslands

Væri ég komin á hjólaskútuskipið mitt gæti ég örugglega breytt því í hjólaskútuflugvél og þá hefði mig ekki munað um að skuttlast með þig. Hefði svo vel getað hugsað mér smá skrepp til Íslands núna Vona að þú komist þessa ferð!

Kært knús frá Als 

Guðrún Þorleifs, 9.6.2007 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310959

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband