Leita í fréttum mbl.is

Ég er klikkuđ..úpps..ég meina KLUKKUĐ!!! Örugglega bara sitt lítiđ af hvoru.

Ásthildur og Kristín Katla hafa báđar klukkađ mig og nú á ég ađ segja 8 hluti um mig og klukka 8 ađra sem eiga ţá ađ segja 8 hluti um sig á síđunni sinni og segja ađ ég hafi klukkađ ţau. Einfalt og skemmtilegt ekki satt???

Í dag er ég í eldrauđum skóm og međ splunkunýjan eldrauđan hring á fingri. Rauđu skóna nota ég ţá daga ţegar ég vakna og veit ekkert hvert ég er ađ fara. Elti bara skóna og lćt ţá vísa mér leiđ ţann daginn. Bregst aldrei ađ ég enda oft á mjög spennandi stöđum. Rauđi hringurinn hefur ekki enn tjáđ sig um hvađ hann er.

Gleraugun mín eru grćn eins og augun í mér og ég rosalega mikiđ af grćnum fötum. Allt er vćnt sem vel er grćnt og ég elska náttúruna.

Ég geri mest lítiđ en ég er alveg helling. Ég er móđir, lífsförunautur, listakona, skúlptúristi og málari, verđandi rithöfundur..já ég er byrjuđ á bókunum...lífskúnster, tvíburi, róllyndislegur galgopi og vil helst ađ allt sé heilt í kringum mig. Ţess vegna er ég líka heilari. Og ég hreinlega elska sögur og sé ćvintýri í hverju horni.

Úriđ mitt er keypt í secondhand búđinni eins og nýji sumarkjóllinn minn. Úriđ er skreytt grćnleitum demöntum og var örugglega í eigu Katrínar Miklu einu sinni og var smyglađ hingađ til Englands af sjórćningjum.

Mér finnast hćgar kvikmyndir miklu skemmtilegri en hrađar kvikmyndir. Verđ svo ţreytt ađ láta henda mér á milli atriđa..vil frekar fá ađ upplifa ađeins meira á lengri tíma.

Fjórir englar ákváđu ţegar ţeir hugđu á ferđ til jarđar ađ ég vćri heppileg í mömmuhlutverkiđ fyrir ţá. Ég hins vegar veit ađ ţeir komu til ađ kenna mér ýmislegt um ţolinmćđi og óskilyrta ást. Karen, Sunneva, Nói og Theodóra Hugrún. I love you!!!

Mér finnst gott og gaman ađ elda mat. Ţađ er listgrein í sjálfu sér. Og ađ hann sé fallegur á litinn og borinn fram međ kertaljósum og blómaskreytingum. Ţađ er gjörningur í sjálfu sér ađ nćra ađra á hvađa hátt sem er.

Mig dreymir um ađ opna stórt óđalssetur ţar sem útúrstressađir íslendingar og ađrir útlendingar geta komiđ í fjársjóđsleit. Fjársjóđurinn er auđvitađ ţeir sjálfir og leitin fer fram í gegnum listsköpun, náttúrugöngur og samtöl viđ jarđdverga og trjáanda, og fullt af englavinnu og sögustundum. Ef einhver getur séđ af svona milljón pundum ţá er rétta húsiđ ţegar fundiđ!!! Og af ţví ađ ég er komin međ  8 atriđi lauma ég ţví hér međ ađ ég er ástfangin.InLove

Eftirfarandi eru hér međ klukkađir af mér

Ibba Sig

Beta

Jón Steinar

sarcastic bastard

Steingerđur

Marta Smarta

Maja Solla

Gurrí...ţ.e ef ţađ eru till einhver átta atriđi sem viđ ekki vitum nú ţegar um ţessa frćgu vinkonu mína..hehe.

Have a wonderful day!!!!

Stattu ţig stelpa

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ćđislegt hjá ţér hjá ţér Katrín mikla.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.7.2007 kl. 19:58

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vá hvađ mér líst vel á Óđalsseturdrauminn. Ef ég vinn í Víkingalottó... hver veit.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 23:31

3 Smámynd: www.zordis.com

Saet faersla hjá zér og svo innileg!  Mér líst vel á ódalsetrid zitt!  Ég aetla ad fara í graenu skóna mína í dag zví ég zarf ad trekkja ad fjármuni ......................

www.zordis.com, 12.7.2007 kl. 07:32

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mikiđ eru nöfnin á börnunum ţínum falleg.

Anna Einarsdóttir, 12.7.2007 kl. 22:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 310949

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband