Leita í fréttum mbl.is

Skafarinn, skafarinn.

Man eftir því þegar skafarinn keyrði um göturnar þegar ég var lítil. Þetta var risastórt gult tryllitæki sem skóf göturnar og sléttaði úr öllum almennilegum drullupollum og stíflum sem við dunduðum okkur við að gera þegar ringdi. Og þegar skafarinn kom og keyrði eftir götunum hlupum við krakkarnir í hópum á eftir honum og öskruðum til að yfirgnæfa hávaðann..skafarinn skafarinn!!!!

Aldrei grunaði mig þá að einn góðan veðurdag yrði ég svo sjálf skafari með meiru. Ekki það að ég æði hér um götur og skafi þær..enda allar malbikaðar og fínar og ekkert pláss fyrir almennilega drullupolla. Nei ég er annars konar skafari.

Ég er skafmiðaskafari.

Þegar ég fór í litlu matvörubúðina í miðbænum í gær var afgreiðslumaðurinn upptekinn við að brjóta saman langa lengju af svona skafmiðum. Mér hefur einhvernveginn aldrei dottið í hug að fá mér einn, en þarna hvíslaði einhver rödd að mér.."Fáðu þér einn, fáðu þér einn". Og áður en ég vissi af var ég búin að kaupa mér skafmiða og á leið með að verða skafari.

Þegar ég kom heim skóf ég með viðhöfn af miðanum og viti menn. Haldiði ekki að ég hafi unnið heil 12 pund!!! Svo ég rölti mér aftur þangað úteftir í gærkveldi og rétti afgreiðslumanninum sem þá var á vakt miðann minn. Hann er krúttikarl sá afgreiðslukarl. Með skjannahvítt liðað hár og myndi örugglega heita Glókollur ef mamma hans væri íslensk. Það liðast fallega um  allan kollinn á honum og alveg niður á háls. Hann borgaði mér 12 pund. Ég rétti honum þau strax til baka og sagðist ekki hafa áhuga á peningunum..ég vildi frekar fá 12 skafmiða í staðinn. Hann horfði á mig og sagði.."Ef þú vinnur hundrað þúsund pund þýðir ekkert að koma hingað og fá borgað...þá verður þú að fara í höfuðstöðvarnar" Sagði mér svo frá karli sem hafði aldrei á ævinni tekið þátt í neins konar happdrætti en keypti sér svo skafmiða og vann hundrað þúsund pund og dó svo stuttu seinna. Svo ég er mjög fegin að vera að byrja á þessu ekki  nema 44 ára gömul. Svo nú sit ég með 12 skafmiða í hendi og undirbý mig fyrir að skafa og skafa . Hugsið ykkur...það getur bara vel verið að eftir allt skafið hafi líf mitt breyst og ég geti bara rölt upp á fasteignsölu og borgað inn á óðalssetrið sem á að vera svona heillahreiður fyrir fólk í leit að sjálfu sér. Þar er líka draumastúdíóið mitt og frábær galleríssaðstaða. Skrifstofa, nokkrar litlar íbúðir og vinkjallri undir húsinu. Og í endanum er lítið cottage..íbúð sem hentar mér og mínum milljón prósent vel. Hobbitastigi upp á loft..og...úff best að halda áfram með skafmiðana.

Það skyldi þó aldrei vera...??? Ég verð svo spennt að hugsa um alla möguleikana sem geta falist á bak við þetta silfurgráa skaf að ég tími hreinlega ekki að skafa alveg strax. Geri það kannski bara síðdegis.

Litagyðja

Legg svo á og mæli um

að pottur minn fyllist

af gulli og geimsteinum.

Þegar ég hef lokið sköfuninni geri ég tilkall um að verða hér eftir nefnd..Skafarinn mikli frá Skagafirði. Þó ég sé ekki beint og alveg þaðan þá hljómar skafari og skagafjörður eitthvað svo vel saman.

Rosalega er gaman að vera svona eftirvæntingarfull.

Það getur vel verið að ég skafi bara aldrei af þessum 12 skafmiðum. Geymi þá í silfurkonfektkassanum og alltaf þegar ég held að mig vanti eitthvað sárlega þá get ég handfjatlað þá og hugsað um hvað sé undir silfurgráa skafinu. Kemst svo að því að ég hafi alveg nóg í bili og set þá aftur undir rúm í í konfektkassanum. Það er nefninlega svo gott að vita að maður eigi möguleika því með þeim kemur vonin og með von í hjarta getur maður allt, alltaf.

Megi dagurinn ykkar vera troðfullur af öllum hugsanlegum möguleikum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vona svo sannarlega að þú fáir stóran vinning, og eigðu góða dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.7.2007 kl. 09:38

2 Smámynd: www.zordis.com

Stt að eiga konfektkassa undir rúmmi með allskyns dýrindis gersemum, tala nú ekki um von og hamingju sem seitlar í stútfullu hjartanu.  Skafarinn frá Skagafirði ...

Njóttu dagsins og megi öll heimsins heppni umlykja þig sem aðra sem staldra við á síðunni þinni.   koss út um allt!

www.zordis.com, 12.7.2007 kl. 09:41

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Aldeilis yndislegt

Hrönn Sigurðardóttir, 12.7.2007 kl. 10:12

4 Smámynd: Ibba Sig.

Dásamleg minning um skafarann.

Ibba Sig., 12.7.2007 kl. 11:23

5 identicon

Rakarinn frá Sevilla og Skafarinn frá Skagafirði.
En mikið hrikalega ertu búin að gera mig forvitna! Ég er alveg viss um að þú sért löngu búin að skafa, en viljir bara ekki segja okkur frá öllum mörg-þúsund-pundunum sem þú vannst.

Maja Solla (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 12:01

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nei, ég er ekki búin að skafa einn einasta. Alveg dagsatt. Lífið er um tímasetningar.  Það er ekki tímabært að skafa akkúrat núna. En ég er eftirvæntingarfull

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 12:23

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta heitir að búa sér til eftirvæntingu og tilhlökkun ... vona að það leynist mörg, mörg, mörg pund á miðunum þínum.

Guðríður Haraldsdóttir, 12.7.2007 kl. 20:30

8 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Að eiga sér drauma er drifkraftur alls og að ala þá er upphaf þess að láta hluti gerast, verða að veruleika. Gott að eiga svona fjársjóð sem baktryggingu :) ... Þú gætir líka kannski selt hluti í skafmiðafjársjóðnum til að dreifa áhættunni, he he ....

Hólmgeir Karlsson, 12.7.2007 kl. 22:05

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Legg ég á og mæli um að undir liggi ávísun á fjársjóð.  Vona að það verði samt ekki til að umbylta tilverunni í efnishyggjuæði. Peningar eru eldiviður. Það er gott að eiga stafla við kamínuna. Það fyllir mann örggi og eyðir kvíða fyrir vetrinum.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.7.2007 kl. 05:39

10 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

stundum og oft er það mesta ólukka sem gerist í lífi fólks að vinna stóra vinninginn !

Lós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.7.2007 kl. 06:20

11 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðan dag. Hér er líka mikil spenna í gangi! Samkvæmt veðurspá á hér aðeins að rigna örlítið um kl 16. Þetta er auðvitað stórkostlegt eins og þú skilur vel Hér verður þessu þurrviðri fagnað með kvöldmáltíð í Perlunni.    

Vona að þinn dagur verði líka með sína þurru kafla.

Sólarknús frá einni sem sér sólargeisla út um gluggann sinn og er  bara á leið út að leika

Guðrún Þorleifs, 13.7.2007 kl. 06:24

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

 og  til þín.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.7.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 310949

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband