16.7.2007 | 20:28
Dásemdarkvikmynd og draumur um mannauð
Var að horfa á kvikmyndina Fur með Nicole Kidman og æ honum þarna hinum....og hún var bara æðisleg mæli eindregið með henni. Svolítið dularfull, draumkennd og mjög fallega tekin. ENGAR hraðar klippingar og tikkar bara í flest box hjá mér. Nicole er líka bara svo góð leikkona.
Svo sat ég í garðinum í smá stund því það kom sólarglæta og krakkarnir í hverfinu voru úti að leika.
Úr næsta garði heyrðist.."I am the Greatest" og önnur barnsrödd svaraði "Oh no you are not. Not for much longer". Under, over, pepsi cola here we go!!! Þetta er greinilega einhver svona leikur. þau syngja þetta og sveifla höndum og standa á höndum og hoppa svo eins langt og þau geta.
Mér varð hugsað til þess að akkúrat svona líður börnum þegar þau eru ung..finnst þau frábær í sjálfum sér og finnst þau geta allt. Svo fara að laumast inn efasemdaraddir í kollinn á þeim, oft koma þær frá okkur stóra fólkinu með skilaboðin "ó nei það ertu ekki, ekki mikið lengur". Og svo er bara drukkið pepsi og hoppað út í lífið með hausinn fullan af alls konar skrítnum hugmyndum um ófullkomleika og getuleysi. Sköpunargáfan kæfð og barnið og lífsgleðin týnd.
Soldið sorglegar hugsanir í sólinni. Mikið vildi ég að við gætum kennt börnunum að halda áfram með þessa hugsun að þau séu frábær og fullkomin í sjálfum sér og smíðað menntakerfi sem byggir á skilningi á einstaklingnum og mannauðinum sem býr í fólki og því hversu allir eru einstakir hver á sinn hátt.
Sú menntastefna gæti til dæmis heitið draumur dansandi engils.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Draumur dansandi engils er fallegt nafn á fallegri hugsun Katrín mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2007 kl. 20:31
Börn í dag verða "of snemma fullorðin"
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:05
Já við gerumst sek um að inræta börnum takmarkanir og eyða trú þeirra á takmarkalausan mátt. Hér er talað af djúpri visku hjá þér Snætrýna mín.
Myndina hef ég ekki séð. Soldið loðinn titill.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.7.2007 kl. 21:15
Ekkert eins yndælt eins og að tylla sér þegar styttir upp og hugleiða. Takmarkanir eru því miður það sem við komum í hausinn á litlum dansandi og draumlyndum englum okkar!
Frelsi til að vera það sem við höfum frá fæðingu til grafar! Flott takmark!
www.zordis.com, 16.7.2007 kl. 21:37
Oh hvað ég sammála þér með elsku börnin.
Kristín Katla Árnadóttir, 16.7.2007 kl. 22:21
Draumur dansandi engils..........
Yndislegt
Hrönn Sigurðardóttir, 17.7.2007 kl. 12:28
Líst vel á þetta. Úrtölur eru það allra versta, bæði fyrir börn og fullorðna.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:23
Englar eru mitt uppáhalds uppáhald. Safna englum og finnst þínir dásamlegir. Ætla að kíkja á þessa mynd ... Fur. Smjúts.
Hugarfluga, 17.7.2007 kl. 21:47
Sammála frú Guðríði. Úrtölur er það allra versta í þessum heimi og alltof mikið gert af því að telja fólk af tilraunum. Hugsið ykkur bara ef Einstein hefði hætt við ljósaperuna bara vegna þess að einhver sagði honum að þetta væri vonlaust. Karlræfiillinn var víst búinn að gera ófáar tilraunir áður en það loks tókst.
Steingerður Steinarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:53
Einstein samdi nú afstæðiskenninguna. E=Mc2 manstu. Þú ætlaðir vafalaust að segja Edison, en ég mátti tilað leiðrétta af því ég er svo ógizzlega gáfaður.
Fyrirgefðu framhleypnina.
Jón Steinar Ragnarsson, 19.7.2007 kl. 06:27
Hehe Einstein-Edison, what´s the f.... difference? Hér er ljúft partý í kommentakerfinu þínu sem ég var nærri búin að missa af. Afhverju ertu ekki að blogga meira kona? Saknó
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2007 kl. 11:33
Nú veit ég hvaða mynd ég get leitað að næst þegar ég ver á vídeóleigu borgarinnar. Svona ef ég man það þá
Sammála þér um að það er slæmt hve trúin á sig er lurkuð úr barnsálinni á leið sinni til fullorðinsáranna.
Guðrún Þorleifs, 19.7.2007 kl. 13:32
Takk fyrir kommentið á síðunni minni, Katrín mín. Ég held að við sem vinnum úti frá 9-18 höfum ekki mikið val um að lifa hægt og njóta eins og okkur lystir. Auðvitað reynir maður að nýta þann tíma sem gefst og það gengur bara mjög vel ... mig langar bara í meiri tíma með mínum nánustu. That's it.
Hugarfluga, 19.7.2007 kl. 20:20
Takk fyrir uppástungu á mynd ;)
Lúðvík Bjarnason, 19.7.2007 kl. 21:45
Það má aldrei segja, 'þetta er ekki nógu gott hjá þér', við barn, heldur hrósa því þegar það gerir sitt besta.
Svava frá Strandbergi , 19.7.2007 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.