Leita í fréttum mbl.is

Ég stíg mínum netta fæti til jarðar til að minna á að....

....húmor er fyrir öllu.

 Alls ekki taka lifinu og sjálfum ykkur of alvarlega.

Englar elska húmor..lífið á að vera skemmtilegt og fullt af gleði.

untitled48

Sáuð þið ekki myndina City of angels?

 Muniði hvað engillinn þurfti að fara á mis við allan unað þessarar jarðar?

Bragð og ilm, snertingu og unaðinn af því að fara i sturtu og njóta vatnsins?  Vindblærinn og regnið. Að geta átt samskipti og njóta tilfinningarinnar um nærveru og ást. Hann var tilbúinn að fórna eilífðinni fyrir þennan unað sem aðeins fæst hér á þessari dásamlegu plánetu Jörð.  Og við erum öll á fullu að fatta þetta ekki.

 Njótið og njótið!!!!!

Hættið að hafa áhyggjur og hafið bara gaman og gott af lífinu.

 Það er bara yndi!!!

untitledkisur

Það vita kisurnar. Þess vegna eiga þær sér níu líf.

Eru ekki tilbúnar að yfirgefa svona unað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Nákvæmlega Katrín. Sástu kisubloggið mitt í dag? Þær sko einmitt kunna að njóta lífsins ....... versta að þær geta verið ansi háværar á stundum ..... haha

Ragnhildur Jónsdóttir, 20.9.2007 kl. 23:53

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já svo sannarlega þarf maður að læra að njóta.  Hugsaðu þér annað eins, við þurfum að læra að taka á móti því sem gott er.  Hvar klikkuðum við á leiðinni ? Hverju gleymdum víð í tímans rás.  Hvenær hættum við að kunna að njóta í stað þess að hafa áhyggjur ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 00:34

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef aldrei hitt háværa kisu. Hvenær á svo að flytja heim???

Ásdís Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 00:48

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það er oft svo mikil heimsspeki í færslum þinum Katrín. Þetta er gott hugarfóður að morgni dags.  Nú ætla ég að njóta dagsins vel!

Ágúst H Bjarnason, 21.9.2007 kl. 06:36

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já Ágúst minn svona er ég heppin. Guð gelymdi að setja á mig risajúllur en gaf mér í staðinn frjóa hugsun. Kona með heila..ekki slæm blanda? Ég allavega nýt mín í botn.

Ásdís heimkoman verður í samræmi við fund á heimili og atvinnu. Annars er ég að hugsa um að búa bara til jobb sem hentar mér. Ég leita að gullfallegri bjartri rúmgóðri íbúð með 4 herbergjum á besta stað í bænum til leigu á sanngjörnu verði. Vil sjá bæði haf og fjöll út um gluggann, má vera garður og tré og jafnvel lítil tjörn. Ef það fylgir svona velmennei sem hreinsar gólfin meðan maður er í vinnunni er það líka frábært og já. Helst nálægt góðum skóla fyrir englakrúsirnar mínar. Og ekki verrra ef sundlaug er á svæðinu.

Og kíkið nú í kringum ykkur fyrir mig elskurnar...

Ég þarf að fara og njóta kaffibolla með Jacqui vinkonu minni og samverunnar með henni. Eigið nautnafulllan dag kæru bloggvinir.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.9.2007 kl. 08:39

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki amalegt að byrja daginn á svona lesningu 

Halldór Egill Guðnason, 21.9.2007 kl. 09:10

7 identicon

Algerlega rett hja ter. Rosalega fannst mer gott ad lesa tetta blogg hja ter. Eg skal hafa tetta i huga. Takk fyrir

Daníel Þórhallsson (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 09:40

8 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk, Katrín, fyrir að tipla um lífið og benda okkur hinum á að hlussast ekki bara áfram!

Ívar Pálsson, 21.9.2007 kl. 09:50

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka sólargeislana sem þú sendir inn í líf okkar ...........

Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.9.2007 kl. 10:40

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk elskan ég trúi á engla og veru glöð.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2007 kl. 12:37

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góður pistill. Í dag ætla ég að njóta.........

Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 310953

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband