Færsluflokkur: Bloggar
2.9.2008 | 20:52
Að uppskera eins og maður sáir.
Hverju sáir þú í kringum þig daglega?
Er þetta spurning sem skiptir máli?
Páll Óskar segir í auglýsingu í sjónvarpinu að maður eigi að eiga fyrir því sem maður kaupir. Ég er nú alveg sammála því enda langt síðan ég henti kreditkortinu mínu og versla nú eingöngu með alvöru silfurpeninga frá Olympíu.
Borgaði með peningum..eða sko debetkortinu ...í dag þegar ég verslaði hvítt lakk og grunn til að mála gömul og lúin húsgögn skjannahvít. Er með hvítt á heilanum núna og vil bara hafa allt hvítt í kringum mig. Eins og ég get samt verið litaglöð á stundum.
Kannski hefur þetta eitthvað með samviskuna að gera. Að hafa hreina skjannahvíta samvisku og uppskera eins og maður sáir. Ekki það að ég hafi verið að gera eitthvað sem blettar samviskuna....þetta er bara sama tilfinning og þegar maður vill standa tandurhrein upp úr dásamlegu bubblebaði með sápukúlur í hárinu. Vita að maður viti hvað maður er að gera.
Kannski er líka bara flott að hafa marglita og skemmtilega samvisku og sá marglitum fræjum og uppskera heimili og heim í öllum litbrigðum regnbogans.
Við Zordís sátum einmitt á hvítum skinnum í dag og ræddum um lögmálin og töfrana, að það skipti máli hvort maður málaði heiminn með svörtu eða hvítu. Hvort að kringumstæðurnar væru fyrirfram litaðar eða lituðust af okkar eigin viðhorfi og snilli með málningarpenslana. Réðust af okkar eigin útsýni og hjartalagi.
En ég ætla sem sagt að lakka gömlu kommóðuna hvíta og setja á hana gamlar silfurhöldur. Og svo kannski skenkinn í ganginum og stóra stofuskápinn. Og litla gamla snyrtiborðið með djúprauðu höldunum sem skreyttar eru marglitum gimsteinum.
Eða ég mála bara nýjar myndir á hvítan striga. Með hvítu. Og hugsa um hverju ég sái og spái með sporunum á þessari plánetu jörð.
Ungi heimur, hvíslaðu að mér ljóði um fyrirheit þín.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
1.9.2008 | 14:01
Stoppistöð
Það er nú einu sinni svo í lífiinu að eitt tekur við af öðru og stundum er lítið stopp á milli lífsins uppákoma. Núna erum við að pakka og undirbúa flutinga fyrir mægðurnar fallegu sem hafa búið hjá okkur sl 10 mánuði, Litla Alice Þórhildur ömmustelpa og mamma hennar hafa fundið sér hreiður sem er bara hér í næata húsi við okkur stórfjölskylduna og við erum öll alsæl með það. Frábært verkefni eftir opnun sýningarinnar um helgina og ég segi bara takk fyrir frábæra mætingu og svakalega gott andrúmsloft
Mig langar a vekja athygli á einu verki sem ég setti upp í Ráðhúsinu og er ekki málverk heldur einhvers konar gjörningur sem ég hef kosið að kalla Stoppistöð. Þar koma við sögu tveir veglegir bekkir frá Reykjavíkur borg og með þeim fylgja 3 sögur. Tilvalið að tylla sér á bekk og staldra aðeins við í lífsins amstri og hverfa á braut inn í sagnaheim. þessar sögur eiga það allar sameginlegt að vera óraunverulegar en samt alveg dagsannar og gerðust í raun. Þið veljið ykkur bara spilara og smellið a ykkur heyrnartólum og ýtið á play og hlustið. Og til að þið hafið það bara enn betra á meðan þið hlustið eru hvít mjúk skinn á bekkjunum sem færa ykkur hlýju og notalegheit.
Njótið vel og ég er farin að kaupa málningarrúllu og hvíta málningu því ég hef ákveðið að gefa nokkrum mublum andlitslyftingu í tilefni komu haustsins og gera fínt og flott fyrir Herra vetur konung. Set inn myndir síðar..er svo upptekin núna...má reyndar líka segja uppnumin yfir þessari bráðskemmtilegu og töfrandi veröld.
Jiiii ekki segja mér að þessi mynd sé um það sem ég held að hún sé um. Ég verð að fara að láta athuga í mér sjónina..sá ekki fyrr en eftir á að það má líklega misskilja textann um það að vera uppnuminn þegar maður skoðar þessa mynd í almennilegri stærð..hehe.
En þetta er allavega hippaleg apaynja með eyrnalokk að dunda sér við sitt. Hvað sem það nú er.
Muna að setja á "To do" listann minn að fá mér betri gleraugu.
p.s Í sambandi við myndina... Ég sá apaynju með flotta eyrnalokka snyrta á sér neglurnar og eintóm bros í kring...en þegar ég var búin að setja inn myndina í réttri stærð kom nú eitthvað annað í ljós. En ég ákvað að láta hana standa.
Hvet ykkur eindregið að koma við á stoppistöðinni...og segja mér hvað þið upplifðuð því það er framhald af þessum gjörningi og hvað hann framkallar. Einhverskonar rannsóknarverkefni. Og skiptir máli fyrir framhaldið. Hvaða máli skiptir að deila reynslu og upplifun með öðrum?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
29.8.2008 | 09:45
Eins gott að málverkin fjúki ekki bara um alla borg...
Sé fyrir mér stóru olíumyndina bara takast á loft og festast á Hallgrímskirkjuturni í þessu roki. Ekki endilega besta veðrið til að vera flytja myndir og dót..samt gott að hairdúið verður ekki gert fyrr en á morgun svo við verðum ekki eins og argintætur allar saman.
Hér kemur mynd og áminning..... á morgun milli klukkan 15 og 17.00 verður opnunin í Ráðhúsinu og við stelpurnar sem birtumst nú í fyrsta sinn saman í þessum veruleika bjóðum alla bloggvini okkar hjartanlega velkomna sem og aðra listunnendur
SJáumst..þarf að fjúka um borgina og koma öllu á sinn stað. Alltaf gaman svona síðustu andartökin fyrir sýningu..og fullt af fiðrildum og drekum í magaskonsunni. Og hárið gjörsamlega út um allt!!!
Gott að ég er örugg í flottu fermingarskónum hans Nóa...þeir eru með svo stömum sóla að ég haggast ekki á malbikinu. Bara haggast ekki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
...þegar við hittumst í fyrsta skipti allar bloggvinkonurnar sem ætlum að opna bloggvinkvennasýninguna á laugardaginn. Það var flott stund og skemmtileg með alveg frábærum ljósmyndara Vikunnar. Þegar við áttum að vera tindrandi glaðar á myndinni sögðum við allar í kór..SKATTASKÝRSLA..og ljómuðum eins og sólir og svo þegar við áttum að vera munúðarlegar og sexí sögðum við allar saman í kór...hægt og rólega...RÚGBRAUÐ!!!
Við erum núna allar á haus að undirbúa og vonumst til að sjá sem flesta bloggvini okkar á þesssari ævintýrastundu sem varð til fyrir u.þ.b einu og hálfu ári í gegnum Moggabloggið.
Og hér erum við ..skapandi og töfrandi og eftirvæntingarfullar. Búnar að ákveða í hverju við eigum að vera og alles...sem er auðvitað mesta málið.
Héldum sellufund í dag og undirbjuggum gjörninginn meðan það ringdi í höfðuðborginni...hver annarri ólíkari en samt tengdar undir sömu regnbogans regnhlíf. Listagyðjan heldur verndarhendi yfir okkur og verkunum okkar og megi þau gleðja ykkur sem mest. Þetta er okkar sköpun og samstilling...og hún varð til hér hjá ykkur og okkur á Moggablogginu.
Sjáumst!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.8.2008 | 21:14
Hittingur hjá árgangi ´63 úr Öldutúnsskóla á A. Hansen 6. september kl 20.00 ....mætum öll!
Kæru skólafélagar úr Öldutúnsskóla árgangur 1963 nú ætlum við að hittast og rifja upp gömul kynni í tilefni að því að nú eru liðin 13 ár síðan við vorum unglingar...eh afsakið. Það eru víst 30 ár síðan við ungmennin vorum saman í skóla þó það sjáist engan veginn á okkar ytra útliti. Get svarið það. Set hér með mynd af bekknum mínum þegar við vorum 13 ára svo þið getið sjálf séð að við erum öll bara eins og við vorum þá. Töff, flott í tauinu og skárum okkur úr hvað varðar hairdú og klæðaburð. Sjáið t.d frönsk áhrif á höfði Önnu Gunnu og Guðrúnar Guðmunds.
Ætlunin er að hittast á A.Hansen laugardagskvöldið 6. september klukkan 20.00. Makar eru velkomnir síðar um kvöldið.
Vonandi verður góð mæting og endilega látið vita af ykkur í athugasemdakerfinu og látið gamla bekkjarfélaga sem þið haldið enn sambandi við vita af þessum hittingi. Hann verður líka auglýstur í Fjarðarpóstinum og svo sendum við mail til allra sem við náum í.
Ég efast ekki um að það verður mikið fjör og hlakka svoooo til....þar sem ég var í englandi síðast þegar svona reunion fór fram og hef því ekki séð suma gömlu skólafélagana í áratugi.
Sjáumst hress og kát árgangur ´63. Áfram Öldutúnsskóli!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.8.2008 | 07:50
Snýst jörðin hraðar eða er þetta bara hausinn á mér?
Ég er búin að vera með svima í heila 3 daga. Held að miðjupunkturinn í mér hafi verið færður og ég sé nú að læra nýtt jafnvægi.Geta staðið á einni tá ef þarf í nýrri veröld og haldið höfði. Kannski er þetta bara af því að ég hef snúist í endalausa hringi undanfarna daga og haft svo margt gott að gera að mig svimar af gleði og eftirvæntingu.
Ætla að vera með smá sýningu á morgun menningarnótt í grasivöxnu galleríi á laugavegi 66 ásamt öðrum listamönnum og konum. Görótt vídeóbrot sem átti að prýða brot af salnum finnst hvergi. Ég er búin að fara yfir allar spólur sem til eru á heimilinu og vídeóið er gufað upp, farið, horfið að eilífu ..eða allavega þar til það finnst á einhverjum afar góðum stað.
Líklega of seint. En það er aldrei neitt of seint..allt hefur sinn tíma og ef ég hef lukkuna með mér þá verður það komið í leitirnar fyrir Ráðhúss-sýninguna sem við ráðsettar bloggkonur erum nú að undirbúa svo vasklega að pilsaþyturinn gárar tjörnina og endurnar vaka og kvaka.
En litlu sögurnar mínar eru brenndar og komnar á diska tilbúnar að galdra fram stemmingu ásamt leikmunum fyrir gesti og gangandi Menningarbúa sem trúa á að allt er mögulegt, bara ef maður gefur sér tíma til að hlusta.
En ég er samt á því að þessi svimi er galdur sem mun endast um aldur...þyrlar burtu gömlum hindrunum og hugarformum sem eiga ekki heima í nýjum heimi opnunnar, sköpunar.....og alvöru ævintýra. En nú verð ég að halda áfram. Leita dauðaleit af greiðu eða einhverju tóli til að tjónka við hárið því það er víst lokkandi ljósmyndari á leið til mín í dag að mynda konu sem myndast ekki. Gangi honum vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.8.2008 | 23:46
Jæja, haustið að koma og tímabært að læðast inn í bloggheima aftur
...enda liggur konu margt á hjarta eftir ævintýralegt og hreint út sagt verulega töfrandi sumar.Þarf að segja ykkur frá þeim ævintýrum og töfrum fyrr en síðar. Mæti nú til leiks í fínu formi með ása í hverri ermi. En þar sem klukkan er að ganga tólf og ég þarf á lappir ekki seinna en 5.30 til að koma mogganum í misþröngar lúgurnar í vesturbænum læt ég þessar innkomu lokið í bili með mynd...og háværu geyspi Aghhhhhhh
p.s Trúiði því að ég er búin að missa 7 kíló á þessum morgungöngum mínum í blíðskaparveðri, njóta fegurðar morgunsins, sólarupprásarinnar og fá svo borgað fyrir í þokkabót??
Hversu heppin getur ein kona verið í Vesturbænum? Life is GOOD!
Og Lukkan sem sefur í kerlingarkrukku lætur svo stíft og illa þessa dagana að ég er að hugsa um að hleypa henni út því hún krefst þess að fá að leika um líf mitt og fætur næstu 45 árin. Hún ætlar að setja upp með mér sýninguna fyrir ykkur sem við bloggvinkonur verðum með í Ráðhúsinu 30. ágúst.
Það verður sko opnun aldarinnar og þeir sem vilja fá sent boðskort endilega sendið mér línu á kbaldursdottir@gmail.com með mailinu ykkar eða heimilisfangi eða setjið það hér í athugasemdirnar.
Og það verða ekki bara stórkostleg málverk og fagurmálaðar ástarflísar þarna til sýnis . Ó nei. Undirrituð ætlar að vera með töfrandi gjörninga og mikla gleðiupplifun og......ja þeir sjá það bara sem koma. Maður má ekki segja of mikið og halda dulmögnuninni á sínum stað enn sem komið er. Við verðum þarna Guðný Svava, Katrín Níelsar, Elín Björk, Zordís og ég.....þessi litla hugdetta sem hentist á milli okkar á blogginu fyrir rúmu ári er nú að verða að hreinum veruleika og spennandi verkefni sem andar.
En segi það og meina það frá hjartanu kæru bloggvinir " I have really missed you all"!
Bloggar | Breytt 18.8.2008 kl. 07:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
26.6.2008 | 20:41
Smá kveðja úr bloggsumarfríinu mínu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.6.2008 | 23:43
Óli lokbrá, yfirlið karlmennskunnar og föstudagurinn 13.
Er búin að vera mjög upptekin við að blogga ekki. Er mest að hugsa um fjölskylduna og fólkið mitt þessa dagana. Og vinnurnar mínar. Í þessari röð. Theodóra súperstelpa datt á hjólinu sínu og fékk risagat á hnéð og við heimsóttum slysó til að láta laga skinntætlur og blóðstrauma sem láku um allt. Pabbinn beið frammi þar sem hann verður alltaf svo undarlega hvítur í framan og magnlaus þegar svona stendur á..bróðirinn var hetjulegur og rak nefið ofan í sárið meðan systirin stóð sig eins og kvenhetjum sæmir á ögurstundum. Nokkrum mínútum síðar slóst hann í félagsskap föðurins frammi á gangi og hné svo niður skjannahvítur og rænulaus og vaknaði á sjúkrabörum með lappir uppí loft og lækna allt um kring...hehe. Ég mamman stóð vaktina þar til að öll óhreinindi höfðu verið hreinsuð upp úr blóðugum og djúpum ginningargöpum með tannbursta og öðrum tólum og sáraumbúðir komnar á sinn stað. Svo fórum við öll og fengum okkur ís til hressingar eftir annasaman dag.
Svo er búið að umbylta íbúðinni því langþráður vinur frá englandi sem flutti til ameríku er að koma á föstudag til að vera með Nóa vini sínum í 3 vikur og þeir þurfa sitt plás strákarnir. Það er alveg dásamlegt að endurgera hvert herbergi og skúra úr skúmaskotum og nú er allt hreint og fínt nema fatahrúgan sem kom í ljós undir rúmum og kommóðum og hefur nú troðfyllt heilt baðherbergi. í vikunni verður því haldið í ferð til systur minnar sem á iðnaðarþvottavél og þurrkara þar sem óhreinindin verða skoluð burt á einu síðdegi og fjölskyldan getur gengið um í hvítþvegnum flíkum sínum með vorilmi og pressubrotum og litið út eins og fannhvítir sautjándajúní englar.
Einhver spurði hvað ég ætlaði svo að gera á föstudaginn. Ég veit ekkert um það nema að ár bætist við jarðarveru mína hér og ég veit hreint ekkert hvort það sé efni í einhver stórhátíðahöld. Fæ mér kannski fána og hlusta á Þursana í bænum einhverjum dögum síðar. Og hugsa meðan ég japla á bleikum bómullarís um hvað þetta sé allt saman. Og hvort við megum eiga von á því einn góðan veðurdag að njóta þeirrar gæfu að búa í samfélagi sem sé engu líkt vegna góðmennsku og gæfu allra þeirra sem landið byggja. Það væri alveg ágætis afmælisgjöf fyrir hálfníræða konu eins og mig.
Að hér rikti samkennd, samhugur og vit til að koma nauðsynlegum hlutum í verk og forgangsraða eftir hjartanu og nota svo hausinn til að fylgja þeim verkreglum eftir.
En nú verð ég að leggjast til hvílu enda klukkan langt gengin yfir minn venjulega vitjunartíma Óla Lokbrá sem færir mér dýrðlega drauma á silfurfati ef lygni ég bara aftur augunum á réttum tíma. Og mogginn bíður á stéttinni fyrir utan eftir að vera borinn í hús fyrir sjö í fyrramálið. Ég þekki minn vitjunartíma og þann hrukkubana sem svefninn er.
En ég er allavega búin með bloggskylduna í bili og bið allar góðar vættir að vaka yfir mér og mínum, þér og þínum og okkur öllum í kór á þessum ögurstundum þar sem allt getur gerst. Líka allt hið góða. Ekki gleyma því
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 311443
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari