Leita í fréttum mbl.is

Guðdómleg snjókoma og innri fegurðardís

Þegar maður er íslendingur á útlenskri grundu þar sem næstum aldrei snjóar fer um mann sælu og gleðihrollur þegar það kemur snjór. Og akkúrat núna falla til jarðar dúnmjúkar snjóflögur og minna mig á landið mitt. Er ekki merkilegt að engin þeirra er eins? Að hvert einasta snjókorn er einstakt í lögun og hefur sitt munstur?

Alveg eins og við mennirnir. Algerlega einstök eintök hvert og eitt einasta okkar. Ég er t.d alveg einstök kona. Það er engin önnur mannvera nákvæmlega eins og ég til í allri veröldinni. Reyndar var fólk að rugla mér saman við Ellu Sveins á stöð 2 forðum daga en það telst ekki með.

Sá einu sinni myndir af snjókornum sem maður tók sem hafði ferðast um allan heiminn í yfir tuttugu ár og hann hafði ekki fundið eitt einasta sem átti sér tvífara í sjnókornafjölskyldunni. Þetta voru fallegar myndir og minna um margt á vatnsdropamyndir Emotos.

Vissuð þið að vatnið breytir sér eftir því hvernig þú hugsar til þess og hvernig orka er í kringum það? Bregst meira að segja við orðum og tónlist? Og þar sem að uppistaðan i okkur sjálfum er að mestu vatn þá er eins gott að hafa hemil á því hvað maður er að hugsa og segja. Ekki vill maður vera með eitthvað gruggugt skrímslavatn innan í sér? Þess vegna hef ég nú tekið upp þann góða sið að tala fallega við vatnið í sjálfri mér og hugsa bara fallegar og jákvæðar hugsanir til hennar einstöku mín.

 vatn

Og ég ímynda mér að ég sé að taka stökkbreytingum hið innra og breytast í stórkostlega fegurðardís. Ég meina það getur bara ekki annað verið þegar ég kyrja t.d í hvert skipti sem ég fer í bað orðin...fegurð, heilsa, hamingja, kærleikur og jafnvægi. Og ég bíð spennt eftir að þessar innri breytingar nái alla leið í gegnum skinnið á mér og birtist í mínu ytra formi líka. Þann dag set ég inn stóra mynd af mér á bloggið mitt svo þið getið kommentað á hvað allt svona virkar dásamlega vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ferlega leiðinlegt að enginn skuli kommenta svo ég geri að bara sjálf. Á líka svona merkilegan pistil.

Skamm.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.1.2007 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband