Leita í fréttum mbl.is

Tilviljun??? Ó nei held nú ekki.

Fólk segir að eitthvað hafi komið þeim algerlega á óvart og að það hafi verið svo mikil tilviljun. Hugsaðu þér..ég var búin að vera hugsa svo mikið um hana Jónu systir og hvað heldurðu ekki...Rekst ég ekki bara á hana í Kringlunni í gær? Alger tilviljun ha?

 Eða.....Mig vantar svar við áleitinni spurningu. Hugsa mikið um hvert svarið geti verið en fæ engin svör. Sest upp í bílinn og ræsi hann keyri af stað og opna fyrir útvarpið. í útvarpinu er lag sem segir mér nákæmlega með textanum svarið sem ég var að leita af. Alger tilviljun...ha? Að ég skyldi einmitt hafa verið að hlusta á útvarpið akkúrat þarna. Ó nei held nú ekki.

Sumir segja að eina sem er tilviljun er orðið sjálft.

En ef við skoðum nú aðeins þetta orð...og leikum okkur með það þá þýðir það að hafa vilja til. Tilviljun er að hafa vilja til..ekki satt? Þannig að allt sem við erum svona hissa yfir að gerist og köllum tilviljanir er í raun bara vilji okkar að störfum. Undirvitundin sendir út skilaboð í alheiminn um hvað við viljum og það kemur til okkar á svona margvíslegan og frábæran hátt..stöðugt og alltaf. Við erum bara ekkert alltaf að taka eftir því sem streymir endalaust til okkar. Og alltaf í samræmi við það sem við höfum raunverulegan vilja til.

Já tilviljun!!!!  Þess vegna er svo mikilvægt að setja ætlunina, hugann og tilfinninguna í allt sem við raunverulega viljum en ekki í það sem við viljum ekki. Það er nefninlega engin TILVILJUN hvað verður á vegi þínum í lífinu elskið mitt. Eða hvað?

catching the light

Og haldiði að það sé svo einhver tilviljun að það sé einmitt laugardagur hjá okkur öllum í dag? Ó nei held nú ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Sem leikendur á "Stóra Sviðinu" er enginn annar að skapa þetta nema við sjálf, hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Gleymum okkur svo algjörlega á milli í leikrituninni og dramaforritinu að það hálfa væri nóg og því um engar tilviljanir að ræða en formúlan fyrir því er eitthvað óljós -  kannski erfitt að vakna úr forritun aldanna

Vilborg Eggertsdóttir, 24.3.2007 kl. 13:40

2 Smámynd: Ibba Sig.

Ha? Laugardagur? Ég sem hélt það væri fimmtudagur. Ekkert skrítið að það er fámennt í vinnunni

Ibba Sig., 24.3.2007 kl. 13:50

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ibbs I love u.  Þetta dásamlega allsgáða viðhorf þitt til lífsins er svo skemmtilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.3.2007 kl. 13:59

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð grein hjá þér Katrín nú sem oft áður.

takk

Hrönn Sigurðardóttir, 24.3.2007 kl. 14:53

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef tilviljanir sýnast vera til, þá er það alger tilviljun.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.3.2007 kl. 15:40

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er alltaf gott sem þú segir Katrín mín

Kristín Katla Árnadóttir, 24.3.2007 kl. 16:26

7 Smámynd: Birgitta

Ótrúleg "tilviljun" að þetta var akkúrat sem ég þurfit að heyra/skjá, akkúrat núna.
Takk kærlega fyrir Katrín.

Birgitta, 24.3.2007 kl. 18:27

8 Smámynd: Björn Heiðdal

Þetta er hárrétt hjá þér, engar tilviljanir bara svör við straumum og skilaboðum sem við sjálf sendum frá okkur.  Fólk sem sækist í vandræði fær þau yfirleitt.  En það er ekki nóg að hugsa ég vil ekki vandræði!  Maður verður líka að hafa vit til að forðast þau.

Björn Heiðdal, 24.3.2007 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband