Leita í fréttum mbl.is

Blúsaður raunveruleiki um nótt

Vaknaði eftir miðnættið búin að sofa vært á mitt græna síðan einhverntímann í kvöld. Man að ég sofnaði út frá My family..bæði sjónvarpsþættinum samnefnda og minni raunfjölskyldu sem kúrði með mér í sófanum. Og nú er ég bara ekkert syfjuð.

 Er samt aðeins að geyspa golu um stofuna.

Vaknaði með einhvern óróa í sálinni. Það er eitthvað voða mikið að brjótast um í mér þessa dagana og ég veit ekki alveg hvað það er. Eitthvað sem vill láta taka eftir sér og heyrast. Ég bara heyri ekki enn. Hlusta eins fast og ég get en veit samt alveg að núna er tímabært að gefa bara eftir og leyfa þessum skilaboðum að detta í kollinn þegar ég er tilbúin að skilja um hvað Þau eru.

 Held bara fast í fingur forsjónarinnar á meðan eins og lítið barn.

Þetta er erfið hugmyndafæðing sem er í gangi núna.

people

Nóttin er svo hljóð og mjúk og vakandi.

Blá og full af tónlist.

Fuglarnir löngu þagnaðir og hvílast undir væng á grein meðan refir læðast um skóginn og öskra eins og konur í neyð. Stundum ámátleg í þeim veinin.

 Lognið hefur meira að segja sinn óm, hljóm.

Sé fyrir mér bláleita engla á skýjunum sem máninn veður í.

 Spilandi himnatóna á hljóðfærin sín sem koma svo niður sem draumur fyrir þig um blámann í fjarskanum.

Þinn bláma.

angels4

Blúsaður raunveruleiki um nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Skilningur. Áhorf. Áheyrn. Og koss....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.4.2007 kl. 01:39

2 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Ef ég mætti leggja inn, ertu kannski að hlusta of fast? Mér finnst stundum hlutirnir koma til manns þegar maður er að hengja upp þvott og ekki að pæla í neinu. En þetta er samt kunnuglegt hugarástand.

Ingi Geir Hreinsson, 21.4.2007 kl. 09:36

3 Smámynd: www.zordis.com

Það er verið að undirbúa þig .... svo heldur þú áfram að elska fjölskylduna að hengja út þvottinn og hlusta á ýlfrandi úlfa sem mér finst persónulega eitthvað svo yndislegt!  Skil þessa tilfinningu, ég fæ oft verki í beinin áður en eitthvað gerist og hvísl frá litlum fugli!  Yndislegar pælingar á miðri nóttu!

www.zordis.com, 21.4.2007 kl. 09:53

4 identicon

Ég hefði viljað vera fluga á vegg og upplifa þessa stemmningu með þér.

Maja Solla (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 09:56

5 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Ekki hugsa of mikið, þetta smellur saman þegar síst skyldi, jafnvel við uppvaskið. Hafðu það gott.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 21.4.2007 kl. 11:10

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Viss um að óróleikinn er upphaf af einhverju nýju. Gangi þér sem allra best og takk fyrir fallegu innleggin þín og myndirnar. Engar áhyggjur. Knús til allra.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 21.4.2007 kl. 11:15

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta kemur, þetta kemur

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.4.2007 kl. 11:17

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er svipað og fæðingin hans Jóns Steinars þið eruð sennilega tvíburar algjör samhljómur í innleggjum ykkar þennan morgun.  En ég er sammála þeim sem segja ekki reyna of mikið að hlusta.  Þá kemur það auðveldar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.4.2007 kl. 11:38

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta er komið! Þegar ég svo loksins skreið upp gat ég ekki sofnað og lá bara og vakti og hlustaði. Allt í einu varð ég svo slök,svo róleg og svo viss. Viss um að barnið væri fætt. Hugmyndin komin til jjarðar og færðingarhríðarnar yfirstaðnar. Og þarna var hún hugmyndin. Svo skýr og einföld og um leið svo mögnuð.

Svarið við spurningunni sem ég skrifaði í gær morgun á blað á kaffihúsinu. Af því að ég gat ekki fundið það sjálf og bað englana um að finna út úr þessu fyrir mig. Svona er nefninlega lífið frábært.

Stundum finnst mér ég vera svona meðgöngumóðir fyrir hugmyndir sem þurfa að komast til jarðar og hugmyndafæðing er stundum jafnerfið og venjuleg fæðing..bara öðruvísi og á öðru sviði.

Og nú ætlum við að fara út í lítið þorp og heilsa uppá 4 agnarsmá nýfædda kettlinga.

Allt er nýtt!!!

Knús til ykkar ljósmæður

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2007 kl. 11:43

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm.  Hvern dag erum við ný sköpun með sömu möguleika og fyrsta daginn.  Þegar svona óljósar spurningar banka upp á þá getur enginn svarað manni nema maður sjálfur.  Ég sest og hlusta á andadráttinn í mér í 10 mínútur og spyr mig svo hvað er að.  Maður veit ávallt svarið en er í mis mikilli afneitun á sannleikann.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.4.2007 kl. 11:51

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já takk...mér finnst nafngiftin Óradís algerlega við hæfi.

Virðulegri en Himnabulla allavega!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2007 kl. 18:20

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Um að gera njóta lífsins  við eigum víst bara eitt---sem við vitum um.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.4.2007 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 311096

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband