Leita í fréttum mbl.is

Lífsbreidd

shadow

Hver maður hugleiðir yfirleitt meira um lengd lífs síns en breidd þess.  Vildir þú vera í sporum mannsins sem vildi lifa lengi, sem hann og gerði, en á stund þeirri sem við öll mætum að lokum, sá líf sitt í langri mjórri línu, sem strengdan þráð og svartan að auki?  Veltu fyrir þér breidd lífs þíns fremur en lengd þess. 

Lifðu lífinu, gerðu það sem hugur þinn býður, hjartað þráir og sjáðu það sem augu þín vilja sjá.  Fylgdu fótum þínum um ótroðna stígu og gríptu þéttingsfast um ónotuð tækifærin sem bíða þín við hvert fótmál.  Haltu upp á tindinn þrátt fyrir ótta þinn við stórgrýtið í gilinu og augu þín nema birtu og geisla stjarnanna ef þú þorir að líta til himins og halda af stað.

ART_GoddessSet4

Stattu svo við enda lífs þíns á stundinni sem við öll mætum, glaður í bragði og mældu breidd lífs þíns fremur en lengd.  Því breiðara sem það mælist því minna máli skiptir lengdin.  Þá.. og einungis þá, finnur þú og heyrir innra með þér röddina stoltu sem segir: 

,, Ég hef lifað " !

fögnuður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Í ellinni sér fólk meira eftir því sem það gerði EKKI ... en því sem það gerði. VIð vitum ekkert hvaða tíma við fáum og því ættum við einmitt að einbeita okkur að breiddinni. Snilld að vanda, frú Katrín!

Guðríður Haraldsdóttir, 21.4.2007 kl. 18:25

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Um að gera að reyna að njóta lífsins   við eigum bara eitt líf   --- sem við vitum um.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.4.2007 kl. 18:57

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frú Katrín. Nú er ég svo aldeilis hissa. Gömul samstarfskona okkar sem poppaði einu sinni á Aðalstöðinni og tímdi ekki að gefa þér 3-5 lítil popp úr skálinni er flutt til Afríku og hefur fórnað sér fyrir fátæk börn. Sú hefur breyst. Ég væri löngu búin að gleyma henni ef hún hefði ekki nískast svona á poppið sitt ... og ég í leiðinni misst allt álit á henni. Líklega var hún búin að fara á námskeið í að standa með sjálfri sér og misskilið allt heila batteríið! Æ, þetta er líklega ljótt af mér ... en vildi segja þér fréttirnar. Segi þér svo fljótlega hvar þú getur nálgast sjónvarpsupptöku af þessu nýja lífi hennar ...

Guðríður Haraldsdóttir, 21.4.2007 kl. 20:05

4 Smámynd: www.zordis.com

Svo innilega sammála því að breiddin er mun yndislegri en lengdin!  Geta staðið upp og sagt, þetta er yndislegt líf! 

www.zordis.com, 21.4.2007 kl. 20:45

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ha??? Ekki man ég eftir neinu slíku...nema hafi það verið nachos. En Eitt gerir fólk einn dag og breytir svo stöðunni og gerir sitt allra besta og það telur meir en hitt. Nýtt líf og umbreyting er bara fangaðarefni...ALLTAF!!!! Við eigum öll okkar moment sem við tökum misvitrar ákvarðanir og það er ok.  Það sem kemur svo er bara það sem maður vill horfa á. Sem betur fer eigum við alltaf möguleika á að verða betri og örlítið vitrari. Og ég stend með því. Gangi henni allt í haginn Og það meina ég af öllu hjarta.Og megi Afríkufólkið njóta vel hjálpar hennar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2007 kl. 20:46

6 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Alsæl!

Til er gott íslenskt orðtak = Að deyja saddur lífdaga!

Sumir túlka þetta neikvætt, þ.e. að lífið hafi verið leiðinlegt og að það sé eins gott að fara. En aðrir túlka þetta jákvætt þ.e. að hafa notið lífsins og deyja mettur:

Ásgeir Rúnar Helgason, 21.4.2007 kl. 20:54

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eða bara að sofa södd vakandi daga.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2007 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 311096

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband