29.7.2007 | 11:12
Ég er alveg mátulega hamingjusöm í dag.
Æ hvað það er notalegt að sitja í rúminu sínu á sunnudagsmorgni og bíða bara eftir að klukkan verði nógu margt til að hringja til íslands. Að hafa svona góðan tíma og nóg af honum. Á meðan getur maður bloggað og bullað, verið vitur og vitlaus, spakur eða spjátrungslegur og hamrað því öllu inn svo aðrir megi lesa listina.
Mér er innanbrjóst eins og hjartað á mér sé að leysast upp í litfagurt ský. Að ég sé ekki raunveruleiki í efni heldur bara anda. Kannski er þetta hamingjan sem sækir mann svona heim. óræð og litfögur, látlaus en samt svo ljóslifandi.
Eitthvað svo létt á mér. Líka líkamlega.
Fannst eins og aukakílóunum væri að fjölga og merkti það á þrengri buxnastreng og maganum mínum sem fann sér hvergi pláss í þessum þröngu flíkum. Leysti þau mál á svipstundu. Keypti mér buxur sem eru númerinu stærri og hef síðan þá ekki haft hugmynd um að ég passi ekki í fötin mín og veit að með þessari aðgerð létti ég af mér áhyggjum upp á heil 10 kíló. Líkaminn passar í fötin og ég passa í líkamann. Og sálin mín passar í hjartað mitt sem svo passar fullkomlega í líkamann. Það bara passar einhvernvegin allt í dag.
Allt eitthvað svo...mátulegt!
Vikan framundan er troðfull af fagursköpuðum verkefnum. Verkefnum sem voru pöntuð fyrir svo löngu síðan að það er ekki hægt að mæla þann tíma. En tíminn er samt réttur og umsnúningurinn um það bil að verða að veruleika..... eða óraunveruleika.
Fer eftir því hvernig á það er litið.
Þetta er svona sunnudagshugleiðing fyrir þá sem ekki sækja kirkju reglulega en langar að velta fyrir sér einhverju öðru en vinna sofa éta prógramminu.
Anda og upplifa og hætta að flýta sér svo mikið að spara tímann að hann hverfur algerlega úr lífi þeirra.
Hvort viltu vera rauða konan eða bláa konan og af hverju?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Ég kýs rauðu konuna. Hlýrri litir, veitir ekki af þeim þessa dagana.
Auk þess er rauður uppáhaldsliturinn minn.
Maja Solla (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 11:57
Ég vel bláu konuna hún er ekki eins grimm á svipin og sú rauða. Sú rauða er líka stressuð, meiri friður yfir hinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.7.2007 kl. 12:34
Þá bláu því hún hefur fundið jafnvægið sitt og andlega tengingu. Sú rauða er freistandi, full af eldmóði, viljastyrk og ástríðum... en sú bláa "passar í fötin sín", he he ... Annars góður pistill á sunnudagsmorgni :)
Hólmgeir Karlsson, 29.7.2007 kl. 13:20
Ég segi þá bláu en sú rauðhærða dularfull en þær eru báða fallegar.
Kristín Katla Árnadóttir, 29.7.2007 kl. 16:04
Ég get ekki valið "hvort" En vel andlitið á bláu og umgjörðina á rauðu
Hafðu það svo gott í nýju "víddinni" þinni. Gott að eiga buxur í ýmsum víddum
Sólskinskveðja til þín
Guðrún Þorleifs, 29.7.2007 kl. 16:09
Gott hjá þér að fá þér stærri buxur. Ekkert vit í öðru. Þú veist væntanlega hvora ég vel.
Jóna Á. Gísladóttir, 29.7.2007 kl. 17:39
ég vil vera báðar, sátt við sjálfa mig og dulúðug á meðan.....
knús
Hrönn Sigurðardóttir, 29.7.2007 kl. 19:34
Það að kaupa sér föt sem eru nokkrum númerum of stór og máta þau reglulega og upplifa hvað er langt í að þau verði mátuleg - er eitt af geðmeðferðarfyrirbyggingarúrræðum nútímakonunnar. Ég nota þetta reglulega. Ég held að einar buxurnar mínar séu númer 44...
Ég vel svipinn á bláu konunni en umgerðina á hinni. Svona fólk eins og ég held alltaf að hægt sé að fá best of both worlds. Sumir læra aldrei...
Takk fyrir þessar sunnudagsmorgunshugleiðingar. Alveg ertu frábær.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 29.7.2007 kl. 21:27
Vil vera sú bláa - oftast - en vil geta skipt um lit.
Sú bláa er mildari, sáttari, hamingjusamari.
Sú rauða er hinsvegar beitt og áhugaverð og það langar mig stundum til að vera bara svona þegar ég er í því stuðinu.
Góð lausn hjá þér með buxurnar. Víð og stór pils eru reyndar mitt uppáhald á svona "buxurnarofþröngar"dögum.
Marta B Helgadóttir, 29.7.2007 kl. 21:37
skemmtileg lesning, glæsilegar myndir líka - hvað er hægt að biðja um betra? ég er þessi rauða
Rebbý, 29.7.2007 kl. 22:28
Bláa konan. Blátt er og hefur alltaf verið minn uppáhaldslitur.
Ég fór einu sinni til teiknimiðils. Myndin sem ég fékk hjá henni var mjög falleg. Höfrungur að stökkva upp úr sjó og dökkblár himinn í bakgrunninum með fullu tungli.
Blá mynd, allt nema höfrungurinn og tunglið.
Anna Einarsdóttir, 30.7.2007 kl. 21:01
Ég vel bláu konuna, hún er svo hrein í andanum og hjartanu og er svo göfug sál. Sú rauða minnir mig á persónuna Carmen hún er svo ástríðurfull og jarðbundin og svífst einskis til þess að ná fram vilja sínum.
Svava frá Strandbergi , 31.7.2007 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.