Leita í fréttum mbl.is

Ein trilljón dugar alveg!

Zordis og Gudny Svava listakonur veltu upp þeirri hugmynd á blogginu að hafa samsýningu listakvenna sem hafa kynnst á blogginu..veit ekki hvort við viljum karlpungana með í svoleiðis uppákomu. Afsakið orðbragðið og bara hugsunina. Auðvitað eru karlp...strákarnir velkomnir með held ég. Æ ræðum það síðar.

Mér finnst þetta alveg frábær hugmynd og auglýsi hér með eftir trilljóner með heitt hjarta sem væri til í að láta kannski eina litla trilljón renna til okkar sem kostun á þessari frábæru hugmynd sem myndi sko auðga listalífið á íslandi..já bara í öllum heiminum.

Trilljónerar hafa nefninlega svo oft skilið og aðstoðað listamenn og konur. Mér finnst það náttla mjög gott mál.

hagnaðurinn

Ég vil alls ekki segja að við séum fátækar listakonur því við erum það alls ekki. Við erum nefninlega mjög auðugar í sjálfum okkur og hamingjusamar og heppnar að fá að skapa og lifa með því ....og öðrum aukastörfum til að eiga salt í grautinn. Og þar koma trilljónerarnir inn í myndina. Þeir kaupa saltið og grautinn, strigann og málninguna..penslana og ýmislegt svona smálegt, borga húsaleiguna og strætómiðana svo það sé til tími pg pláss til að skapa listaverk með innsæi gyðja og kvenna sem finnst þær hafa margt að gefa inn í þessa veröld. Ljós og kærleika, bjarstýni og von, orð og liti, hamingju og hugarflugur,sálardansleiki og tindrandi tóna..úpps ég er kannski aðeins að missa mig hér. En samt..þetta eru góð býtti..ekki satt?

eveningangels

Betra að ég hafi þessa beiðni á ensku líka ef einhver sérvitur útlenskur trilljónamæringur rekst hér inn á íslenska bloggsíðu.

Dear mister trilljoner. Could you please be so nice to the best icelandic women artists to send us only one trillion to help us to have a wonderful art exhibition in Iceland soon? It would make the world a better place I promise you that.

Thank you very many, darling trilljoner! My e mail is kbaldursdottir@gmail.com

P.s Are you married?

I know a lady who is single and could like you. She is that kind of woman that you wouldn´t have to buy a car for..you would have to buy her a bus. Yah..maths made in heaven you two! Her name is Gurri. Dont´worry if you cant say RRRR Just say Guðði. She will understand beacause she lives in Himnaríki. Heaven with a view.

Sko..nú bíðum við bara spenntar eftir viðbrögðum og trilljóninni og komum svo fjúkandi yfir hafið áður en þið getið snúið ykkur við og setjum upp magnaða listsýningu sem verður sko engu lík. Því get ég lofað. Allar tillögur og aðstoð, góðar hugmyndir og smáaurar frá venjulegum bloggurum vel þegnir .

Blue_nude

Nú sit ég og bíð fallega eftir að þetta allt gerist.

Þolinmóð, þrautseig og þokkafull.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Já, hógvær ertu Snætrýna mín.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 15:21

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hva...maður kemst ekkert Nonni minn með því að sitja úti í horni og humma eitthvað um að maður sé ekki nógu klár eða góður í neinu. Nei...nú er tímabært að taka höndum saman og hafa gaman og leyfa sér smá grín og glens í sumarkomunni. En mér er hins vegar fúlasta alvara með trilljónamæringana. Hvað munar þá um eina litla trilljón til góðra verka??? Ha?

Og það gleður bara þeirra hjarta að geta lagt góðum málum lið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 15:36

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sammála þér.  Ég var hinsvegar að hugsa um skrilljón.  Fannst trilljón heldur lítilmótlegt.

En að öllu gamni slepptu, þá líst mér vel á þessa hugmynd að þið haldið samsýningu.  Hvernig væri að skrifa Björgúlfi bréf?  Hann hefur ekki sett mikið í listina, síðan þeir rifu Hampiðjuna. 

Jón Steinar Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 16:22

4 Smámynd: www.zordis.com

Elskan mín ..... Ég sé fyrir mér guðsgjöf til góðra verka!  Áfram

www.zordis.com, 22.4.2007 kl. 17:40

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þessi litla hugmynd er nú að verða að veruleika. Guðný Svava sér um að halda utan um þetta í bili og þeir sem hafa áhuga á að vita meira verða að kíkja á bloggið hennar undir vatnslitamynd stillmynd..eða send henni póst á svavag@mi.is Okkur er sem sagt alvara að halda samsýningu bloggara í Ráðhúsi reykjavíkurog ég er svo spennt. Held að það eigi eftir að koma eitthvað merkilegt úr þessu samstarfi.

Sko svona geta hlutirnir gerst!!!

Nú þarf ég virkilega að fara að finna út hvar ég get málað. Bæta á listann hjá mér..redda aðstöðu sem fyrst!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 19:30

6 Smámynd: www.zordis.com

Bros í hjartastað!  Yndislegt þegar litli snjóboltinn fer og rúllar með góðum hug.  Af litlum neista verður oft mikið bál!  

www.zordis.com, 22.4.2007 kl. 20:10

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott hugmynd! "Guððí" er örgla líka svakalega glöð með sinn hlut

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 20:29

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég læt hann kosta myndlistarsýninguna fyrst ... síðan fæ ég strætóinn! Hahhahahah

Guðríður Haraldsdóttir, 23.4.2007 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband